Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 27

Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 27
legri gestgjafa og hjálpsamari félaga en hina dönsku stéttarbræöur. Tvennt var það í yfirlitsræðum norrænu félaganna. sem athyglisvert er fyrir okkur: öllum hafði þeim tekizt að hækka grnnnlaunin nokkuð, sumum í áföngum og allir hafa þeir verðtryggingu á kaup. Enginn vafi er á því, þrátt fyrir vaxandi dýrtíð á Norðurlöndum og erfiðleika launafólks við að láta tekjur endast fyrir brýnustu lífsnauðsynjum, að þar erum við þrengstum stakki búnir. Svo mjög hefur samningsbundnum launum okkar hrakað síð- asta áratuginn. Varðandi þátttöku okkar í norrænu prent- arasamtökunum verðum við nú að ákveða, hvort áfram skuli haldið og unnið að fullri aðild að fundum þess og sjóði, eða við drög- um okkur enn til hlés og hittum stéttarbræður okkar á Norðurlöndum aðeins á hátíðum og tyllidögum, þegar bezt lætur. Að sjálfsögðu þarf að kanna það til hlítar hvaða möguleika við höfum til fullrar þátttöku í Nordisk Typograf-Union, þannig að skyld- urnar við samtökin getum við rækt með full- um sóma, en jafnframt notið gagnseminnar af samstarfinu í sem ríkustum mæli. S. Ö. Athugasemd víð athugasemd Jóns Ágústssonar Jón Agústsson, form. H.I.P., sá í næstsíðasta tölubl. Prentarans ástæðu til að gera athugasemd við grein rnína í sama blaði, — og er Jiað vissulega virðingar- vert. En þar sem þessi athugasemd er dálítið villandi, vildi ég koma eftirfarandi á framfæri: Jón segir: „Haukur Már Haraldsson var á fundin- um beðinn að finna þeim orðum sínum stað, að stjórnin hefði brotið reglugerð Framasjóðs. Hann gat á fundinum ekki nefnt neitt dæmi um það, og það gerir hann heldur ekki í grein þessari." Um þetta er það að segja, að ég minnist þess hreint ekki, að hafa haldið því fram, að stjórnin hafi brotiS reglugerð Framasjóðs. Hafi ég haldið því fram á að- alfundi, bið ég stjórn velvirðingar á því. Eg hef ekki beðið um að fá að hlusta á upptökuna á aðalfundin- um, og get því ekki sannað þetta mál mitt. En ég hygg, að ég hafi haldið því fram á aðalfundi, að stjórnin hafi ekki starjaS ejtir reglugerð Framasjóðs. Þessu held ég einnig fram í grein minni í 1.—11. tölu- blaði Prentarans og geri það enn, og tel mig hafa rökstutt það í umræddit greinarkorni. Það er mikill merkingarmunur á orðtökunum að brjóta reglugerð og að slarja ekki ejtir henni. Ummæli Jóns um styrkveitingar úr Framasjóði, og það, að æskilegt væri að hægt væri að styrkja fleiri prentara til sumarferðalaga á suðrænar sólarslóðir, mætti ef til vill afgreiða með því að segja, að þarna væri um „smekksatriði" að ræða, en ég er ekki sátt- ur við þá lausn. Tilgangurinn með fjárstyrknum er, „að styrkja prentara til utanfara í því skyni að auka þekkingu þeirra“. Skemmtiferðir auka ekki á neinn hátt faglega þekkingu prentara, þótt þeir h'ti inn í eina til tvær prentsmiðjur fyrir forvitnissakir. Eg tel mig liafa hent á eina leið til úrhóta i grein ininni og læt það nægja. Um 3. lið 7. greinar vildi ég segja, að ég efast stór- lega um, að aðilar utan félagsins komi til H.I.P., og segist vera að gefa út prentfræðilegt rit eða sögulegt rit um prentlist. I því máli verður frumkvæðið að sjálfsögðu að koma frá félaginu. Hins vegar tel ég þegar hafna útgáfu á sögulegu riti um íslenzka prent- arastétt, þar sem er Prentaratal. Það dettur mér sízt í hug að vanþakka. Varðandi ummæli Jóns um setninguna: „Það voru hin fyrirskipuðu afskipti ... o. s. frv., er það að segja, að þar er um setningafræðilegan og efnislegan misskilning að ræða hjá honum, svo sem hann vafa- laust hefur gert sér Ijóst nú, og hirði ég ekki um að ræða það. Um síðasta lið athugasemdar Jóns Ágústssonar er þetta að segja: Það skiptir engu höfuðmáli, hvort Jón veit um ein- hverja prentara, sem ekki fóru á DRUPA vegna and- varaleysis stjórnarinnar. Mergurinn málsins er hins vegar sá, að með deyfð sinni í þessu máli hefur stjórn- in á engan hátt staðið sig sem skildi og ákjósanlegt hefði verið. Félagsstörf eru full af „prinsippum", og eitt af þeim þýðingarmestu er, að stjórnir félaga, og þá ekki sízt hagsmunafélaga, séu sífellt á verði og haldi vöku sinni í hverju því máli, sem til einhverra bóta getur orðið fyrir félaga þess. Það verður að hafa það í huga að bætur til handa iðnaðarmönnum og verkalýð almennt, eru ekki eingöngu bundnar við fjár- hagsleg atriði. Það er líka til nokkuð, sem heitir fé- lagsleg hagsmunabarátta, og menntun er þar framar- lega í fylkingu. Það var meðal annars til að leggja á- herzlu á þessa félagslegu haráttu, sem Alþýðusam- band íslands var stofnað. Með þessari athugasemd er deilum um þetta mál lokið af minni hálfu, nema þeim mun meiri ástæða gefist til. Haukur Már Haraldsson. PRENTARINN 25

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.