Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 40

Prentarinn - 01.01.1968, Blaðsíða 40
hæÖarprentun fer yfirleitt eftir því, hvort vél- arnar eru settar upp í offsetprentsmiðjum eða prentsmiðjum sem nota hæðarprentun. Ef vélin er sett upp í offsetprentsmiðju vinnur offsetprentari við hana — og svo öfugt. Prent- ari sem vinnur við þessar vélar á alltaf að fá offsetprentaralaun. Eftir að bókbindarar og offsetprentarar höfðu einnig rætt sín sérmál komu allir full- trúarnir saman á ný. Fyrst voru teknir fyrir „fastir liðir“, svo sem skýrslur um fjárhaginn og starfið á tímabilinu 1964—1967 o. fl. Til- lögur voru teknar til umræðu og afgreiðslu. Þar á meðal tillaga frá Norðurlandasambönd- unum um að halda alþjóðaþingin á fjögurra ára fresti í stað þriggja. Hún náði ekki fram að ganga, til þess þurfti % atkvæða. 77 voru henni fylgjandi, en 64 á móti. Þá var komið að mesta hitamáli þingsins, en það var umsókn franska bókagerðarsam- bandsins Féileration jranqaise de travilleurs du livre (FFTL) um aðild að IGF. Þetta er öfl- ugasta og fjölmennasta bókagerðarsamband Frakklands, félagatalan er um 70.000. FFTL var meðal þeirra, sem stóðu að stofnun IGF árið 1949, en þremur árum síðar sagði það sig úr Alþjóðasambandinu. I stað FFTL kom þá annað franskt bókagerðarsamband, Force ouvriére. (Bókagerðarsamböndin eru þrjú í Frakklandi). Þetta samband er miklu minna, með aðeins 5000 félagsmenn. 1964 höfðu viÖhorfin breytzt svo, að FFTL sótti aftur um inngöngu í IGF. Inntökubeiön- in varð strax pólitískt hitamál. Ein ástæðan var sú, að FFTL er í róttæka alþýðusambandinu franska og því óbeint aðili að hinu róttæka alþjóðasambandi verkalýðsins. Allt frá þvi urnsókn FFTL kom til umræðu innan IGF voru skoðanir mjög skiptar. — Franska bókagerðarsambandið sem fyrir var og hollenzku bókagerðarmennirnir börðust hatrammlega gegn upptöku FFTL. Forustu- menn þeirra lýstu því yfir að sambönd þeirra myndu segja sig úr IGF, fengi FFTL aðild. Belgíumennirnir bótuðu aftur á móti að fara úr Alþjóðasambandinu væri umsóknin felld. Þannig stóðu málin fyrir þingið í London, sem taka átti ákvörðun í málinu. Umræðurnar um inntökubeiðnina urðu langar og strangar og mönnum hitnaði í hamsi, en við alkvæða- greiðsluna voru 82 með aðild FFTL en 76 á móti, og umsóknin þar með samþvkkt af þinginu. Þegar úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu kunn gekk formaður hollenzka bókagerðarsam- bandsins í ræðustólinn og tilkynnti að hann og félagar hans færu nú af þinginu og hol- lenzka sambandið myndi segja sig úr IGF. Fulltrúar franska sambandsins Force ouvriére gengu einnig út. Siðasta verk þingsins var að kjósa nýja sambandsstjórn. John Bonfield, formaður brezka prentarasambandsins, var kjörinn for- seti IGF. Ernst Scheuner frá Sviss endurkjör- inn varaforseti, og Heinz Göke ritari. Auk þeirra eiga 12 menn sæti í sambandsstjórninni. ASalstöðvar IGF verða áfram í Bern. Mikið var klappað þegar Helge Djörup, for- maður dönsku bókbindaranna, tilkynnti að dönsku bókageröarsamböndin hefðu boðið IGF að halda næsta alþjóðaþing sitt í Kaup- mannahöfn árið 1970. Brezku bókagerðarmennirnir önnuðust alla framkvæmd þingsins og gestrisni þeirra var í einu orði sagt frábær. Flest kvöldin buðu þeir fulltrúunum annað hvort í leikhús eða til kvöldverðar. Þeir skipulögðu ferðir um Lond- on, svo að menn gátu örlítiö kynnzt borginni, og daginn eftir að þinginu lauk var haldið í eins dags skemmtiferð til suðurstrandar Eng- lands. Hér ætla ég aðeins að bæta einu við að lok- um. Þegar ég ræddi við eldri mennina, sem sótt hafa mörg fyrri IGF-þing, og þeir fréttu að ég væri tslendingur, véku þeir strax talinu að Hallbirni Halldórssyni. Þeir minntust þess sérstaklega hve höfðinglegur hann var að yfir- bragði, og allir töluðu þeir um hann með mik- illi virðingu og hlýhug. Guðjón Sveinbjörnsson. 38 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.