Prentarinn


Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 31

Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 31
fremur er rekin deild, sem annast prófun á nýjungum, sem fram koma. Reynir nýjar gerð- ir véla til framleiðslunnar og vinnur að endur- bótum á prentvélum og rannsóknum í sam- bandi viS prentplötuframleiSslu fyrir hinar mörgu tegundir véla og prentaðferSir. Þarna eru um 3700 rúmmetrar undir þaki og setur byggingin mikinn svip á Heidelbergborg. Málmsteypan í Geislingen Geislingen, sem er milli Stuttgart og Ulm, hefur um margra kynslóða skeið alið víðfræga meistara málmsteypunnar. Nú starfa þarna um 1500 manns í málmsteypunni, í verksmiðju og á skrifstofum. Þessi málmsteypa hefur meira en aldarreynslu að baki í flestu, sem lýtur að nákvæmnisvinnu í þessari grein. SumariS 1965 var tekin í notkun samstæða til fram- leiðslu á smærri hlutum, með þeirri aðferð að steypa þá í röð og nota nýtízku rafmagns- bræðsluofna, og önnur málmsteyputæki af fullkomnustu gerð. Með þessu hefur tekizt að gera framleiðsluna sjálfvirka. Sérfræðingar og aðrir hvaðanæva að úr heiminum, sem skoðað hafa verksmiðjuna, hafa hrifizt mjög af henni, og er óhætt að segja, að þarna sé um að ræða tæknilegt undur. Starfsemin hef- ur veriö samræmd í eina óslitna heild, allt frá fyrsta til síðasta stigs framleiðslunnar. Allt frá rafeindaprófunartækjum til sjónvarps- tækja, sem notuð eru til eftirlits. Þessi verk- smiðja er um það bil 32 þúsund fermetrar að flatarmáli. W ieslochverksmiðjan Fyrir tíu árum, þegar skortur á landrými háði stækkun bækistöðvanna í Heidelberg, ákvað stjórn verksmiðjanna að þurrka mýrar- fláka nálægt smábænum Wiesloch, sem er í 18 km fjarlægð frá Heidelberg. A 1,7 milljón fer- metra svæði var reist gríðarstór verksmiðja, sem nú er ein fullkomnasta prentvélaverk- smiðja í veröldinni. Þrír stórir salir eru til færibandaframleiðslu á Heidelbergprentvélum, stanzvélum og fóliumvélum. Aðrir þrír stórir verksmiðjusalir, þar sem ýmsir vélahlutar eru smíðaðir. Þrír minni salir, sem notaðir eru til geymslu og þar er einnig viðgerðarverkstæði. I þriggja hæða skrifstofubyggingu er eldhús verksmiðjanna, sérstakur fundarsalur, sem notaður er einnig fyrir sölubúð, og í borð- salnum er hægt að framreiða þúsundir mál- tíða samtímis við góð skilyrði. Bygging er fyrir móttöku og til þess að hýsa gesti, sem koma til þess að starfa við verksmiðjurnar, bílastæði fyrir tvö þúsund bíla, skýli fyrir reiðhjól og mótorhjól, samtals 2518 m2 undir þaki. Snemma á árinu 1967 var í Wiesloch hafin smíði á mjög stórum sal til samsetning- ar á vélum. I framtíðinni verða þar einnig smíðaðar nýju Rotaspeed- og offsetvélarnar á ennþá stærri færiböndum en gert hefur verið í aðalstöðvunum í Heidelberg. Hver samsetningarsalur er sjálfstœð verksmiðja Sérhver hinna þriggja stóru vinnusala er verksmiðja út af fyrir sig með margföldum færiböndum í lofti og á gólfum, geymslum og pökkunardeild. A degi hverjum er flutt steypt járn frá málmsteypunni í Geislingen og sett í geymslur við endana á þessum sölum. A tveim færiböndum fyrir sjálfvirkar cylindur- vélar (eins og tveggja lita vélar af K og S gerð) eru 50 vélar settar saman samtímis. A þriðja færibandinu, sem er fyrir digul-vélar, er unnið samtímis við 95 vélar. — Að loknum hverjum vinnudegi fara vagnar og flutningabifreiðir frá verksmiðjunum hlaðnar prentvélum. Allar vélar eru pantaðar fyrir- fram, og er þess vegna hvergi gert ráð fyrir geymslurými fyrir smíði prentvéla á lager. Fullkomin hagrœðing í framleiðslunni Hinn jafni hraði og öll vinnuhagræðing er skýringin á hagstæðu verði Heidelberg- vélanna. Vélarhlutarnir eru smíðaðir í þraut- hugsuðu kerfi færibandaframleiðslunnar. í hverjum samsetningarsal eru yfir 300 vélar, sem notaðar eru til að bora, slípa, og á annan PRENTARINN 29

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.