Prentarinn - 01.01.1968, Page 36
Adalstöðvar brezka alþýðusambandsins.
7. alþjóðaþing
bókagerðar-
manna
7. þing Alþjóðasambands bókagerðarmanna
var haldið í London dagana 18.—23. sept-
ember s.l. Að þinginu loknu var haldin tveggja
daga ráðstefna, sem fjallaði um tækniþróunina
í prentiðnaðinum. Sú ráðstefna stóð 25. og 26.
september.
Nú um nokkurt skeið hefur Hið íslenzka
prentarafélag ekki sent fulltrúa á alþjóða-
þingin, livorki í Osló 1961 eða Vín 1964. Hall-
björn Halldórsson sótti aftur á móti þingin í
Miinchen 1958 og í Luzern 1955. Einnig sótti
hann alþjóðaþing prentara áður en Alþjóða-
samband bókagerðarmanna var stofnað. Að
þessu sinni ákvað stjórn H.l.P. að senda full-
Irúa til London, og varð það úr að ég sat
þingið.
Alþjóðasamband bókagerðarmanna (al-
þjóðleg skammstöfun þess er ICF ) var stofn-
að í Stokkhólmi árið 1949. Að því stóðu al-
þjóðasambönd prentara, bókbindara og offset-
prentara. Þessir þrír aðilar höfðu komizt að
raun um að ekki dugði að fást við vandamálin
sitt í bverju horni, þau yrðu bezt leyst með
alþjóðlegu samstarfi allra bókagerðarmanna.
Þetta hefur komið enn betur á daginn síðustu
10—15 árin. Ný tækni hefur knúið þá til
miklu meiri samstöðu og í mörgum löndum
hefur verið stofnað eitt heildarsamband þess-
ara þriggja iðngreina, eða unnið er að undir-
búningi þess, eins og t. d. í Danmörku, Eng-
landi og Bandaríkjunum.
Hlutverk IGF er að samræma og marka
stefnu bókagerðarmanna í tæknilegum og fé-
lagslegum efnum. Það styrkir og félög sem
eiga í langvarandi vinnudeilum með fjárfram-
lögum úr sjóðum santbandsins og fjársöfnun
meðal aðildarsambandanna. Slíka aðstoð hef-
ur IGF oft veitt, einkum bókagerðarmönnum
í þróunarlöndunum. Núna í haust veitti það
t. d. tyrkneska prentarasambandinu nokkurn
fjárstyrk, en það hefur átt í erfiðri vinnudeilu.
IGF er einnig ætlað að safna upplýsingum urn
kjarasamninga, sjóði og lög allra bókagerðar-
félaga í heiminum, afla upplýsinga um náms-
skipan og þær umbætur sem gerðar eru á
iðnfræðslu í einstökum löndum og dreifa þeim
gögnum til aðildarsambandanna.
Alþjóðasambandi bókagerðarmanna er skipt
í þrjár deildir sem hver um sig kýs sér fimm
manna stjórn. Deildirnar markast af iðngrein-
unum: I iðngrein I eru prentarar, iðngrein II
bókbindarar og starfsfólk í pappírsiðnaðinum
og í iðngrein III offsetprentarar, myndamóta-
smiðir og teiknarar. Stjórnir deildanna halda
fundi reglulega á tímabilinu milli IGF-þing-
anna.
A IGF-þingunum ræða fulltrúar iðngrein-
anna sín mál á sérstökum fundum og hver
deild kýs þrjá menn í sambandsstjórnina. For-
seti, varaforseti og ritari sambandsins eru
kosnir af þinginu í heild. Auk þessara 12
manna eiga sæti í sambandsstjórn þrír félagar
frá því landi sem IGF hefur aðsetur í. Aðal-
stöðvarnar eru í Bern og þar hafa þær verið
allt frá stofnun sambandsins. Alþjóðaþingin
eru haldin 3ja hvert ár.
1 árslok 1966 voru 46 bókagerðarsambönd
34
PRENTARINN