Landneminn - 01.05.1949, Qupperneq 21

Landneminn - 01.05.1949, Qupperneq 21
MARGRÉT G. JÓNSDÓTTIR: Hún lieitir Sigga, nafnið er mjög algengt hér, en því miður einnig saga hennar. Ég leigði einu sinni í húsi þar sem hún var vinnukona og ég kynntist lienni. Hún var dálítið einmana og ef ég var ein, kom hún stundum inn til mín á kvöldin, áður en hún fór að hátta. Ég get ekki sagt, að mér þætti neitt gaman að tala við hana fyrst, en svo fór að mig langaði til að kynn- ast henni. Og það var auðvelt, j>ví hún var bæði hrein- skilin og létt í lund og sagði mér allt, sem henni datt í hug. Hún var þá 17 ára. Hún var elzt fimm systkina og var ættuð úr smáþorpi úti á landi. Einu sinni kom hún inn til mín og hað mig að lána sér eitlhvað að lesa. Ég bauð að lána henni ævi- sögu, sem ég hafði nýlokið við og gat þess að hún væri bæði fræðandi og skemmlileg, en Jægar hún heyrði það, vildi hún hana ekki og hað mig heldur um smásögur. Ástæðuna fékk ég að vita, hún var sú, að ef hún færi að Iesa langar sögur, gleymdi hún sér alveg við lesturinn og gæti ekki hætt að lesa. Þetta hafði tvisvar komið fyrir um veturinn. En vekjara- klukkur fengust þá ekki í bænum, svo hún varð sjálf að vakna og vera komin á fætur hálf-átta á morgnana. Eitt kvöld hafði hún orð á því að hún hlakkaði til að fara heim um vorið, ég varð hálf hissa og sagðist hafa haldið að henni þætti gaman að vera í Reykja- vík. ,,Það hélt ég nú líka fyrst,“ sagði liún, „en ]>að er svo einkennilegt að vera hér, a. m. k. fyrir vinnu- konur. Hér, þar sem er svo margt fólk, ert ]>ú og Stína vinkona mín einu manneskjurnar, sem ég tala við. Og Stínu hitti ég nú bara á fimmtudögum og ann- anhvern sunnudag. Og það er ekki ætlazt til að ég sé að tala við gesti, sem koma hér. En heima er fólkið allt öðruvísi. Þar þekkjast allir, og þar eru fáir þann- ig að ekki megi tala við þá.“ Ég sagði henni þá, að hún mætli til að læra eitt- hvað, hún myndi áreiðanlega hafa mikla ánægju og gagn af því. Þá komst ég að því, að hún hafði gengið að því sem vísu, að geta lært á kvöldin í „Námsflokk- unum“, því þar væri kennslan svo ódýr. Frúin liafði sagt, þegar Sigga réðist til hennar, að hún gæti verið laus eftir kl. átta á kvöldin. En ]>að var ekkert skrif- legt, það hafði Siggu ekki komið til hugar að þyrfti líka. Og svo varð reyndin sú, að Sigga þurfti „bara svona að vera við hendina“, þegar gestir komu og svo að gæta barnanna, þegar hjónin fóru út. Rétt fyrir jólin bað hún mig að sjá um póstsend- ingu á peningum fyrir sig, heim til sín. Ég varð undr- andi yfir hvað þetta var mikið, og spurði hvort hún eyddi engu af kaupinu sínu. „Ja, ég er nú búin að vera hér í þrjá mánuði, og hef aðeins keypt mér tvenna sokka og inniskó og svo farið nokkrum sinn- um í bíó.“ Ég spurði hana þá, hvort foreldrar hennar væru mjög fátæk. „Bara eins og gengur heima, en Gumma hróður minn, sem er 15 ára, langar svo mikið til að læra eitthvað, en ]>abbi segir, að ekki komi til mála að hann geti hjálpað honum. Pabbi er sjómaður eins og flestir heima, og hann hefur nú aldrei einu sinni haft upp það nauðsynlegasta. Mamma er alltai heilsuveil og svo hafa þau alltaf þurft að hafa hús- næði á leigu. En við systurnar, ég og Anna, ætlum að hjálpa Gumma eins og við getum. Anna er 16 ára. og hún er núna búin að vera eitt ár í vist.“ Það var stolt í rödd hennar, þegar hún sagði mér þetta og mér fannst það undarlegt. F.n hún sjálf hafði ekkert við það að athuga, henni fannst það alveg sjálfsagt að þær systurnar fórnuðu sér alveg fyrir bróður sinn, en innilokuðu sína eigin ]>rá til að læra og njóta lífsins. En þetta er líka eðlilegt, svona er hugsunarhátturinn almennt ennþá. Það j)vkir sjálf- sagt að drengir fái að læra, jafnvel þótt þeir hafi engan vilja á því sjálfir. en stúlkurnar, „]>ær bara giftast“. Og í morgun þegar ég las dagblöðin, sá ég í einu þeirra trúlofunarauglýsingu, sem hljóðaði svo: „Ný- lega opinberuðu trúlofun sína Sigríður Jónsdóttir og N. N. sjómaður.“ Svo hef ég víst sofnað aftur út frá blaðinu. Mig dreymdi þá, að ég var að tala við unga stúlku, sem ég hélt fyrst að væri Sigga, en hún sagðist vera dóttir hennar. Það var svo líkt að tala við hana og Siggu. Hún sagðist strax hafa farið að vinna í verksmiðju hér í Reykjavík, þegar hún kom úr barnaskólanum. Og svo segir hún: „En Gumma bróður minn langar svo mikið til að læra.........“ LANDNEMINN 21

x

Landneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.