Landneminn - 01.05.1949, Blaðsíða 31

Landneminn - 01.05.1949, Blaðsíða 31
Eftir BERNARD DE VOTO Skömmu eftir aS jólahefti Landnemans kom út, hitti ritsjórinn Þorvald Þórarinsson, lögfræðing, á götu. Lét Þorvaldur í ljós undrun sina yfir þeim barnaskap ritstjórans að birta greinina um Kensington-steininn, sem hann sagði að væri hlægilegt húmbúkk, einsog nú cr raunar á daginn komið. En uin leið Iofaði Þorvaldur því, að útvega Landnemanum eitthvert það efni, sem rækilega sýndi fram á, hversu fólki er gjarnt að láta ímyndunarafliö hlaupa með sig í gönur út af allrahanda hindurvitnum varðandi fund Ameríku. Þonaldur efnir þetta loforð með eftirfarandi grein, sem liann hefur sjálfur þýtt. í sumar leið frömdu fornleifafræðingar það sent þeir kalla tilraunagröft hjá Sívalaturni í Nýhöfn, „sem horft hefur til hafs allt fram á þennan dag,“ sagði skáldið Henry Wadsworth Longfellow árið 1841. Þeir ætla að byrja í alvöru núna í.vor, og þegar þeir eru húnir að grafa er að vísu alveg undir hælinn lagt hvort við getum gert okkur sæmilega áreiðanlega hugmynd um hvers konar hús þessi turn er. Tilraunagröfturinn leiddi ekki í ljós neinar sann- anir óhagstæðar þeim skoðunum sem ýmsir menn höfðu haft árum saman, að turninn ltafi verið reistur á landnámsöld, j). e. a. s. ekki fyrr en á 17. öld. Ekki komu heldur fram nokkurar sannanir til stuðnings neinum þeim getgátum, ágizkunum og hindurvitnum sem hafa sett turninn í samband við heimsóknir nor- rænna manna til þessa meginlands fyrir daga Kólumh- usar, eins og Longfellow gerði í kvæði sínu Beina- grindin brynjaða. Það er ekki víst að við verðum miklu nær þegar fræðimennirnir eru búnir að ljúka starfi sínu. Það er ekki víst að við vitum hóti meira en nú. En við gelum verið handviss um J)að að einungis fáir af æsingamönnunum munu sætti sig við niður- stöðuna. Hinir munu halda áfram að skapa sér heil sólkerfi draumóra úr fáeinum mustarðskornum af á- gizkunum, því að það er öldungis eins og hver önnur j)ýðingarlaus tilviljun að turninn stendur í Ilauðseyjar- fylki; hann er í rauninni miklu fremur á meginlandi trúar mannsins á hið ótrúlega, á meginlandi þjóðsögu og ímyndunar. Nýleg kenning gengur í j)á átt að turninn sé víggirt kirkja, reist (eða ráðin) árið 1357 af leiðangursmönn- nm sem konungur Noregs og Svíþjóðar sendi til að endurkristna í Grænlandi nýlendu eina er gengið hafði af trúnni. Og nú hefur Smiðssonarsafnið lýst yfir j)ví, að það viðurkenni fyrst um sinn sem fjórtándu aldar rúnir teikn þau sem rist eru á stein, er fannst rétt hjá þorpinu Kensington í Minnisótufylki árið 1898. Kenningin um Sívalaturn telur að Kensingtonsteinn- inn sé verk tuttugu manna sem af komust úr fjöru- tíu manna flokki er sendur var frá aðalbækistöðinni í Nýhöfn til þess að hafa uppi á týndu kirkjunni. En hana höfðu leiðangursmenn hvorki fundið á Græn- landi né annars staðar. Þeir leituðu heldur langt yfir skammt. Þeir sigldu austur um Vínland, Furðustrandir og Markland. norð- ur um Helluland og gegnum Hellusund, suður með austurströnd Hellulandsflóa, norður með vesturströnd flóans allt til mynnis Njálsár. Þar skildu þeir eftir tíu menn að gæta skipa sinna. Á þessum stað smíðuðu þeir sér smærri fleytur og héldu hinir þrjátíu á þeim upp Njálsána að Vinnipeggvatni og eftir því endilöngu allt að mynni Rauðarár, sigldu upp eftir henni langar leiðir unz þeir sneru austur á bóginn yfir Minnisótu áleiðis til Nýhafnar, eftir ám og vötnum sem hafa því miður hrevtzt í þurrlendi á síðastliðnum sex öld- um. Eina dagleið frá Kensington drápu Síúx-indíánar tíu manns úr hópnum. (Þetta var árið 1362L Þeir sem af komust ristu sögu sína á steininn og greiddu för sína austur á bóginn. Ekki leið á löngu áður en þeir rákust á rauðskinnaflokk sem var jafnhiæddur sjálfum þeim við Síúxmenn. í stuttu máli: Himr tutt- ugu komust aldrei til Nýhafnar, og Páll Knútsson, herstjóri turnvirkisins í Nýhöfn, hélt liði sínu heim LANDNEMINN 31

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.