Landneminn - 01.05.1949, Blaðsíða 32
til Noregs aftur. En rauðskinnar þeir sem þessi giftu-
snauði trúboðsflokkur hitti í Minnisótu hafa síðan
reikað um meginland ímyndunarinnar öldum saman.
II.
Það liðu næstum fjögur hundruð ár frá því Norð-
menn voru að prófa siglingafræðina á gresjum Minnis-
ótu þangað til franskir skinnakaupmenn komust vest-
ur fyrir Meiravatn, að Rigningavatni og Skógavatni,
og loks alla leið að Vinnipeggvatni. Þeir vissu ekkert
um landaskipan vestan, norðan eða sunnan þessara
endimarka, en höfðu hinar fáránlegustu hugmyndir,
og í samræmi við þær túlkuðu þeir á hinn fráleitasta
hátt sögur sem þeir heyrðu á vesturleið frá Miðselja-
mörk og Eiðinu mikla um rauðskinna sem ættu heima
þar útsuður af. Sögumenn þeirra voru einkum Kríur
og Asnabaunar. Þeir kváðu rauðskinna þessa hafast
við á bökkum fljóts nokkurs sem Frakkar hugðu að
vera mundi Vesturelfan, en hún kom þá mjög við
munnmælasögur, og mátti ætla að hún rynni þar ekki
alllangt undan út í hinn lítt kunna Kalíforníuflóa
eða hið enn miður j>ekkta Kyrrahaf. Ef til vill hvarf
hún Iíka út í hinn fræga Vestursjó, sem ekki var
sama hafa og Kyrrahafið, heldur barst kynslóð fram
af kynslóð til og frá um hið ímyndaða landabréf af
miðbiki Norðurameríku í samræmi við fáfræði manna
--------------------------------------------
Breytt hljómfall
£g fór um tímans rauða reginmar
að rökkurdjúpsins yztu sjónarrönd,
og sökkvandi skip mitt sigldi að týndri strönd
um sólarlag — — og ég beið nœtur þar.
En aftanroðinn hvítri sólarhönd
hreif mig til sín inn í morgunlönd,
þar hljómfall lífsins annað óþekkt var.
Minn gamli heimur fórst í sjdlfum sér,
sökk í eigin gröf, sem veikur reyr,
sem gamalt lag, sem líður út og deyr.
Ljóð og söngvar þínir hurfu mér.
Kaldir og fornir kvistir urðu þeir,
og kvœðin gömlu skil ég ekki meir,
því hljómfall lífsins breytt og brotið er.
Gunnar Dal.
og óskadrauma. Kanadarauðskinnar kváðu þjóð þessa
vera yfirburðafólk, sem ætti sér borgir og munaðar-
fulla menningu. Þetta voru hvítir indíánar, alskeggj-
aðir, og í raun réttri ákaflega líkir Frökkum.
Árið 1738 lagði séra Andrés dula upp frá búðum
sínum við Rauðará og rakst }»á loks á rauðskinna
þessa við Missúríflótið, þar sem nú er höfuðborgin
Bísmark í Norðurkotsfylki. Þetta reyndust vera Mand-
ánar, glaðlynd og vingjarnleg þjóð. Þeir áttu séi engar
borgir. Ekki prýddi þá skeggið, né heldur hörunds-
fölvinn. Kríur og Asnabaunar töldu }»á menningar-
fólk, af því þeir bjuggu í hlýjum, veðurheldur kofum,
höfðu vísundahjarðir til veiða, og ræktuðu matjurtir
til manneldis og veizluhalds allan veturinn. En Kan-
adarauðskinnum var hrollgjarnt og hungursamt á
hverjum vetri.
Rauðhúðum er svo margt skinnið sem hvítum mönn-
um og blökkum. Allir kynflokkar við Missúrífljót of-
anvert og frændur J»eirra j»ar fyrir vestan voru hver
með sínum hætti. Einstöku maður var með jarpt hár
eða jafnvel ljóst, einn og einn með Ijóst hörund, stund-
um blá augu. Mandánar voru breylilegastir. Sumir
þeirra voru mjög ljóslitaðir, eftir því sem rauðskinn-
ar gerast. Jafnvel hvítingjum brá fyrir. Þetta voru ó-
blandaðir rauðskinnar. í þeim var ekki vottur af hvítra
manna blóði. Menning Jjeirra var óblandin hvítra,
og mál þeirra óskylt hverri }»eirri tungu er hvítir
menn hafa á mælt. Sögur hvítra manna um fölleita
rauðskinna og skeggjaða eru jafngamlar fyrstu sam-
fundum Jjessara tveggja mannflokka: kynjasögn þessi
digraðist mjög í gerðum i óvitund beggja. Á hinum
auðu svæðum landabréfsins, þar sem sjálfsblekkingar-
vilji mannsins hefur hvað mest olnbogarúm, gengu
sögur af ýmsum ættflokkum hvítum, og J»að löngu
áður en landkönnuðir litu þessa staði augum. En eng-
inn ættbálkur svalaði eins varanlega áráttu manna í
hið ótrúlega og Mandánar. Þeir eru í |»jóðbraut hugar-
óra vorra á sama hátt og J»orp J»eirra voru á kross-
götum viðskipta og landkönnunar á 18. öld. Nú eru
ekki framar til neinir óblandaðir Mandánar, og ættar-
skipulag J»eirra leið undir lok fyrir lieilli öld. En þeir
Ijá ennj»á trúgirni mannsins ský til að reisa sér úr
borgir, og munu halda J»ví áfram um alllangan tíma.
Einn og einn bláeygur rauðskinni, stöku maður með
börund svo ljósleitt, að það skiptir litum, og alger-
lega uppspunnir yfirburðir yfir nágrannana, — þessi
atriði nægja til að sannfæra trúaðan mann um að
Mandánar séu sá ættflokkur sem þeir hafi blandazt
er undan eiga að hafa komizt í blóðbaðinu mikla við
Kensington. Mandánar eru sem sé norrænir rauð-
skinnar.
32 LANDNEMINN