Landneminn - 01.05.1949, Qupperneq 37
r a b b
v----------------------------------------------------------------------------j
Það er íslenzkt elliheimili í Mani-
tol)a. Austurendi þess snýr að stöðu-
vatni, og hinumegin við vatnið er
skóglendi. Gömlu vesturfararnir
sumir halda að þarna séu fjöllin á
íslandi. Þeir silja á sviilunum frá
morgni til kvölds og spyrja tíðum
hvort báturinn fari ekki hráðum að
koma. - Sálarþróttur þessa fólks er að
mestu kulnaður eftir ævinnar mörgu
hret. En neðst í hlóðunum brennur
þó enn sú glóð, sem í u])])hafi hlaut
tendruu svo voldugra afla, að hún
gelur aldrei slokknað. Það er þessi
glóð sem veldur því, að öldruð aug-
un stara án afláts yfrá ströndina
hinumegin við kanadíska vatnið, þar
sem grænir skógar liafa fengið á sig
mynd blárra fjalla; — og þaðan
hlýtur ísland á hverri stundu að
senda bál eftir börnunum sínum. —
Og þessi glóð lifir í hjörtum okkar
allra. Við tilheyrum öll þeirri
fjölskyldu sem kallast Islendingar,
og þessi glóð fylgir
Glóðin fylg- ættinni. Hún fylgir
ir œttinni. ættinni einsog blám-
inn fylgir fjöllum ís-
lands og gerir J)au íslenzk. — Þú
vinnur kannski við heyskap í fjar-
lægu landi, og það er ekkert gaman
að eiga frí af ])ví Mývatnssveit er
svo langt í burtu. Ung íslenzk stúlka
segir frá ]>ví, hvernig hún stóð eitl
fagurt kvöld í blíðu veðri á suð-
rænni strönd og horfði á sólarlag-
ið, en varð svo skyndilega gripin
óróakennd yfir því að þetta var ekki
sólarlagið í Reykjavík. Ungur ís-
lenzkur maður sat í hópi félaga
sinna á skemmtistað einum í er-
lendri stórborg, annars hugar og
ekki með í þeim mikla glaum og
gleði, sem leiknustu listamenn létu
samkomunni í té. Félagarnir spurðu
hann undrandi, hverju ]>etta sætti.
Hann kvaðst einu sinni hafa geng-
ið á Heimaklelt.
Þótt þú Þarna var að verki
langförull sú hin gamla glóð,
legðir..... sú hin sama glóð
sem hrærði hjarta
skáldsins þegar það orti: — Þótt
]>ú langförull legðir / sérhvert land
undir fót, / bera hugur og hjarta /
samt þíns heimalands mót. — Jú,
það finnast að vísu þeir íslenzkir
menn, sem gerzt ltafa svo langför-
ulir, að hugur þeirra og hjarta glat-
aði svipmóti heimalandsins. En það
er ekki fyrr ]>á sök. að þeir hafi
gerzt svo langförulir um víðáttur
hnattarins. Það er fyrir þá sök, að
þeir hafa gerzt svo langförulir um
víðáttur móralskrar spillingar, þar
sem stefnan miðast ekki við önnur
kennileiti en auðsöfnunarmöguleika
og metorða. Á þeim víðáttum vill-
ast menn fljótt og glata hinu ís-
lenzka svipmóti hjarta síns, og það
eins ]>ó ])eir hafi aldrei útfyrir land-
steinana komið. —
Undantekn- En þessir menn eru
ingar, sem undantekningar sem
staðfesta staðfesla regluna um
regluna. okkur hin, staðfesta
regluna um að vera
íslendingur. Að vera íslendingur.
það er að finna glóðina brenna í
brjósti sér, glóðina sem í gegnum
kúgun, eymd og þjáningar þúsund
ára liefur haldið áfram að brenna.
hversu svo sem hret á ýmsum öld-
um ullu kulnun hið efra í hljóðun-
um, glóðina sem er ábyrg fyrir því,
að enn dafnar fastmótuð menning
og þjóðerni í þessu litla landi norð-
urvið heimskautabaug, glóðina sem
í upphafi hlaut tendrun svo vold-
ugra afla að hún getur aldrei slokkn-
að: Að vera íslendingur, það er að
elska land sitt um-
30. marz fram allt. — Á síð-
síðastliðinn. ustu árum hafa þeir
atburðir gerzt, sem
gætu leitt af sér endalok íslenzks
þjóðernis. Þróun þeirra atburða
náði hámarki, þegar aðild íslands
að Atlantshafssáttmálanum var sam-
þykkt á Alþingi 30. marz síðastlið-
inn. Og þróuninni réðu nokkrir þeir
íslenzkir menn, sem siðferðilega
eiga sér ekki önnur kennileiti en
])ersónulegan auð og metorð, ís-
lenzkir menn sem hafa glatað liinu
upprunalega svipmóti hjarta síns. —
Ég sagði að þessir atburðir gœtu
leitt af sér endalok íslenzks þjóð-
ernis. En gera þeir það? Er hægt
að buga íslenzkt þjóðerni? — Á
næstu árurri verður það heilagt verk-
efni okkar allra að svara neitandi
þessari spurningu.
Við hljótum — Ekkert skal fá
að sigra. bugað íslenzkt þjóð-
erni, heldur skal
dugur þess eflast við hverja raun.
Slíkt mætti vera kjörorð þeirrar bar-
áttu sem framundan er. Og í þeirri
baráltu verðum við öll að standa
saman, hverja skoðun sem við ann-
ars kunnum að liafa í pólitík og
fjarlægum þjóðum. Já, í þeirri bar-
áttu hljótum við að standa saman,
því við tilheyrum öll einni og sömu
fjölskyldu, að vísu erjusamri fjöl-
skyldu, en engu að síður góðri og
mætri fjölskvldu, þeirri fjölskyldu
sem kallast íslendingar. — Og við
hljótum líka að sigra. — Það er
vegna glóðarinnar sem gengur í ælt-
inni.
LANDNEMINN 37