Unga Ísland - 01.12.1947, Qupperneq 29
19
hvað þau voru vitur áður, og nú hættir því við að reyna
að gera þau sem allra heimskust. Margar barnabækur eru
til dæmis alveg eins og þær væru samdar handa hálfvitum
eða umskiptingum. Höfundarnir halda, að þeir eigi að gera
sig enn kjánalegri en þeir eru, af því að þeir séu „bara að
skrifa fyrir krakka“. En börn geta einmitt, ef þeim er bent
á það og hjálpað ofurlítið til þess, skilið margt af því allra
bezta, sem til er í bókmenntum og listum, betur en flest
fullorðið fólk.
Sumir eru þó svo lánsamir að geta elzt og þroskazt og
haldið samt áfram að vera börn. Og þeir eru bezta og ham-
ingjusamasta fólkið, sem til er. Jesús Kristur sagði einu sinni
við lærisveina sína: „Hver, sem ekki tekur á móti guðsríki
eins og barn, mun alls ekki koma inn í það“. Þetta á engu
síður við jarðríki, öll undur náttúrunnar og mannlífsins, én
við guðsríki eða himnaríki. Og það á ekki sízt við ríki allra
hsta. Allir sannir listamenn verða að eiga hin opnu augu,
einlægu hugsun og viðkvæmu lund barnsins, verða að finna,
hvílíkt ævintýri það er að vera til, skynja sorgiina og gleð-
Jna, hið fagra, stórkostlega og hræðilega í þessari dular-
iullu tilveru. Þeir verða að vera lausir við allan hégóma. Þó
ftð þeir geti „gert lukku“ í svipinn með uppgerð og tilgerð,
þá kemst alltaf upp um þá og fólk verður leitt á þeim fyrr
«ða síðar.
I gömlum þjóðsögum er sagt frá merkilegum kjörgripum,
sem eru kölluð jjöregg. Eigendur þeirra gátu geymt þau
þar, sem enginn náði í þau, og síðan verið sjálfir í alls konar
hættum og háska, ef til vill orðið sárir og illa leiknir, en þeir
hfðu alltaf góðu lífi, meðan fjöreggið var heilt á sínum
stað. Það eru mikil sannindi í þessari hugmynd eins og
uiörgu öðru í þjóðsögunum. Það er til fólk, sem á sér sína
hýrmætustu fjársjóði, hvort sem það er nú trú, von eða
ast eða eitthvað annað, geymt í heimi fyrir ofan storma
°g hríðar, þar sem ekkert getur grandað þeim. Eigendur
2*