Neytendablaðið - 01.10.1969, Page 28
er verstuí sá eiginleiki auglýsinga í dag að stuðla að einokun á mark-
aðnum. Það virðist orðið erfitt, jafnvel ómögulegt, fyrir framleiðanda
að koma á markaðinn nýju vörumerki, ef hann hefur yfir að ráða
minna en 10 milljónum dollara.“7)
Auglýsingar og einokun á íslandi.
A Islandi hafa sjónvarpsauglýsingar sýnt mjög Ijóslega, hvernig aug-
lýsingar geta skapað vörueinokun. Vegna sjónvarpsauglýsinga hafði
Dixan þvottaefnið um tíma nær algerlega útrýmt öðrurn þvottaefnum
fyrir venjulegan þvott af markaðnum. Húsmæður fóru að leggja þvott
í bleyti aðeins í Luvil vegna auglýsinga. Sunsilk er vegna sjónvarps-
auglýsinga mest selda sjampótegundin.
í öllum tilfellum er hér um erlenda framleiðsluvöru að ræða; erlend
fyrirtæki eru fjársterkari en íslenzk iðnfyrirtæki og geta því eytt miklu
meira í dýrar auglýsingar.
Vörumerki.
Höfuðtilgangur mikillar auglýsingarstarfsemi er að skapa tryggð við
ákveðna vöru, sem neytandinn kaupir síðan, oft án tillits til gæða eða
verðs. Framleiðendur vita, að fái þeir neytandann til að byrja að nota
28
NEYTENDABLAÐIÐ