Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 47
Fiskverzlanir í Reykjavík
- Geysimikill munur er á gæðum þeirra
Alls voru 46 fiskverzlanir á skrá Borgarlæknisembættisins í Reykja-
vík 31. des. 1968. Fulltrúar Neytendasamtakanna heimsóttu allar þess-
ar verzlanir í júlí—ágúst sl. sumar (1969), og skrifuðu niður athuga-
semdir um hverja þeirra: Fjölbreytni fisktegunda. Tegundir umbúða.
Loftræsting. Afgreiðslurými. Heildarsvip. Ef aðstaða leyfði var einnig
athugað um vinnslurými og kæliaðstöðu.
Ekki er hér mögulegt að skýra frá því hvaða einkunn hverri ein-
stakri fiskbúð var gefin. Slíkt teldist óréttmætt þar sem slíkt krefðist
miklu fleiri heimsókna í hverja einstaka fiskbúð en framkvæmdar hafa
verið. T. d. þyrfti að heimsækja fiskbúðirnar um háveturinn, en þá
eru gæftir oft slæmar. Þegar áðurnefnd athugun á fiskbúðum var gerð,
voru gæftir alltaf mjög góðar, og þess vegna hefði alls staðar átl að
vera nægilegt framboð af fiski ef fiskdreifingarkerfið væri í lagi og fisk-
salar nógu árvakir. En þetta tvennt vill stundum vanta.
Umbúðir voru ýmiss konar: Daghlöð, hvítur pappír, smjörpappír,
plast eða eitthvað af þessu saman. Hér verður sýnt hvernig umbúðír
hinar mismunandi fiskbúðir notuðu. Að sjálfsögðu getur þessi umbúða-
notkun verið nokkuð breytileg frá degi til dags. Hér er sýnt hvers konar
umbúðir voru notaðar utan um óflakaðan fisk á þeim degi, sem við
heimsóttum fiskbúðirnar. Tekið skal frarn, að sumar fiskbúðir, sem
notuðu aðeins dagblöð eða hvítan pappír utan um óflakaðan 'fisk, not-
NEYTEHDABLADID
47