blaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 29
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006
Jólaskrautkúlugerð í Vesturbænum
-frændurnir Andri, Daníel og Arngrímur búa til glitrandi ævintýrakúlur
Það vafðist ekki fyrir litlum
frændum í Vesturbænum að búa til
glitrandi ævintýrakúlur fyrir jólin í
vikunni. Heimagerðar kúlurnar eru
klassískt jólaskraut og þegar þær eru
hristar glitrar glimmersnjór sem
gleður alla.
Notaðar eru einfaldar glerkrukkur
til verksins. Eitthvert lítið plastleik-
fang eða smáhlutur er límt í botn
á krukkuloki. Krukkan fyllt með
blöndu af vatni og glýseróli (fæst
í næsta apóteki) og nokkrum te-
skeiðum af glimmeri er bætt út í
blönduna áður en lokið er skrúfað
fast á.
Notaðu plastfígúrur eða dót úr
gleri til að líma í botn krukkuloksins.
Ekki nota smáhluti úr tré eða járni
(leysast upp eða ryðga.) Notaðu ep-
oxýlím til að líma smáhlutina í lokið.
Jólaskrautkúlurnar komnar á gluggasyllu
Frændurnir Daníel Tómasson 6 ára og Andri
Snær Helgason 7 ára föndra saman
Börnin í Funaborg
sitja fyrir svörum
Dagbjört Hanna Baldursdóttir
,Út af Jesú en ég veit ekki af
hverju.“
Hrafnhildur Lilja Andrésdóttir
,Af því Jesúbarnið fæddist, við
heyrðum það í kirkjunni."
fcxn mo.« *»»«*«“ :
,, ‘ntndrfiip poui.W' íoy
a rcðoVrív« rv‘" , , ]
"YYU>
‘VctvprA tv\ 6\>c»-vv>~/.vc*. •
Baci súkkulaðikossarnirfást (mismunandi umbúðum
sem henta til gjafa við öll tækifæri.
rktadnr heslilmetar, Dókkf rjœdamkknladi