blaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 66

blaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 66
66 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 blaðið Moondog Moondog er listamannsnafn Louis T. Hardins heitins (26. maí, 1916 - 8. september, 1999). Moondog er goösögn í tónlistarheiminum. Hann var blindur og heimilislaus en engu að síður þekktur að mörgum snilldarlegum og virtum tónverkum auk þess sem hann var afar frumlegur hljóðfærasmiður. Moondog átti sér sinn stað í djassborginni New York og stóð ávallt á horni 52. strætis þar sem hann flutti Ijóð og gjörninga. Sun Ra Sun Ra (22. maí 1914 - 30. maí, 1993) er einn af ásum djasstónlistarinnar. Hann er þekktur fyrir „astral" heimspeki sína jafnt sem framsækna djasstónlist. Sun Ra tók sér hlutverk sólkonungsins og sagðist koma sem frelsandi engill úr geimnum (frá Satúrnusi). Þekktasta lag hans inniheldur þennan texta: „Nuclear bomb is a mother fucker, if you push the button your ass has got to go!" Hvítir menn krumpa ekki -Dansað á götum L.A. í staðinn fyrir að slást og drepa Krump er form af dansi sem á rætur aö rekja til afrísk-amerísks samfélags í suðurhluta Los Ange- les í Kaliforníu og má telja til nokkurs konar hreyfingar. Dans- formið er frjálst og orkumikið og er ætlað til að tjá mismunandi tilfinningar. Fyrir þá sem þekkja ekki til lítur krumþ stundum út sem áflog en slíkt er sjaldgæft og krumþdansari sem getur haft aga og sjálfstjórn til að ráðast ekki á mótdansara/mótherja og snerta hann nýtur mestrar virðingar. Krump er skammstafað (K.R.U.M.P); Kingdom Radically Uplifted Mighty Praise, sem mætti þýða á íslensku sem róttækur, konunglegur lofdans. kvikmynd Davids LaChapelle, Rize, er krumpdansinn megin- efnið og með sýningu myndar- innar hefur dansinn náð gríð- armiklum vinsældum um allan heim. Krumpdansinn máeinnig sjá í vídeói Missy Elliott’s, l’m Really Hot, og Madonna frumpa í músíkvídeói sínu við Hung Up og Sorry (hvítir menn krumpa ekki, þeir frumpa!) og svo er auðvitað hið fræga vídeó The Chemical Brothers’ Galvanize. ■ iT:J •] 1) (l| 11 B-'J [«111 rfcS Jíöpí Dönsuðu af götunni á svið PAPPIR HF PAPPÍR - POKAR - RÚLLUR Sérprentanir í minni eða stærri upplögum! Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfiröi • Sími: 5652217 • pappir@pappir.is FYRIRTÆKI - VERSLANIR JÓLAPOKAR Stórkostlegt úrval! Semn, 'ng! www.pappir.is Raunveruleikaþátturinn So You Think You Can Dance sló í gegn á Is- landi sem og annars staðar í heimin- um. Þættirnir voru fyrst sýndir síð- asta sumar og eru svipaðir að gerð og American Idol og Americas Next Top Supermodel-keppninni að gerð en leit er gerð að næstu dansstjörnu um gervöll Bandaríkin. Keppendur sem eru valdir til þátt- töku eru afar mismunandi, allt frá óþekktum og sjálflærðum götudöns- urum til atvinnumanna og sigurveg- ara alþjóðlegra danskeppna. So You Think You Can Dance var allra vinsælasti þáttur síðasta misseris og þriðju þáttaraðarinnar er beðið með eftirvæntingu en hún verður sýnd næsta sumar. Vinnings- hafinn Benji Schwimmer er 7 millj- ónum króna ríkari og hefur hlotið fasta stöðu í danssýningu Celine Dion í Las Vegas. Kötturinn Cat komst í rjómann Kynnir þáttanna, Cat Deeley frá Bretlandi. Hún er á þrítugasta ald- ursári, með sterkan breskan hreim og gífurlega hávaxin en hefur mik- inn sjarma til að bera sem hefur bor- ið Hollywood ofurliði síðustu miss- eri. Tilboðum rignir yfir hana. Cat Deeley byrjaði feril sinn sem fyrirsæta er hún var 16 ára í Bret- landi. Hún þótti fljótt hafa margt til brunns að bera og hafa bein í nefinu og áður en um langt leið var Cat komin á skjáinn í Bretlandi. Cat hefur síðan þá verið tískufyrirmynd kvenna í Bretlandi og unnið lengi við þáttastjórnun í bresku sjónvarpi áður en hún flutti til Bandaríkjanna í von um frekari frægð og frama. Cat Deeley fer eins og eldur í sinu um Hollywood og mun prýða for- síðu Vogue í fyrsta tölublaði ársins 2007. Leonardo DeCaprio eltist við hana án árangurs og nú er þetta há- vaxna nýstirni að hitta draumaprins Hollywood, George Clooney. Nasty Nigel Nigel Lythgoe, framleiðandi og dómari, byrjaði feril sinn sem dansari aðeins 10 ára gamall. Seinna varð hann dans- höfundur og starfaði við sjón- varpsþætti og kvikmyndir. Nigel er kallaður Nasty Nigel í sínu heimalandi Bretlandi en hann hefur komið að þáttastjórn fjölmargra raunveruleika- Klædd 1 versace-kjól Cat mætti til Emmy-verðlaun- anna í rauðum Versace- kjól með hálsfesti að verðmæti 250.000 dollarar. þátta þar í landi og er þaulvanur í dómarasætinu. Hann þykir hrein- skilinn og harðskeyttur en kemur þó stundum á óvart með óvæntri tilfinningasemi. Hin glaðværa Mary Murphy Hrossahlátur Mary hljómar um Hollywood og er hún glaðværust og fjörugust allra dómara. Hún er fagmanneskja innan dansheims- ins, hún starfar við að dæma dans, kenna dans og er farsæll atvinnu- dansari sem hefur unnið keppnir í samkvæmisdönsum á heimsvísu. Murphy er þekkt í Hollywood og hefur þjálfað ekki ómerkari stjörn- ur en Mary Steenburgen, Donnie Walhberg og Juliu Roberts fyrir hin ýmsu hlutverk. Stranga Mia Mia Michaels hefur starandi og íhugult augnaráð sem tekur kepp- endur á taugum því hún er afar gagn- rýnin og harðskey tt í dómarasætinu. Michaels er lykildómari og sér þörf á að sigta úr þá sem hún telur ekki eiga erindi til sigurs vegna þess að hún starfar sem danshöfundur við sýningu Celine Dion í Las Vegas en þangað stefnir einmitt vinningshaf- inn í von um frægð og frama. Mia hin stranga hefur unnið með listamönnum eins og Madonnu, Ric- ky Martin, Gloriu Estefan og Prince. Benji sigraði hjörtu Ameríku Vinningshafinn í ár var hinn geðþekki og ljúfi ólátabelgur Benji Schwimmer og bar hann sigur úr býtum eftir harða keppni við Travis Wallis. Benji er 22. ára og sérhæfir sig í samkvæmisdönsum. Hann hef- ur nú stofnað góðgerðasamtök sem J,.v kallast: „ Dancers Everywhere” ' ’ , fyrir munaðarlaus börn í Suð- | ur-Mexíkó en Benji fluttist U þangað á unglingsárunum . frá Cincinnati, Bandaríkjun- um. Benji er hugljúft góðmenni |i| Benji hefur stofnað góðgerða- samtök fyrir munaðarlaus börn t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.