Fréttablaðið - 28.04.2012, Page 73

Fréttablaðið - 28.04.2012, Page 73
KYNNING − AUGLÝSING28. APRÍL 2012 LAUGARDAGUR Borgarferðir sækja nú aftur í sig veðrið og mikil eftir-spurn er eftir rómantískum, sögulegum borgum í Evrópu,“ upplýsir Þorsteinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar, sem býður heillandi borgarferðir til Prag nú í maí og til Berlínar og Barcelona í haust. „Í stað verslunarferða áður vilja landsmenn nú fara í menningar- reisur til að upplifa áfanga staðina betur og því mætum við með auknu framboði skoðunarferða með reyndum fararstjórum,“ segir Þorsteinn sem ríður á vaðið með einstakri vorferð til Prag helgina 16. til 20. maí næstkomandi. „Þá förum við sérstaka forseta- ferð í tilefni af síðustu opinberu heimsókn Ólafs Ragnars Gríms- sonar á kjörtímabilinu. Forseta- hjónin verða um borð í vélinni og mun ferðafólkið strax upplifa höfð- inglegar móttökur heimamanna. Þá verður Íslandsstofa með skemmtilega kynningu á Íslandi í Prag og Andrea Gylfa dóttir treður upp með tékkneskum listamönn- um. Vitaskuld eru allir frjálsir ferða sinna, og geta upplifað róm- antískt vor í Prag sem er töfrandi borg og mikið augnayndi; full af menningu, listum og mannlífi.“ Þess má geta að forseta f lugið til Prag verður jómfrúrferð Ice- land Express en eftir það flýgur flugfélagið vikulega til tékknesku höfuð borgarinnar. Hausttöfrar Evrópu Þegar haustar stendur Úrval Útsýn fyrir spennandi helgar- ferðum til Berlínar og Barcelona, og áfram verður ferðaskrifstofan með borgar ferðir til enska strand- bæjarins Brighton sem stundum er kallaður Litlu-Lundúnir og til Dyflinnar, höfuðborgar Írlands. „Dyflinn er með líflegri borgum Evrópu og veitingahús, krár og ný- tísku hótel hafa lífgað upp á miðbæ Dyflinnar svo um munar. Borgin iðar af fjöri fyrir jafnt unga sem aldna og allir finna skemmtun, menningu og stemningu við hæfi. Þá nýtur hin undurfagra Brighton alltaf jafn mikilla vinsælda, og nú finnum við fyrir miklum áhuga á Berlín og Barcelona,“ segir Þor- steinn um þessar fjórar miklu menningarborgir. „Barcelona er hrífandi sólar- landaborg sem hefur verið fun- heit frá Ólympíuleikunum 1992 og alltaf slegist um hvert sæti. Þaðan er stutt í sjarmerandi, ná- læga strandbæi og borgin sjálf mjög lifandi með lokkandi mann- lífi og menningu,“ segir Þorsteinn um spænska djásnið Barcelona, en Berlín hefur ekki síður slegið í gegn hjá íslensku ferðafólki. „Þar er áhrifamikið að skoða ummerki Berlínarmúrsins og þær leifar sem eftir standa af að- skilnaði menningarheima vesturs og austurs í kalda stríðinu, en borgin sjálf er uppfull af lífsins dásemdum og sannarlega hægt að dekra við líkama og sál í fal- legri Berlín,“ segir Þorsteinn sem hefur heimsótt allar þessar borgir en hefur þó enga í dálæti umfram aðra. „Að bera þessar borgir saman er eins og að bera saman epli, appelsínu, banana og sítrónu. Allar eru þær ólíkir karakterar með stóran sjarma og hver þeirra sinn kaflinn í bókinni um heiminn, en allt borgir sem hver og einn ætti að upplifa á lífsleiðinni.“ Rómantískt vor og stórborgasjarmi Dregur hugurinn þig stundum til Prag, Dyflinnar, Berlínar, Barcelona eða Brighton? Úrval Útsýn er með freistandi tilboð á helgarferðum til fimm evrópskra heimsborga í vor, sumar og haust. Prag er talin með fegurstu borgum Evrópu og eru elstu hverfi hennar á heimsminjaskrá Unesco. Höfuðborgin er sú stærsta í Tékklandi, staðsett í miðju landsins og í gegnum hana rennur Moldá. Þorsteinn Guðjónsson er framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar. Hann segir Íslendinga nú þyrsta í menningarreisur í stað verslunarferða um stórborgir heims. MYND/STEFÁN BORGAR- FERÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI MEIRA Á urvalutsyn.is Ferðaskrifstofa á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með morgunmat. Brottför: 19. október. (Aðrar brottfarir í boði) 79.900kr.* BERLÍN Flug + gisting í 3 nætur frá: á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með morgunmat. Brottför: 18. október. (Aðrar brottfarir í boði) 97.900kr.* PRAG Fáðu tilboð fyrir hópinn þinn! Flug + gisting í 3 nætur frá: á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með morgunmat. Brottför: 22. nóvember. (Aðrar brottfarir í boði) 79.900kr.* BRIGHTON Flug + gisting í 3 nætur frá: á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli með morgunmat. Brottför: 1. nóvember. 89.900kr.* DUBLIN Flug + gisting í 4 nætur frá: * In ni fa lið : F lu g , s ka tt ar , g is ti ng o g ís le ns k fa ra rs tj ór n (h áð lá g m ar ks þ át tt ök u) . V er ð m ið as t vi ð að b ók að s é á ne ti nu . P re nt að m eð f yr ir va ra u m v ill ur .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.