Fréttablaðið - 23.08.2012, Side 27

Fréttablaðið - 23.08.2012, Side 27
LITRÍKAR TÖSKUR Svart leður verður mikið í tísku í haust og vetur, hvort sem er í skyrtum, kjólum, úlpum eða kápum. Hins vegar verða litríkar töskur áberandi og þar er allt leyfilegt; gult, grænt, appelsínugult eða blátt. Við erum að sprengja utan af okk-ur hér í Firði og þurfum stærra húsnæði,“ segir Gunnar Már Levísson kaupmaður sem nú er með lokaútsölu í þremur verslunum sínum í Hafnarfirðinum, Herra Hafnarfirði, Mind Extra og Mind Extra Outlet. Nýja búðin í Smáralind opnar þann 31. ágúst næstkomandi og verður þar sem Joe Boxer var áður. „Þetta eru í raun tvær búðir í einni. Herra Hafnar- fjörður verður öðrum megin og Mind Extra hinum megin. Ég tek upp glænýja Bertoni-jakkafatalínu fyrir herrana og verð með ný merki í dömulínunni í Mind Extra. Það verður allt klárt þegar við opnum og hjá okkur geta bæði kon- ur og karlar á öllum aldri fundið það sem þau vantar.“ Gunnar hefur rekið Herra Hafnarfjörð í sautján ár og hefur gengið í gegnum ýmislegt. „Þetta hefur verið skemmti- legur tími. Þess er helst að minnast þegar allir allsberu strákarnir komu hér upp rúllustigann þegar ég bauð ókeypis jakkaföt fyrir þá sem þorðu að koma naktir. Gunnar í Krossinum bað fyrir mér og sjónvarpið mætti því þessi uppákoma fékk mikla athygli. Svo hefur lögreglan ætlað að handtaka mig tvisvar. Það var þegar ég gaf bjórkippu með hverjum seldum jakkafötum og menn héldu að ég væri með fullt af bjór á lager. Ég er alltaf að reyna að finna upp einhver trix og það er aldrei að vita hvað ég geri í Smáralindinni. Ég er opinn fyrir öllu og fólk getur átt von á hverju sem er þegar ég verð kominn þangað.“ Gunnar segist ekki vita hvað hann geri með húsnæðið í Firðinum sem bráðum stendur autt en það er í hans eigu. „Nú einbeiti ég mér að opnuninni í Smáralind þar sem verður mikið um dýrðir. Ég gef samt ekkert upp hvað ég geri í tilefni opnunarinnar en lofa að þetta verður gert með pompi og prakt.“ FLYTUR Í SMÁRALIND HERRA HAFNARFJÖRÐUR KYNNIR Gunnar Már Levísson, kaupmaður í Herra Hafnarfirði, hyggur á flutninga og verður ef til vill orðinn að Herra Smáralind áður en langt um líður. Nýja verslunin opnar þann 31. ágúst. HERRA HAFNAR- FJÖRÐUR Verslunin flytur úr verslunarmið- stöðinni Firði eftir 17 ára veru í Hafnarfirð- inum. Ný verslun opnar í Smáralind þann 31. ágúst næstkomandi. MYND/VALLI Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Rodalon sótthreinsun • Gegn myglusveppi • Eyðir lykt úr fatnaði teg 3451 - fóðraður með sérlega mjúku efni, fæst í C,D,E skálum á kr. 5.800,- buxur í stíl á kr. 1.995,- Yndislega mjúkur Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. Lokað á laugardögum í sumar SUMAR ÚTSALA Gerið gæða- og verðsamanburð SAGA/FREYJA OG ÞÓR Hágæða heilsudýnur Queen rúm nú aðeins kr. 179.900 20-50% AFSLÁTTUR Lök, sængurverasett, heilsukoddar, viðhaldskoddar, gaflar, náttborð, teppasett og fleira. ÚRVAL STILLANLEGRA HEILSURÚMA 12 mánaða vaxtalausar greiðslur* SAGA/FREYJA Queen rúm, nú aðeins 129.900 ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900 PROFLEX 2x80x200 339.900 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.