Fréttablaðið - 23.08.2012, Blaðsíða 58
23. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR46
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Aron Kristjánsson var
í gær ráðinn þjálfari íslenska
karlalandsliðsins til ársins 2015.
Sú ráðning kom fáum á óvart enda
hefur það legið í loftinu lengi að
Aron tæki við liðinu.
Hinn sigursæli þjálfari Hauka
fær það verðuga verkefni að feta
í fótspor Guðmundar Guðmunds-
sonar sem náð hefur sögulegum
árangri með íslenska landslið-
ið. Ásamt því að þjálfa landslið-
ið mun Aron þjálfa Haukaliðið
næsta vetur en láta svo af störf-
um til þess að einbeita sér alfarið
að störfum fyrir HSÍ.
„Viðræður hófust fyrri part
sumars þegar það lá fyrir að Guð-
mundur myndi hætta. Viðræður
fóru svo almennilega í gang eftir
því sem leið á sumarið, gengu vel
og við kláruðum þetta dæmi rétt
fyrir Ólympíuleikana,“ sagði Aron
en hann mun láta af einu af tveim-
ur störfum sínum þar sem hann er
farinn að þjálfa landsliðið.
Aron átti tvö ár eftir af samn-
ingi sínum við Hauka en mun
aðeins klára eitt ár. Hann segir að
Haukar hafi ekki verið ánægðir
með það.
„Þeir skildu ekki af hverju ég
gat ekki sinnt báðum störfum
áfram. Ég er aftur á móti að fara
að vinna að uppbyggingu hand-
boltans fyrir HSÍ en sú uppbygg-
ing þarf að fara að gerast.“
Þarf að efla þjálfaramenntun á
Íslandi
Það hefur oft verið talað um að
gera hitt og þetta í uppbyggingu
handboltans á Íslandi en oftar
en ekki lítið gerst. Hvað þarf
nákvæmlega að gera til þess að
tryggja að framtíð íslenska lands-
liðsins verði áfram björt?
„Við þurfum fyrst og fremst að
efla þjálfaramenntun og fá fleiri
þjálfara. Sú vinna er þegar farin
í gang. Afreksstefnan utan um
efnilega leikmenn þarf að vera í
lagi og vinna með félögunum. Það
þarf að vinna í líkamlega þættin-
um og þar höfum við oft setið eftir.
Það þarf að byrja fyrr markvisst í
þeim efnum.
Svo er það andlegi hlutinn líka
sem þarf að vinna í en gleymist
oft. Það er hellingur sem þarf að
gera hér á landi og ég hef talað
fyrir þessu síðustu ár. Nú hef ég
tækifæri til þess að gera eitthvað
í málunum.“
Aron hefur áður lýst því yfir í
viðtölum að það væri hans draum-
ur að fá að þjálfa íslenska lands-
liðið.
„Ég held að flesta þjálfara
dreymi að þjálfa landslið sinnar
þjóðar. Ég er engin undantekning
frá því. Ég er ánægður og mjög
stoltur að fá tækifæri til þess að
stýra íslenska landsliðinu,“ sagði
Aron en óttast hann ekkert að taka
við af Guðmundi eftir allan þann
árangur sem náðst hefur?
„Það þýðir ekkert að velta því
fyrir sér. Guðmundur og þjálfara-
teymið stóð sig mjög vel sem og
liðið. Það er samt skammt stórra
högga á milli. Við höfum verið að
vinna til verðlauna og svo lenda í
því að nánast detta úr riðlakeppni
á næsta móti. Samkeppnin er gríð-
arlega hörð í alþjóðaboltanum og
það má lítið út af bregða svo hlut-
irnir fari á verri veg. Þegar allt
smellur eigum við möguleika að
vera á meðal þeirra allra fremstu.“
Aron segist ekki vita, frekar en
aðrir, hvort Ólafur Stefánsson sé
hættur í landsliðinu eða í hand-
bolta yfir höfuð. Leikmenn eins og
Guðjón Valur Sigurðsson hafa svo
gefið í skyn að þeir ætli jafnvel að
draga sig úr landsliðinu.
„Ég bind vonir við að flestir leik-
manna liðsins muni halda áfram.
Mitt fyrsta verkefni er að heyra í
strákunum og vonandi bjóða allir
leikmenn áfram fram krafta sína.
Ég mun leggja áherslu á það. Ætl-
unin er að byggja á þessum góða
grunni en það verða einhverj-
ar áherslubreytingar með nýjum
þjálfara,“ sagði Aron en hverju
ætlar hann að breyta?
„Þegar tími gefst til verðum við
að bæta við einni varnaraðferð til
þess að auka fjölbreytileikann og
vera með sterkara vopnabúr. Ég
fer í það að leikgreina liðið núna
og við sjáum svo hvað setur.“
Þarf að minnka bilið á milli góðu
og efnilegu leikmannanna
Það styttist í kynslóðaskipti hjá
landsliðinu. Margir af bestu lands-
liðsmönnum í sögu þjóðarinnar
munu líklega hætta á næstu árum.
Hvernig blasir framtíðin eftir það
við Aroni?
„Á næstu fimm árum verða ein-
hver kynslóðaskipti. Það hefur
orðið mikið bil á milli leikmanna
landsliðsins síðustu ár, sem eru
allt heimsklassamenn, og svo
þeirra sem eru þar fyrir aftan.
Það þarf að reyna að minnka bilið
með því að finna verkefni fyrir
þessa menn. Á einhvern hátt þarf
að stytta leiðina og gera endurnýj-
unina markvissari,“ sagði Aron
en á Ísland nógu góða leikmenn til
þess að halda landsliðinu í fremstu
röð næstu tíu ár?
„Það eru efnilegir strákar að
koma upp og spurning er hvernig
menn halda á spöðunum. Það er
eitt að vera efnilegur og annað að
taka þetta alla leið og verða betri.
Það krefst mikillar vinnu og það
er spurningin. Íslenskir atvinnu-
menn eru þó vinsælir út af vinnu-
semi og hugarfari. Við verðum
að vinna markvisst niður á við til
þess að minnka bilið og styrkja
ungu mennina,“ sagði Aron Krist-
jánsson. henry@frettabladid.is
GRÉTAR RAFN STEINSSON samdi í gær til tveggja ára við Kayserispor og verður því þriðji Íslendingurinn sem reynir
fyrir sér í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Atli Eðvaldsson spilaði með Genclerbirligi 1989–1990 og Eyjólfur Sverrisson varð
meistari með Besiktas 1994-1995. Kayserispor er frá Kayseri í miðju Tyrklandi. Liðið varð í 11. sæti á síðustu leiktíð og vann
sinn eina meistaratitil fyrir 39 árum en varð bikarmeistari í fyrsta og eina skiptið 2008.
Vonandi bjóða allir
leikmenn áfram fram
krafta sína. Ég mun leggja
áherslu á það.
ARON KRISTJÁNSSON
LANDSLIÐSÞJÁLFARI
Ætlar að byggja á góðum grunni
Nýráðinn þjálfari karlalandsliðsins í handbolta, Aron Kristjánsson, ætlar sér ekki að gera róttækar
breytingar á landsliðinu enda geti hann byggt ofan á góðan grunn frá Guðmundi Guðmundssyni. Aron
vonast til þess að flestir leikmanna landsliðsins haldi áfram að spila. Hann samdi fyrir Ólympíuleikana.
DRAUMUR AÐ RÆTAST Aron segir draum vera að rætast hjá sér. Hann er stoltur að fá
tækifæri til þess að stýra íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Óskar Bjarni Óskarsson
hefur verið aðstoðarlandsliðsþjálf-
ari Guðmundar Guðmundssonar
síðustu fjögur ár. Hann ákvað að
láta af því starfi eftir Ólympíuleik-
ana. Fannst það góður tímapunkt-
ur þar sem hann var þess utan að
taka að sér spennandi þjálfara-
starf í Danmörku.
Óskari Bjarna hefur nú snú-
ist hugur og flest bendir til þess
að hann verði aðstoðarlandsliðs-
þjálfari Arons Kristjánssonar.
Þegar er búið að ganga frá því að
Gunnar Magnússon verði áfram í
þjálfarateyminu en HSÍ vill halda
bæði Gunnari og Óskari Bjarna
enda hafi þeir staðið sig vel og eru
í metum hjá leikmönnum liðsins.
„Ólympíuleikarnir áttu að vera
endapunktur. Ég verð samt að við-
urkenna að mig langar til þess að
vera í kringum þetta. Mig langar
að vera með Aroni og strákunum
og reyna að púsla þessu öllu saman
hjá mér,“ sagði Óskar Bjarni en
hann hefur virkilega notið þess að
vinna með landsliðinu.
„Það eru forréttindi að starfa
með landsliðinu og því erfitt að
hætta. Þetta er það skemmtilegt
og gefandi.“
Knútur Hauksson, formaður
HSÍ, sagði á blaðamannafundi í
gær að reynt hefði verið að ganga
frá málunum í gær en það hefði
ekki gengið upp alveg strax.
„Það eru talsverðar líkur á því
að þetta gangi upp. Það eru allir
að vinna í því að láta málið ganga
upp. Ég er bjartsýnn á að það
gangi eftir.“ - hbg
Óskar Bjarni Óskarsson verður væntanlega áfram aðstoðarlandsliðsþjálfari í handknattleik:
Það eru forréttindi að starfa með landsliðinu
GÓÐUR Á BEKKNUM Samstarf Óskars
Bjarna og Guðmundar var mjög farsælt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI FH tekur á móti KR í
16. umferð Pepsi-deildar karla
í fótbolta í kvöld og getur með
sigri náð átta stiga forskoti á KR
á toppi deildarinnar auk þess að
eiga leik inni á Íslands- og bikar-
meistarana úr Vesturbænum.
FH-ingar hafa notið góðs af
tveimur deildartöpum KR í röð
auk slæmu gengi Vesturbæinga á
útivelli. KR-ingar hafa aðeins náð
í samtals tvö stig í síðustu fjórum
útileikjum og þurfa að breyta því
ætli þeir að halda titilvörninni á
lífi.
Guðjón Árni Antoníusson,
hægri bakvörður FH-liðsins,
hefur verið óstöðvandi í und-
anförnum heimaleikjum FH í
deildinni og getur skorað í fjórða
heimaleiknum í röð í kvöld. Guð-
jón Árni er með fimm mörk og
eina stoðsendingu í undanförnum
þremur leikjum sínum í Krikan-
um og sjötta mark hans í sumar
kom á gamla heimavelli hans í
Keflavík.
Það má því búast við því að
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
geri ráðstafanir til að verjast
Guðjóni Árna í kvöld en leikurinn
hefst klukkan 18.00 og er í beinni
útsendingu á Stöð 2 Sport. - óój
Guðjón Árni Antoníusson:
Sjóðheitur í
Krikanum
GUÐJÓN ÁRNI Langmarkahæsti varnar-
maður Pepsi-deildarinnar með 6 mörk.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Ekki er útlit fyrir að
Eggert Gunnþór Jónsson fái að
spila mikið verði hann áfram hjá
enska B-deildarliðinu Wolves.
Núverandi stjóri liðsins, Ståle
Solbakken, virðist ekki ætla að
nota hann mikið.
„Ég hef ekki fengið þau skila-
boð að ég verði að finna mér nýtt
félag. Mér er velkomið að vera
áfram og berjast um sæti í liðinu.
En líklega væri best fyrir mig að
fara annað og hefur félagið sagt
að það komi aðeins til greina að
lána mig,“ sagði hann við Frétta-
blaðið.
Hann segir að honum lítist
betur á að fara annað til að spila
fremur en að verma varamanna-
bekkinn hjá Wolves, ekki síst með
tilliti til íslenska landsliðsins.
„Ég ætla að sjálfsögðu að reyna
að berjast um sæti í landsliðinu.
Nú er ný keppni að byrja og ríkir
mikil samkeppni um stöður í lið-
inu. Ég þarf því að spila vel til að
komast í landsliðið.“ - esá
Eggert Gunnþór Jónsson:
Bara lán kemur
til greina
EGGERT GUNNÞÓR Kom til Wolves í
janúar. NORDIC PHOTOS/AFP