Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 34
arna
AUGLÝSING: OROBLU, L’ORÉAL OG ELLA KYNNA
Línan frá Oroblu var mjög skemmtileg, falleg mynstur og litir sem falla
að vetrartískunni. Línan kom einstaklega vel út við hönnun ELLA.
Nýja haust/vetrarlínan 2012 frá ELLA gengur undir nafninu V fyrir Victory. Hluti af ferlinu hjá ELLA við að þróa og skapa nýjar
línur fyrir hverja árstíð hefst með því að hún velur sér sköpunargyðju sem veitir innblástur við hönnunina. Sköpunar- og lista-
gyðja ELLA að þessu sinni var leikkonan Lauren Hutton og hennar líflegi og kjarkmikli karakter. Línan færir okkur því aftur til
tíma stríðsáranna. Eins og alltaf þá er einungis unnið með gæðaefni og í ár voru kynnt efni frá ítalska hágæðafyrirtækinu Loro
Piana. Litir línunnar í ár eru djúp-órans, túrkis, svartur, ljósbrúnn og kamel.
Elínrós Líndal var listrænn stjórnandi kvöldsins og Sóley Kristjánsdóttir gestgjafi.
Kvöldið hófst með glæsilegri tískusýningu þar sem Elite-stúlkurnar, sem keppa
um Elite Model Look 2012, sýndu glæsilegan fatnað úr haust- og vetrarlínum
ELLA og OROBLU. MYNDIR/ALDÍS PÁLSDÓTTIR
HÚSFYLLIR Á HAUSTKYNNINGU
Mikil stemning og eftirvænting ríkti er ELLA, Oroblu, Grand Marnier og L‘Oréal fögnuðu haustinu
saman og frumsýndu haustlínur sínar í Ölgerðinni síðastliðinn fimmtudag. Gestir troðfylltu húsið.
Sokkabuxurnar
frá OROBLU eru
þægilegar og
fallegar