Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 2
28. september 2012 FÖSTUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn skoð-
ar nú hvort hann geti gert athuga-
semdir við kjör slitastjórnar Glitn-
is. Kröfuhafar ákveða kjörin og
bankinn er einn þeirra. Fjármála-
ráðherra ræddi við seðlabanka-
stjóra í gær um málið, samkvæmt
upplýsingum frá Seðlabankanum.
Líkt og fram hefur komið fékk
slitastjórnin 348 milljónir króna í
laun á síðasta ári.
Þráinn Bertelsson, þingmaður
Vinstri grænna, spurði Jóhönnu út
í laun slitastjórnarinnar. „Eru slita-
stjórnir og skilanefndir ríki í rík-
inu sem ráða sér sjálf og við höfum
ekkert yfir að segja?“
Jóhanna sagði málið hafa verið
tekið upp nokkrum sinnum í ríkis-
stjórn, nú síðast fyrir stuttu.
„Þá fjölluðum við um málið og
ákváðum að fjármálaráðherra
færi þess á leit við Seðlabankann að
hann nýtti rétt sinn sem kröfuhafi
til að gera athugasemdir við þessi
yfirgengilegu ofurlaun slitastjórna.
Mér finnst eðlilegt að Seðlabankinn
sem er þarna með kröfur geri það.“
Jóhanna sagði að sér ofbyðu
kjörin og þau væru hneykslunar-
efni. „Því miður er þetta í höndum
kröfuhafanna og þykja víst ekki há
laun á mælikvarða erlendis þó að
okkur þyki þetta algjörlega yfir-
gengilegt.“ Launin lendi þó ekki á
skattgreiðendum. - kóp
Forsætisráðherra ofbýður kjör slitastjórnar Glitnis sem séu hneykslunarefni:
Seðlabankinn skoði kjör slitastjórnar
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
ÞRÁINN
BERTELSSON
DANMÖRK Kínverski auðjöfur-
inn Huang Nubo hefur áhuga á
að reisa skemmtigarð helgaðan
ævintýraskáld-
inu H.C. And-
ersen í Óðins-
véum.
Sendinefnd
frá fyrirtæki
hans og kín-
verskum fjár-
festingarbanka
var nýverið í
Óðinsvéum að
kanna mögu-
leikana. Borgaryfirvöld tóku að
sér að senda til Kína gögn, þýdd
á kínversku, um byggingarmögu-
leika í Óðinsvéum.
Danska blaðið Fyens Stifts-
tidende skýrði frá þessu. Haft
er eftir borgarstarfsmönnum
að sendinefndin hafi verið afar
áhugasöm. - gb
Huang kannar Danmörku:
Vill reisa garð
í Óðinsvéum
HUANG NUBO
LÖGREGLUMÁL „Þetta er eitt stærsta
mál sem við höfum unnið að,“
segir Karl Steinar Valsson, yfir-
maður fíkniefnadeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, um
mál átta Íslendinga og fjögurra
annarra sem nú sitja inni í Kaup-
mannahöfn og Noregi.
Mennirnir eru taldir hafa stýrt
fíkniefnasmygli um alla Evrópu,
meðal annars til Íslands, í árarað-
ir. Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá dönsku lögreglunni í gær
voru þeir handteknir á löngu tíma-
bili, sá fyrsti í ágúst og þeir síð-
ustu á mánudaginn. Í fórum nokk-
urra þeirra fundust samtals 34
kíló af amfetamíni og 600 grömm
af e-töflum.
„Aðgerðirnar eru byggðar á
íslenskri rannsókn sem hófst fyrir
rúmlega ári,“ segir Karl Steinar.
„Forræðið var hjá okkur í upphafi
en færðist síðan yfir til Dananna
í maí þegar ákveðið var að stoppa
atburðarásina þar.“
Í tilkynningu dönsku lög-
reglunnar er haft eftir Steffen
Thanning Steffensen, yfirmanni
hjá lögreglunni, að þeim hafi fljótt
orðið ljóst að höfuðpaurinn í mál-
inu væri 38 ára gamall Íslendingur
sem var búsettur á Spáni.
Þar er átt við Guðmund Inga
Þóroddsson, sem hlaut sjö og fimm
ára fangelsisdóma fyrir fíkniefna-
smygl hérlendis árin 2000 og 2002.
Sjö aðrir Íslendingar eru í haldi,
þar af einn í Noregi. Einn Íslend-
inganna hefur verið búsettur í Síle,
en meðal hinna handteknu er einn-
ig Sílebúi með franskan ríkisborg-
ararétt. Þrír hinna handteknu eru
Danir.
„Við teljum að þessi hópur hafi
ve r i ð mj ö g
umfangsmik-
ill í meðhöndl-
un fíkniefna,
sölu þeirra og
dreifingu í Evr-
ópu á undan-
förnum árum,
þar á meðal á
Íslandi,“ segir
Karl Steinar. „Á
þessu stigi er
það meðal þess
sem er rannsakað hvert þessi til-
teknu fíkniefni áttu að fara. Það
er á ábyrgð Dananna að leiða það í
ljós, en við vinnum með þeim í því
eins og við getum.“
Amfetamínið sem fannst var
mjög sterkt, að sögn Karls, og auð-
velt hefði verið að drýgja það að
minnsta kosti þrefalt fyrir götu-
sölu. Þá hefði götuvirði þess verið
rúmlega hálfur milljarður.
Í sumar var Sverrir Þór
Gunnars son, kallaður Sveddi
tönn, handtekinn í Rio de Janeiro
í Brasilíu. Hann hafði lengi verið
grunaður um að hafa staðið fyrir
reglulegu og miklu smygli á fíkni-
efnum til Íslands.
Með því og þessu nýja máli seg-
ist Karl Steinar telja að tekist hafi
að loka tveimur af helstu smygl-
leiðunum til Íslands. „Við höfum
einsett okkur að knésetja þá brota-
hópa sem við teljum að hafi unnið
á Íslandi og það hafa verið ansi
stór og þung skref stigin í því.“
stigur@frettabladid.is
Grunaðir um smygl
til Íslands í áraraðir
Mál Íslendinganna sem sitja inni í Danmörku og Noregi er eitt það stærsta sem
íslenska fíkniefnalögreglan hefur fengist við frá upphafi. Tveimur helstu smygl-
leiðunum til Íslands lokað með handtöku Svedda tannar og Danmerkurhópsins.
VANDLEGA FALIÐ Hluti amfetamínsins var vel falinn undir sætum bíls sem einn
hinna grunuðu ók til Danmerkur í ágúst. MYND/DANSKA LÖGREGLAN
KARL STEINAR
VALSSON
Dagur, þarf að fyllast nagandi
ótta yfir útbreiðslu kanína?
„Nei, ekki á meðan þær fjölga sér
ekki eins og kanínur.“
Langstærsti hluti kanínustofnsins hér-
lendis er í landi Reykjavíkur, þar af eru 85
prósent í Elliðaárdal. Dagur B. Eggertsson
er formaður borgarráðs.
STJÓRNSÝSLA Tveir stórir kassar með gögnum sem
tengjast Guðmundar- og Geirfinnsmálinu fundust
nýverið fyrir tilviljun á Þjóðskjalasafninu. Gögnin
voru færð starfshópi innanríkisráðuneytisins sem
hefur haft til skoðunar hvort til-
efni sé til endurupptöku málsins.
„Þetta eru gögn frá lögreglu og
sakadómi sem tilheyrðu málinu
á sínum tíma. Við í starfshópn-
um höfðum ekki haft hluta þeirra
undir höndum áður og það er
þannig í svona vinnu að öll gögn
koma að gagni við að raða saman
heildarmyndinni,“ segir Arndís
Soffía Sigurðardóttir, formaður
starfshópsins.
Kassarnir fundust í júlí síðast-
liðnum og hefur starfshópurinn haft þau til yfir-
ferðar í nokkrar vikur. Er þeirri vinnu að mestu
lokið en starfshópurinn hefur frest til 1. nóvember
til að skila skýrslu um vinnu sína.
Arndís Soffía segir að vinnu starfshópsins miði
vel. „Hitt er annað mál að þegar við erum að fá í
hendurnar gögn eins og þessi seint í þessu ferli þá
getur það seinkað vinnunni. Ég get því ekki útilokað
að við þurfum að biðja um lengri frest til að klára
vinnuna,“ segir Arndís. - mþl
Talsvert magn gagna um Guðmundar- og Geirfinnsmálið fannst fyrir tilviljun:
Fundu gögn um Geirfinnsmál
ÞJÓÐSKJALASAFNIÐ Gögnin fundust fyrir tilviljun í Þjóðskjala-
safninu í júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ARNDÍS SOFFÍA
SIGURÐARDÓTTIR
Þjálfun sjómanna í lagi
Lokið er úttekt fulltrúa Siglingaörygg-
isstofnunar Evrópu á stjórnsýslu og
framkvæmd Íslands á tilskipun Evr-
ópusambandsins um lágmarksþjálfun
sjómanna. Niðurstöður hennar eru að
fyrirkomulag menntunar og þjálfunar
hér á landi sé í meginatriðum gott.
ÖRYGGISMÁL
STJÓRNSÝSLA Forseti Íslands hefur
fallist á tillögu innanríkisráð-
herra um að skipa þá Benedikt
Bogason, dómstjóra og settan
hæstaréttardómara, og Helga
I. Jónsson, dómstjóra í embætti
tveggja hæstaréttardómara frá
og með 1. október næstkomandi.
Samdóma niðurstaða dóm-
nefndar var sú að þeir Benedikt
Bogason og Helgi I. Jónsson væru
hæfastir umsækjenda til að hljóta
embættin. Embættin voru auglýst
hinn 5. júlí síðastliðinn og bárust
sjö umsóknir. - shá
Benedikt og Helgi hæfastir:
Tveir skipaðir
við Hæstarétt
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur stað-
festi í gær farbannsúrskurð yfir
nuddara sem talinn er hafa nauðg-
að viðskiptavini sínum í lok júní.
Konan leitaði til mannsins
vegna vandamála í mjóbaki. Í
farbannsúrskurðinum segir að
hann hafi látið hana klæða sig úr
nærbuxunum og leggjast á nudd-
bekkinn. Hann hafi síðan nuddað
óþægilega nálægt kynfærum og
að lokum stungið fingri inn í leg-
göngin.
Hann sagðist við yfirheyrslu
hafa beitt tækni sem hann taldi
að mundi gagnast konunni. Fing-
urinn hefði óvart runnið inn.
Maðurinn er íslenskur en hefur
búið erlendis og er því talin hætta
á að hann flýi land. Hann er í far-
banni til 16. október. - sh
Talinn geta flúið úr landi:
Nuddari í far-
bann grunaður
um nauðgun
LANDBÚNAÐUR Matsmenn á vegum
almannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra fór um liðna helgi um
svæðið frá Húnaþingi í vestri og
austur í Þingeyjarsýslur til að
meta ástand og þörf fyrir aðgerð-
ir til að finna og bjarga sauðfé
eftir norðanáhlaupið nýlega, eins
og segir í tilkynningu.
Björgunarsveitarfólk mun um
helgina aðstoða bændur við leit
og björgun sauðfjár í Skagafirði
og Þingeyjarsýslum. Horfur eru
á að um eða yfir 100 manns muni
taka þátt í þessum aðgerðum. Þá
mun þyrla Landhelgisgæslunnar
flytja leitarmenn til fjalla ef viðr-
ar til flugs. - shá
100 manns taka þátt í leit:
Leitað áfram
um helgina
Júlli í Draumnum dæmdur
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
héraðsdóms yfir Júlíusi Þorbergssyni
en hann var fundinn sekur um að
hafa selt lyfseðilsskyld lyf og fíkniefni
í verslun sinni Draumnum á árunum
2008 og 2009. Héraðsdómur dæmdi
Júlíus í tólf mánaða fangelsi.
DÓMSMÁL
HAMFARIR Margt sauðfé fór illa í veður-
hamnum. MYND/EGILL