Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 54
28. september 2012 FÖSTUDAGUR30 30
popp@frettabladid.is
Heimildarmynd um ráð-
stefnuna Comic Con í
Bandaríkjunum verður
sýnd á Riff-hátíðinni í ár.
Leikstjórinn Morgan Spur-
lock skemmti sér mjög vel
við gerð hennar.
Nýjasta heimildarmynd Banda-
ríkjamannsins Morgans Spur-
locks nefnist Comic Con Episode
IV: A Fan´s Hope og verður hún
sýnd á Riff-hátíðinni í ár. Í henni
er fjallað um hina árlegu Comic
Con-ráðstefnu í San Diego sem
laðar að sér fjölmarga aðdáendur
teiknimyndasagna á hverju ári.
Spurlock var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir heimild-
armyndina Super Size Me sem
fjallaði um hamborgarakeðj-
una McDonald´s. Hann kom síð-
ast hingað til lands í fyrra þegar
hann kynnti The Greatest Movie
Ever Sold sem fjallaði um auglýs-
ingamennsku í sjónvarpi og kvik-
myndum. Í þetta sinn kemst hann
ekki til Íslands til að kynna nýju
myndina vegna mikilla anna.
Spurlock segist alla tíð hafa
verið mikill aðdáandi teikni-
myndasagna, hryllingsmynda og
ofurhetjumynda. Þegar hann fór
fyrst á Comic Con-ráðstefnuna
árið 2009 komst hann að því að
hún uppfyllti öll þessi áhugamál
hans. „Comic Con hefur fengið á
sig slæmt orðspor. Fólk heldur að
ráðstefnan sé uppfull af nördum
sem búa í kjallaranum hjá for-
eldrum sínum. Í rauninni er mjög
fjölbreyttur hópur fólks sem sækir
hana,“ segir hann.
Um 150 þúsund manns mæta á
Comic Con á hverju ári þar sem
mikið er um dýrðir. Við gerð
myndarinnar tók Spurlock viðtöl
við um 150 manns, þar á meðal
leikarann Seth
Rogen og
leikstjórann Kevin Smith. Einn-
ig var tíu manneskjum fylgt eftir
sem mættu á ráðstefnuna. „Það
var virkilega gaman að gera þessa
mynd. Þegar maður horfir á hana
áttar maður sig á hversu mikil
alvara er á bak við þetta hjá fólki.
Það mætir ekki endilega þangað
til að fá eiginhandaáritanir. Það
er mætt til að finna sinn sess í líf-
inu, koma sér á framfæri eða finna
makann sinn. Einn náungi ætlar að
biðja um hönd kærustunnar sinn-
ar. Mun hún segja „nei“?,“ spyr
Spurlock. „Annar er að leita að
ákveðnu leikfangi. Mun hann finna
það? Það er margt skemmtilegt
sem gerist í myndinni sem allir
geta tengt sig við.“
Næsta verkefni þessa áhuga-
verða kvikmyndagerðarmanns er
sjónvarpsþáttaröð fyrir CNN sem
er framleidd í Bandaríkjunum en
verður sýnd um allan heim. Hún
fjallar um félagsleg vandamál í
Bandaríkjunum en líka um hvaða
áhrif þau hafa á allan heiminn.
freyr@frettabladid.is
Comic Con ekki bara fyrir
nörda sem búa í kjallara
AÐDÁANDI TEIKNIMYNDASAGNA Leikstjórinn Morgan Spurlock hefur verið aðdáandi
teiknimyndasagna frá unga aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Verslunin Nexus er sérstakur bakhjarl sýningar á myndinni og eru allir hvattir til að mæta í
búningi á sérstaka búningasýningu hennar í kvöld. Eftir sýninguna verður svokallað Q&A þar
sem gestir geta fræðst frekar um ráðstefnuna.
Einn þeirra sem ætlar að mæta á sýninguna er borgarstjórinn Jón Gnarr í gervi Obi-Wan
Kenobi úr Star Wars. „Það er ótrúlega fyndið,“ segir Spurlock og hlær þegar blaðamaður
lætur hann vita af uppátæki Jóns. „Ég vildi óska að ég gæti verið á staðnum til að sjá
þetta. Það er mikil synd að ég kemst ekki.“
SYND AÐ SJÁ EKKI JÓN GNARR Í GERVI OBI-WAN
Bíó ★★★★ ★
Queen of Montreuil
Leikstjóri: Sólveig Anspach.
Leikendur: Florence Loiret Caille, Didda Jónsdóttir, Úlfur Ægisson,
Eric Caruso. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík 2012 – opnunar-
mynd.
Franska ekkjan, sæljónið og kreppu-
barðir Íslendingar
Sólveig Anspach hefur á farsælum og fjölbreyttum ferli sýnt að hún hefur gott
lag á ljúfsáru, tilfinningasömu og gráglettnu gríni. Frásagnarháttur hennar er
oftar en ekki frjálslegur, sveimkenndur og absúrdískur á köflum. Karakterar
óútreiknanlegir og uppátækjasamir en alltaf uppteknir af því að lifa lífinu og
njóta þess sem það hefur upp á að bjóða, hversu fábrotið sem það kann
stundum að vera.
Þetta er bóhemísk og
hippaleg sýn og býsna
hressandi sem slík.
Þessi voru einkenni
„íslensku“ myndar
hennar Skrapp út og
hér má segja að hún
haldi áfram sem frá var
horfið, því ljóðskáldið
Anna (Didda) er aftur
mætt til leiks, nú
komin til Frakklands.
Ólíkindatólið sem hún er þá er Anna að sjálfsögðu búin að koma sér í
bobba, er strandaglópur ásamt Úlfi syni sínum (Úlfur) því íslenska flugfélagið
er farið á hausinn og kreppan í algleymingi heima á Íslandi. Hún hittir fyrir
unga syrgjandi ekkju og sníkir hjá henni gistingu. Takast með þeim góð kynni
og kemur á daginn að þessir skrautlegu Íslendingar, nágrannarnir og lítið krútt-
legt sæljón, voru nákvæmlega það sem ekkjan þurfti á að halda til að vinna úr
sorginni og koma lífi sínu aftur í rétt horf.
Það leynir sér ekki hversu gaman Sólveig hefur hér að því að leika með og
bera saman ólík þjóðareinkenni Frakka og Íslendinga og kryfja kannski um leið
sinn eigin persónuleika, verandi íslenskur Parísarbúi. Þótt myndin sé á köflum
æði hæggeng og sundurleit þá er hún alltaf þægileg áhorfs og áreynslulaus,
með velvilja og jákvæða strauma að leiðarljósi. Skarphéðinn Guðmundsson
Niðurstöður: Sveimkennt og velviljað gamandrama um lífsvilja og nægju-
semi.
ÁRA GÖMUL er söng- og leikkonan Hilary Duff í dag. Hún varð fræg fyrir titilhlutverk Disney-þáttanna Lizzie McGuire á
árunum 2001-2004. Síðan þá hefur hún meðal annars farið með aðalhlutverkið í Cinderella Story og Cheaper by the Dozen-
myndunum og lék í sex þáttum af unglingadramanu Gossip Girl árið 2009. Hún er gift NHL-leikmanninum Mike Comrie.
25
Afmaeli
15% 25%
www.sonycenter.is
100 Hz X-Reality myndvinnsla
Dynamic EDGE LED baklýsing
Tilboð 169.990.-
400 Hz X-Reality myndvinnsla
Dynamic EDGE LED baklýsing
Tilboð 289.990.-
40” LED SJÓNVARP KDL40EX653 46” LED SJÓNVARP KDL46HX753
5 ára ábyrgð
að verðmæti 12.000.- fylgir með í kaupunum
Sony Center I Verslun Nýherja Borgartúni I 569 7700 Sony Center I Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri I 569 7645
Lag Adele úr nýjustu James Bond-
myndinni er besta Bond-lagið sem
hefur komið út í þrjátíu ár að mati
bandaríska lagahöfundarins, upp-
tökustjórans og Grammy-verð-
launahafans Ryans Tedder sem
nýlega heyrði lagið.
Lagið var tekið upp fyrir mynd-
ina Skyfall og var Paul Epworth
upptökustjóri. „Ég hef hlustað á það
og það er besta Bond-lagið á mínu
æviskeiði. Ég tek hattinn ofan fyrir
Paul Epworth og Adele. Vonandi
vinna þau Óskarinn,“ tísti Tedder,
sem hefur einmitt starfað með
Adele. Söngkonan vann síðast með
Epworth að laginu Rolling in the
Deep sem naut mikilla vinsælda.
Adele á besta Bond-lagið
BEST Ryan Tedder telur að Bond-lag Adele sé það besta í þrjátíu ár.