Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 6
28. september 2012 FÖSTUDAGUR6
Kynning á rammaskipulagi
fyrir gömlu höfnina
Laugardaginn 29. september verður haldin kynning á nýju ramma-
skipulagi fyrir gamla hafnarsvæðið í Reykjavík. Kynningin hefst með
göngu um hafnarsvæðið undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar formanns
stýrihóps rammaskipulagsins. Gangan hefst við Hörpu klukkan 11.
Kynningarfundurinn í Sjóminjasafninu hefst klukkan 12.
www.skipbygg.is
Vesturbugt, Suðurbugt, Miðbakki, Austurbakki.
Tekur þú slátur?
Já 15,0%
Nei 85,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Óttast þú afleiðingar rýmri
reglna um innflutning áfengis
og tóbaks en slík breyting
myndi fylgja inngöngu í ESB?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
EVRÓPUSAMBANDIÐ Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins hefur
komist að því að möguleikar
menningar og skapandi starfa
séu vanmetnir, þegar hugað er að
hagvexti til framtíðar.
Í nýrri skýrslu segir að í Evr-
ópusambandinu hafi um 8,5 millj-
ónir manna atvinnu af skapandi
störfum og þaðan komi 3,5 til 4,5
prósent af heildarframleiðslu
aðildarríkjanna.
Veftímaritið EUobserver bætir
því við að þrátt fyrir takmarkaða
fjármögnunarmöguleika standi
menningargeirinn sig betur á
vinnumarkaði en flestir aðrir
starfsgeirar. Muni þar mestu um
störf ungs fólks, sem annars á
erfitt með að fá atvinnu í flestum
aðildarríkjum ESB. - gb
ESB spáir í framtíðina:
Telja möguleika
skapandi starfa
vera vanmetna
MEXÍKÓ, AP Einn af höfuðpaurum
fíkniefnaheimsins í Mexíkó hefur
verið handtek-
inn. Sá heitir
Ivan Velazques
Caballero, oft
nefndur Talíb-
aninn.
Hann hefur
verið leið-
togi eins arms
innan Zetas-
fíkniefna-
hringsins, og
hefur átt í afar
blóðugri valdabaráttu við Miguel
Angel Trevino Morales, aðalfor-
ingja Zetas.
Lögreglan í Mexíkó segir að
fjölmörg fjöldamorð og skotbar-
daga undanfarið megi rekja til
þessa klofning innan Zetas. - gb
Ráðist gegn fíkniefnahring:
Caballero hand-
tekinn í Mexíkó
IVAN VELAZQUES
CABALLERO
STJÓRNMÁL Af þeim sem helst
hafa verið nefndir til sögunnar
sem mögulegir arftakar Jóhönnu
Sigurðardóttir á formannsstóli
Samfylkingarinnar er það aðeins
Össur Skarphéðinsson sem útilok-
ar framboð. Fréttablaðið ræddi
við þá sem helstir hafa verið
nefndir sem formenn.
Árni Páll Árnason segist enn
vera að melta tíðindin og efst
í huga sé þakklæti til Jóhönnu
fyrir hennar góðu störf. „Hún
sem stjórnmálamaður er algjör-
lega einstök í íslenskri stjórn-
málasögu.“
Guðbjartur Hannesson tekur
í sama streng og segir að til-
kynning Jóhönnu hafi komið
sér á óvart. „Við erum að missa
frábæran formann. Nú þurfum
við að meta stöðuna með okkar
flokksfólki og hvað tekur við.“
Hann útilokar ekki framboð en
segir að flokksfélagarnir ráði því.
Sigríður Ingibjörg Ingadótt-
ir segist skilja vel að Jóhanna
vilji hætta á þessum tímapunkti.
„Það var mikið ákall eftir henn-
ar kröftum og hún hefur frá 2009
náð með farsælum hætti að stýra
flokknum og landinu.“
Katrín Júlíusdóttir segir algjör-
lega ótímabært að gefa nokkuð
upp um sín áform, daginn sem
vinsæll formaður tilkynnir um
starfslok sín og hið sama segja
Dagur B. Eggertsson og Helgi
Hjörvar.
„Við í Samfylkingunni eigum
núna fram undan að ræða þessa
nýju stöðu og meta hvernig for-
ystumálum okkar verður best
skipað,“ segir Helgi.
Össur er hins vegar afdráttar-
laus, hann hafi löngu skýrt frá
því að hann hafi engan hug á að
verða aftur formaður Samfylk-
ingarinnar. En hefur hann hug-
myndir um hver það ætti að vera?
„Fullt af hugmyndum, en ég vil
ekki reifa þær á þessu stigi.“
kolbeinn@frettabladid.is
Margir volgir fyrir því að
gefa kost á sér til formanns
Össur Skarphéðinsson er sá eini þeirra sem nefndir hafa verið sem líklegur arftaki formanns Samfylkingar
sem útilokar framboð. Aðrir vilja ekki taka af skarið og beina heldur sjónum að brotthvarfi Jóhönnu.
Samfylkingin heldur landsfund 1. febrúar. Í lögum flokksins segir að formaður
skuli kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu ef 150 flokksmenn krefjist þess, eigi
síðar en 45 dögum fyrir landsfund. Að öðrum kosti er hann kjörinn á landsfundi.
Telja verður líklegt að slík krafa komi fram og nægilegur fjöldi undirskrifta safnist.
Allir kjósi
„Mér finnst að nú
verði Samfylkingin
að ákveða hvers
konar forystu hún
vill til framtíðar. Ef
eftirspurn verður
eftir mér í forystu mun ég að
sjálfsögðu skoða það.“
SIGRÍÐUR INGIBJÖRG INGADÓTTIR
„Ég hef fylgt
mínum formanni
og ekki íhugað
framboð. En þetta
eru mikil tímamót
og á slíkum
stundum eiga stjórnmála-
menn að vera opnir gagnvart
þeim breytingum sem eru í
farvatninu og útiloka ekkert
fyrir fram.“
HELGI HJÖRVAR
„Nei, ég útiloka
ekki framboð, en
flokksfélagarnir
ráða þessu, hverjir
verða dregnir
fram til þessarar
ábyrgðar.“
GUÐBJARTUR HANNESSON
„No comment.
Þetta er ekki
dagur fyrir svona
yfirlýsingar.“ En er
hún á leið í lands-
málin? „Fundur
borgaramálaráðs Samfylk-
ingarinnar er á laugardaginn
klukkan 10. Það getur verið
að eitthvað skýrist þá.“
DAGUR B. EGGERTSSON
„Maður á aldrei
að útiloka nokk-
urn skapaðan
hlut, en ég mundi
aldrei taka svona
ákvörðun ein
og sér daginn sem okkar
vinsæli formaður tilkynnir
um brotthvarf sitt eftir þetta
kjörtímabil. Allt slíkt er
hópákvörðun.“
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
„Allt á sinn tíma.
Dagurinn í dag er
dagur Jóhönnu
Sigurðardóttur
og fer í að melta
tilkynninguna,
líta yfir farinn veg og þakka
henni fyrir hennar störf. En
svo rennur upp nýr dagur.“
ÁRNI PÁLL ÁRNASON
Útiloka ekki framboð
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur komst í gær að þeirri niður-
stöðu að ríkinu bæri að greiða inn-
flutningsfyrirtækinu Innnes ehf.
tæpar 400.000 krónur auk vaxta,
og 950.000 krónur í málskostnað,
vegna ofgreidds tolls.
Árið 2009 gerði Jón Bjarnason,
þáverandi sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, breytingu á fyr-
irkomulagi svokallaðra WTO-toll-
kvóta. Tollkvótarnir sem um ræðir
byggja á aðild Íslands að GATT-
samningnum svokallaða en með
aðildinni skuldbatt Ísland sig til að
hleypa litlu magni búvara inn á inn-
lendan markað á
lægri tollum en
almennt tíðkast.
F r á 1 9 9 5 ,
þegar Ísland
gerðist aðili að
samningnum,
höfðu tollarnir
verið magntoll-
ar. Árið 2009
var þeim breytt í
verðtolla en við breytinguna hækk-
uðu þeir svo mikið að í mörgum til-
fellum varð dýrara að flytja inn
vörur á undanþágu en vörur sem
lagðir voru á almennir tollar.
Innnes flutti í desember í fyrra
inn 691 kíló af kjúklingabringum
og greiddi toll af þeim samkvæmt
breytta fyrirkomulaginu. Héraðs-
dómur telur hins vegar að ráð-
herra hefði verið óheimilt að gera
umrædda breytingu.
Áður hafði umboðsmaður Alþing-
is gert athugasemd við heimild ráð-
herra til að breyta tollunum en í
kjölfarið var skipaður starfshópur
um málið. Steingrímur J. Sigfússon,
atvinnuvegaráðherra, breytti svo
fyrirkomulagi tollkvótanna aftur
til fyrra horfs á þessu ári.
- mþl
Umdeild breyting Jóns Bjarnasonar, fyrrum landbúnaðarráðherra, á fyrirkomulagi WTO-tolla dæmd ólögleg:
Ráðherra var óheimilt að breyta tollum
JÓN BJARNASON
KJÚKLINGABRINGUR WTO-tollkvótarnir
skulu gefnir út vegna innflutnings á
kjötvörum, smjöri og ostum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJÖRKASSINN