Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 58
28. september 2012 FÖSTUDAGUR34
sport@frettabladid.is
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON lék mjög vel á Ítalíu í gær eða á 69 höggum. Þetta var þriðji hringur á 1.
stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Reiknað er með að 27 kylfingar komist áfram á 2. stig úrtöku-
mótanna og á Birgir Leifur raunhæfan möguleika á að ná því spili hann aftur vel í dag.
N1-deild karla:
Fram-Akureyri 23-28
Fram - Mörk (skot): Jón Arnar Jónsson 5 (5),
Jóhann Gunnar Einarsson 5/2 (11/3), Haraldur
Þorvarðarson 4 (4), Þorri Björn Gunnarsson 4 (5),
Sigurður Eggertsson 3 (8), Ólafur Magnússon 2
(4), Garðar B. Sigurjónsson (1), Magnús Erlends-
son (1), Róbert Aron Hostert (8),
Varin skot: Björn Viðar Björnsson 12 (30/2, 40%),
Magnús Erlendsson 6 (16/2, 38%),
Hraðaupphlaup: 4 ( Jóhann, Þorri, Ólafur 2 )
Fiskuð víti: 3 (Jón, Jóhann, Haraldur )
Utan vallar: 6 mínútur.
Akureyri - Mörk (skot): Bjarni Fritzsson 11/4
(13/4), Oddur Gretarsson 6 (8), Geir Guðmunds-
son 4 (7), Andri Snær Stefánsson 3 (5), Guð-
mundur H. Helgason 3 (8), Heimir Örn Árnason 1
(1), Ásgeir Jónsson (1), Hreinn Þór Hauksson (1),
Varin skot: Jovan Kukobat 13/1 (30/2, 43%),
Stefán Guðnason 4 (10/1, 40%),
Hraðaupphlaup: 5 (Bjarni 2, Oddur 2, Andri )
Fiskuð víti: 4 ( Oddur, Andri, Heimir, Bergvin )
Utan vallar: 14 mínútur.
HK-Afturelding 24-23
HK - Mörk (skot): Daníel Örn Einarsson 7 (7),
Bjarki Már Elísson 7/4 (9/4), Ólafur Víðir Ólafsson
3 (3), Bjarki Már Gunnarsson 3 (4), Vilhelm Gauti
Bergsveinsson 1 (1), Vladimir Djuric 1 (3), Atli Karl
Bachmann 1 (3), Eyþór Magnússon 1 (4)
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 21/1 (43/4,
49%), Arnar Imsland (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 4 (Daníel 3, Bjarki Már G.)
Fiskuð víti: 4 ( Ólafur, Vilhelm, Eyþór, Daníel)
Utan vallar: 6 mínútur.
Afturelding - Mörk (skot): Hilmar Stefánsson
6/3 (7/3), Jóhann Jóhannsson 3/1 (7/2), Sverrir
Hermannsson 3 (8), Pétur Júníusson 2 (2), Hrafn
Ingvarsson 2 (3), Fannar Helgi Rúnarsson 2 (3),
Örn Ingi Bjarkason 2 (4), Böðvar Páll Ásgeirsson 2
(5), Kristinn H. Elísberg Bjarkason 1 (4),
Varin skot: Davíð Svansson 11 (24/2, 46%), Smári
Guðfinnsson 2 (13/2, 15%),
Hraðaupphlaup: 7 (Hilmar 3, Jóhann, Hrafn 2,
Fannar )
Fiskuð víti: 5 (Hilmar, Pétur 3, Örn Ingi)
Utan vallar: 6 mínútur.
Valur-FH 22-25
Valur - Mörk (skot): Finnur Ingi Stefánsson 6/3
(10/4), Agnar Smári Jónsson 4 (7), Valdimar
Fannar Þórsson 4/2 (8/3), Vignir Stefánsson 3
(5), Gunnar Harðarson 2 (2), Þorgrímur Smári
Ólafsson 2 (7), Daði Laxdal Gautason 1 (2), Sigfús
Sigurðsson (1),
Varin skot: Hlynur Morthens 11/1 (31/3, 35%),
Lárus Helgi Ólafsson 6 (11, 55%),
Hraðaupphlaup: 2 (Finnur Ingi, Agnar Smári)
Fiskuð víti: 7 (Finnur 2, Agnar 2, Gunnar, Þor-
grímur 2)
Utan vallar: 8 mínútur.
FH - Mörk (skot): Andri Berg Haraldsson 6 (12),
Bjarki Jónsson 3 (4), Magnús Óli Magnússon
3 (5), Ísak Rafnsson 3 (6), Ragnar Jóhannsson
3 (8/1), Sigurður Ágústsson 2 (2), Einar Rafn
Eiðsson 2/2 (2/2), Ari Magnús Þorgeirsson 2 (3),
Þorkell Magnússon 1 (1), Arnar Birkir Hálfdánsson
(1), Jóhann Karl Reynisson (1),
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 18/2 (39/6,
46%), Sigurður Örn Arnarson (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 4 (Andri, Bjarki, Ragnar, Þorkell)
Fiskuð víti: 2 ( Magnús, Jóhann Karl)
Utan vallar: 12 mínútur.
Lengjubikar kvenna:
Keflavík-Snæfell 72-78
Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 22/6 fráköst/5
stoðsendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir 14/5
fráköst/5 stolnir, Ingunn Embla Kristínardóttir 12/4
fráköst/6 stoðsendingar, Sandra Lind Þrastardóttir
10, Bryndís Guðmundsdóttir 6/11 fráköst, Bríet Sif
Hinriksdóttir 6, Aníta Eva Viðarsdóttir 2.
Snæfell: Alda Leif Jónsdóttir 19/4 fráköst, Hildur
Björg Kjartansdóttir 17/13 fráköst/6 stoðsending-
ar, Kieraah Marlow 15/13 fráköst/9 stoðsendingar,
Berglind Gunnarsdóttir 14, Hildur Sigurdardottir
8/8 fráköst/5 stolnir, Helga Hjördís Björgvinsdóttir
3, Rósa Indriðadóttir 2.
ÚRSLIT
www.forlagid.is
gNú loks fáanle aftur
í handhægu broti
með mjúkum spjöldum.
HANDBOLTI Íslandsmeistarar HK
unnu sinn annan leik í röð í gær,
24-23, gegn Aftureldingu. Vendi-
punktur leiksins kom á 42. mínútu
þegar Davíð Svansson markvörð-
ur Mosfellinga fékk að líta rauða
spjaldið fyrir kjaftbrúk.
Eftir það vöknuðu HK-ingar og
náðu að tryggja sér sigur úr víta-
kasti á lokamínútunni.
„Mér fannst þetta ekki rétt. Ef
það er rautt á þetta finnst mér að
það eigi að vera helvíti mörg rauð
spjöld í deildinni í vetur. Ég get
alveg viðurkennt það að þetta var
ekki fallega sagt hjá mér. Þetta var
samt meira sagt í mínum pirringi
en beint til dómarans,“ sagði Davíð
sem vildi ekki fara nákvæmlega út
í það hvað hann sagði.
FH-ingar með fínan útisigur
FH-ingar unnu fínan sigur gegn
Val, 25-22,. Valsmenn voru mikið
mun sterkari aðilinn til að byrja
með í leiknum en þegar leið á leik-
inn náðu FH-ingar völdunum á
vellinum og uppskáru frábæran
sigur. Daníel Freyr Andrésson,
markvörður FH, var magnaður í
síðari hálfleiknum og lagði grunn-
inn að sigri gestanna.
„Við vorum ekki tilbúnir í byrj-
un leiksins en síðan small þetta
saman í síðari hálfleiknum,“ sagði
Einar Andri Einarsson, þjálfari
FH, eftir sigurinn í gær.
„Varnarleikurinn og markvarsl-
an í síðari hálfleiknum var til
fyrir myndar og lagði heldur betur
grunninn af þessum sigri. Ungir
strákar stigu síðan upp og stóðu
sig eins og hetjur.“
Auðvelt hjá Akureyringum
Akureyringar gerðu sér góða
ferð í bæinn og tóku með sér stig-
in tvö norður í 28-23 sigri á Fram
í gærkvöldi. Eftir jafnræði fyrstu
tíu mínútur leiksins keyrðu Akur-
eyringar á heimamenn og náðu
fimm marka forskoti. Munurinn
fór upp í átta mörk í seinni hálf-
leik og náðu Framarar aldrei að
brúa það bil.
„Frábær sigur, mér fannst við
leiða allan leikinn og lítum bara
ágætlega út,“ sagði Bjarni Frits-
son, leikmaður og þjálfari Akur-
eyrar eftir leikinn.
„Þetta datt svolítið niður síðustu
mínúturnar og ég var óánægður
með seinasta korterið. Í stað-
inn fyrir að keyra á þá verðum
við kærulausir og tökum lélegar
ákvarðanir,“ sagði Bjarni.
Daði Hafþórsson, aðstoðarþjálf-
ari Fram, var ekki kátur. „Við
misstum hausinn, vorum óskyn-
samir á tímabili og hleyptum þeim
á svæðin sem við ætluðum ekki að
hleypa þeim á.“ - egm, sáp, kpt
HK BYRJAR MEÐ LÁTUM
Íslandsmeistarar HK halda áfram að reka hrakspár ofan í kok gagnrýnenda.
Þeir hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni. Fram og Valur byrja aftur á
móti illa en Reykjavíkurliðin hafa bæði tapað fyrstu leikjum sínum í deildinni.
LOK, LOK OG LÆS Vörn Valsmanna, með Sigfús Sigurðsson í broddi fylkingar, var sterk fyrir í gær en það dugði ekki til gegn
seigum FH-ingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Snæfellskonur unnu
fyrsta titilinn í kvennakörfunni
í vetur og þann fyrsta í sögu
kvennaliðs félagsins eftir sex
stiga sigur á Keflavík, 78-72, í æsi-
spennandi úrslitaleik Lengjubik-
ars kvenna sem fram fór í Toyota-
höllinni í Keflavík í gærkvöldi.
Snæfellsliðið var sterkara á
lokasprettinum og vann síðustu
þrjár mínútur leiksins 10-3. Bæði
lið náðu og misstu niður tíu stiga
forskot í leiknum og bæði lið geta
spilað betur en í þessum leik en
úr varð spennandi leikur þar sem
úrslitin réðust ekki fyrr en í lokin.
„Það er fínt að vera kominn með
fyrsta titilinn en það er nóg eftir.
Það var haustbragur á þessu enn
þá og það var því fínt að klára
þennan titil,“ sagði Hildur Sigurð-
ardóttir, fyrirliði Snæfells eftir
leikinn. „Það er alltaf mjög gaman
að koma í Keflavík og vinna leik
og þetta gefur okkur aukið sjálfs-
traust enda komnar með titla í hús.
Karlalið Snæfells hefur verið að
koma með bikara heima í Hólminn
undanfarin ár en nú er kvennaliðið
komið með titil líka sem er bara
flott,“ sagði Hildur og hún hrósaði
liðsfélögum sínum fyrir frammi-
stöðuna í lok leiks.
„Við vorum að setja niður mikil-
vægar körfur á lokamínútunum og
stela boltum og annað. Það skilaði
sér. Hildur og Kieraah voru mjög
öflugar inni í teig og Alda var
síðan að raða niður þristum. Það
er frábært þegar við erum bæði
að fá framlag inni í teig og fyrir
utan,“ sagði Hildur.
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði
22 stig fyrir Keflavík og Pálína
Gunnlaugsdóttir var með 14 stig en
tíu þeirra komu í fyrsta leikhlut-
anum. „Þetta er mjög svekkjandi.
Við vorum bara pínulítið hræddar
í dag og það var ástæðan fyrir því
að við náðum ekki að fylgja þessu
alveg í gegn. Við vorum ragar á
móti svæðinu í lokin og þær voru
að spila fast. Mér fannst við ekki
hafa nógu góð svör við svæðis-
vörninni þeirra,“ sagði Pálina um
lokakaflann í leiknum. „Það vant-
aði kannski reynslu í lokin til að
klára þetta en við lærum bara af
þessu því við erum með ungt lið
og það er bara skemmtilegt,“ sagði
Pálína. - óój
Snæfell Lengjubikarmeistari eftir sigur á Keflavík suður með sjó í spennandi leik:
Fyrsti titill Snæfellskvenna í körfunni
KÁTAR Þær Alda Leif Jónsdóttir og Hildur
Sigurðardóttir halda hér á bikarnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓÓJ