Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 53
FÖSTUDAGUR 28. september 2012 29
Vegglistaverkið Ræktaðu garðinn
þinn var afhjúpað við Seljaveg
32 í gær, en þar eru vinnustofur
Sambands íslenskra myndlistar-
manna til húsa. Verkið er eftir
þau Söru Riel og Davíð Örn Hall-
dórsson og var unnið fyrir Sam-
band íslenskra myndlistarmanna
með stuðningi menningar- og
ferðamálaráðs Reykjavíkurborg-
ar.
Sara og Davíð unnu verkið í
nánu samstarfi. Ekki var stuðst
við nákvæmar vinnuteikningar
heldur var hugmyndin rædd í
grófum dráttum en framvindan
látin ráðast við gerð verksins og
má því því segja að verkið hafi
vaxið líkt og gróðuróreiða og
listamennirnir þannig ræktað
garðinn í sínum skilningi.
Sara og Davíð Örn hafa verið
ötul í sýningarhaldi bæði hér-
lendis sem erlendis. Davíð er
málari sem notar gjarnan sýning-
arrýmið sem striga. Sara vinnur
með ýmsa miðla og hefur einbeitt
sér að veggverkum undanfarin
misseri.
Vegglistaverk afhjúpað á Seljavegi
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 28. september
➜ Sýningar
16.00 Sigurborg Jóhannsdóttir opnar
sýningu sína BLÁR á Skörinni, Aðal-
stræti 10. Á sýningunni eru myndir
unnar á tré með blandaðri tækni.
➜ Hátíðir
14.00 Reykjavík International Film
Festival er fullu fjöri í Reykjavík. Dagskrá
má nálgast á heimasíðunni http://riff.
is/schedule.
➜ Tónlist
16.00 Uni og Jón Tryggvi spila á Súfist-
anum Hafnarfirði. Leikin verða lög af
nýrri plötu þeirra í bland við gamalt
efni.
21.00 Hljómsveitin Tilbury fagnar
haustinu með tónleikum á Café Rosen-
berg. Dúettinn Orfia mun lhita upp.
Miðaverð er kr. 1.500.
23.00 Ingvar Valgeirsson skemmtir
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Haldinn verður opinn fundur
um átökin í Sýrlandi í stofu 101 í Odda.
Dr. Joseph Maïla, yfirmaður stefnumót-
unar í franska utanríkisráðuneytinu
heldur erindi. Fundurinn fer fram á
ensku.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
LISTIN VEX Sara og Davíð Örn létu fram-
vindu verksins ráðast á meðan það var
í vinnslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sýning þýsku listakonunnar
Ulrike Ottinger var opnuð í and-
dyri Norræna hússins í gær en hún
er hluti af sérviðburðum RIFF.
Ottinger vinnur jöfnum höndum
með ólíka miðla, til dæmis ljós-
myndir, innsetningar og kvik-
myndagerð.
Ottinger hefur ferðast um allan
heiminn og ljósmyndar það sem
fyrir augu ber og setur í framand-
legt en jafnframt kunnuglegt sam-
hengi, þar sem mörk hins skáldaða
og raunverulega verða oft óljós.
Mynd hennar, UNTER
SCHNEE, verður sýnd á RIFF
í Norræna húsinu 3. október og
tekur Ottinger þátt í umræðum að
lokinni sýningu. Sýningin í Nor-
ræna húsinu stendur til 7. október.
- bs
List á mær-
um landa
og miðla
ULRIKA OTTINGER
NÝ
KILJA