Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 10
28. september 2012 FÖSTUDAGUR10
VELFERÐARMÁL Stjórnvöldum hefur
tekist að beita velferðarkerfinu á
markvissan hátt til að milda áhrif
kreppunnar á lág- og millitekju-
hópa. Langstærsti hluti skulda-
vanda heimilanna var tilkom-
inn fyrir hrun bankanna, sem
og greiðsluvandi og erfiðleikar
vegna skulda. Um síðustu áramót
var búið að afskrifa nærri fimmt-
ung af heildarskuldum heimila
og hátt í fimm prósent til viðbót-
ar voru í slíku ferli, samkvæmt
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Þetta eru helstu niðurstöður
nýrrar skýrslu Þjóðmálastofn-
unar Háskóla Íslands um áhrif
aðgerða stjórnvalda á skulda-
vanda, fátækt, fjárhagsþrenging-
ar heimila og atvinnu, sem kynnt
var í gær.
Helsta gagnrýnin sem skýrslu-
höfundar benda á varðandi
aðgerðir stjórnvalda í velferðar-
málum í kreppunni eru bóta- og
lífeyrissjóðagreiðslur. Barnabæt-
ur hér á landi eru lágar miðað við
nágrannaríkin og hefur skerðing
þeirra vegna tekna foreldra verið
of brött. Er þetta talinn einn veik-
asti hlekkurinn í aðgerðum stjórn-
valda gegn áhrifum kreppunnar.
Skerðing grunnlífeyris vegna
tekna úr lífeyrissjóðum hafa
komið illa við marga eldri borg-
ara. Þá hefur atvinnulífið ekki
tekið eins hratt við sér og búist
var við.
Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra bendir á í því
samhengi að í fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 2012 sé gert ráð fyrir að
verja tveimur og hálfum milljarði
króna til hækkunar barnabóta,
framlög til húsnæðisbóta verði
aukin og einnig framlög til Fæð-
ingarorlofssjóðs. Jafnframt er
unnið að breytingum á ellilífeyri
þar sem dregið er úr skerðingum
og vægi lífeyristekna aukið að
því er fram kemur á vef velferð-
arráðuneytisins.
Skýrslan, „Áhrif mótvægis-
aðgerða á skuldavanda, fátækt
og atvinnu“, er seinni skýrsla
stofnunarinnar af tveimur sem
unnar eru fyrir velferðarráðu-
neytið. Var þetta gert í samræmi
við ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um að láta fara fram óháða rann-
sókn á áhrifum fjármálahrunsins
á lífskjör þjóðarinnar. Skýrsluhöf-
undar eru Stefán Ólafsson, Arn-
aldur Sölvi Kristjánsson og Kol-
beinn Stefánsson. Farið var yfir
helstu niðurstöður á fundi í vel-
ferðarráðuneytinu í gærmorgun.
Höfundar notuðu meðal annars
skattagögn, önnur opinber talna-
gögn og skýrslur og niðurstöður
innlendra og erlendra kannana.
sunna@frettabladid.is
Fimmtungur skulda
heimila afskrifaður
Nokkuð vel hefur tekist að ná Íslandi upp úr kreppunni. Skerðing barnabóta
og ellilífeyris talin veikasti hlekkurinn í aðgerðum stjórnvalda. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands.
BARNABÆTUR OF LÁGAR Lágar greiðslur vegna barnabóta eru taldar einn veikasti
hlekkurinn í aðgerðum íslenskra stjórnvalda í kreppunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ 85% af alvarlegum greiðsluvanda heimilanna voru tilkomin fyrir hrun
bankanna, samkvæmt Seðlabanka Íslands.
■ Skuldir heimilanna náðu hámarki að raunvirði árið 2009. Um 91% af því
hámarki var hins vegar þegar til staðar í árslok 2007, samkvæmt gögnum
skattframtala.
■ Um áramót 2011-2012 var búið að afskrifa nærri 15% af heildarskuldum
heimila og hátt í 5% til viðbótar voru í ferli afskrifta, samkvæmt AGS.
■ Rúmlega 9% voru undir fátæktarmörkum árið 2010.
■ Hlutfall heimila sem eiga mjög erfitt með að ná endum saman fór úr
tæplega 6% á árunum 2006 og 2007 upp í 13,3% árið 2011.
■ Íslendingar eru í 3. sæti hvað lífsánægju varðar og einnig hvað snertir
ánægju með eigin atvinnustöðu, samkvæmt fjölþjóðlegri könnun
Eurobarometer vorið 2012.
13,3% heimila eiga í fjárhagsvanda
SÝRLAND, AP Sýrlenski stjórnar-
herinn sendi í gær smáskilaboð í
farsíma flestra íbúa landsins þar
sem skorað var á uppreisnarher-
inn í landinu að gefast upp, og sagt
að barátta hans væri hvort eð er
töpuð.
Stjórnarherinn hefur áður reynt
að hafa sálræn áhrif á uppreisnar-
menn með svipuðum hætti, en litl-
ar líkur eru á að uppreisnarherinn
taki minnsta mark á þessum skila-
boðum.
Pattstaða hefur verið í átökunum
vikum saman, en uppreisnarher-
inn gerði á miðvikudaginn harða
árás á höfuðstöðvar stjórnarhers-
ins í höfuðborginni Damaskus.
Tvær bílasprengjur sprungu við
höfuðstöðvarnar, með þeim afleið-
ingum að byggingin stóð í ljósum
logum. Í kjölfarið hófust skotbar-
dagar, sem stóðu í þrjár klukku-
stundir. Stjórnvöld segja að fjór-
ir stjórnarhermenn hafi látist og
fjórtán manns særst.
Átökin hafa harðnað jafnt og
þétt. Á miðvikudaginn kostuðu
þau meira en 300 manns lífið, en
aldrei hafa jafn margir látið lífið í
borgarastyrjöldinni í Sýrlandi frá
því átökin hófust.
Sameinuðu þjóðirnar segja að
tvö til þrjú þúsund flóttamenn fari
yfir til nágrannalandanna á degi
hverjum. Alls eru nærri 300 þús-
und flóttamenn frá Sýrlandi á skrá
hjá Sameinuðu þjóðunum, eða bíða
skráningar í nágrannalöndunum.
- gb
Sýrlandsstjórn sendir uppreisnarmönnum áskoranir um að gefast upp:
Átökin aldrei verið harðari
BARIST Í RÚSTUNUM Uppreisnarmaður
vopnaður sprengjuvörpu í borginni
Aleppo. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REIÐIKASTI GERT HÁTT UNDIR HÖFÐI
Risin er í París stór stytta af franska
fótboltakappanum Zinedine Zidane
að stanga hinn ítalska Materazzi í
alræmdu atviki í fótboltaleik árið
2006. NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Eftir tregveiði á
síldarmiðunum um síðustu helgi og
í byrjun vikunnar tók veiðin mikinn
kipp á þriðjudagskvöld. Þá fannst
síld út af Héraðsflóadjúpi, um 90
sjómílur frá Vopnafirði.
Skip HB Granda, Lundey NS,
kom í höfn á Vopnafirði með um
570 tonna afla sem fékkst í tveim-
ur holum með Ingunni AK. Að sögn
Kristjáns Þorvarðarsonar, stýri-
manns á Ingunni, fengust til dæmis
rúmlega 800 tonn í tveimur holum.
„Það var mikill kraftur í veiðun-
um og það þurfti ekki að toga lengi
til að fá góðan afla,“ segir Kristján
en að hans sögn er greinilegt að
síldin er á hraðferð í austurátt og
því verður þess vart lengi að bíða
að veiðin innan íslenskrar lögsögu
detti niður að nýju.
Það skiptir skip HB Granda þó
litlu máli því í gær voru aðeins
óveidd um 800 til 900 tonn af norsk-
íslenska síldarkvóta félagsins.
„Þetta var okkar síðasta veiði-
ferð á vertíðinni hvað varðar norsk-
íslensku síldina. Eftir löndun á
Vopnafirði förum við suður og mér
skilst að skipið fari í slipp. Síðan
er stefnan sett á veiðar á íslensku
sumargotssíldinni um miðjan októ-
bermánuð,“ segir Kristján. - shá
Síldarskipin fundu síld í Héraðsflóadýpi eftir léleg aflabrögð um síðustu helgi:
Moka upp síld eftir tregveiði
VOPNAFJÖRÐUR Síðustu síldarfarmarnir
eru að skila sér til vinnslu eystra.
MYND/JÓN SIGURÐARSON
HEILBRIGÐISMÁL Alþjóðlegi hjarta-
dagurinn verður haldinn hátíð-
legur á morgun. Hér á landi sam-
einast Hjartavernd, Hjartaheill,
Neistinn, styrktarfélag hjart-
veikra barna og Heilaheill um
að halda dagskrá í Reykjavík og
Kópavogi um helgina.
Á Íslandi létust á árinu 2009
rúmlega 500 manns úr hjarta- og
æðasjúkdómum og þar af voru 230
konur. Hjartasjúkdómar eru dán-
arorsök einnar konu af hverjum
þremur sem deyja í heiminum.
- sv
Hjartadagurinn á morgun:
Áhersla lögð á
konur og börn