Fréttatíminn - 25.11.2011, Síða 52
Delicato Merlot
frá Kaliforníu er djúprautt
á litinn með miklu ávaxta-
bragði, plómur og hindber.
Bragið endist lengi með
súkkulaði- og kaffikeim
í lokin. Vínið passar ein-
staklega vel með reyktum
og söltum mat og á því
vel við á hátíðarborði
Íslendinga.
René Muré Gew-
urstraminer
Signature
frá Alcase í Frakklandi er gullið
á lit með angan af sætu kryddi
og sætum ávexti. Þykkt í munni
með sætu í góðu jafnvægi við
góðan ferskleika sem myndast
í eftirbragði. Þetta vín hentar
vel með krydduðum mat t.d
hangikjöti eða austurlenskum
matur. Líklega besti kosturinn
fyrir þá sem vilja hvítvín með
hamborgarhryggnum.
Morande Gran
Reserva Syrah
frá Chile er dökkt með fjólulit
og í ilmi má finna fjólur ásamt
þurrkuðum kirsuberjum og
kanil. Í bragði er vínið silki-
mjúkt en langt og höfugt og
er frábær samsetning við
meðlætið á jólaborðinu
hvort sem boðið er upp á
lamb eða naut.
Faustino VII
frá Spáni er bragðgott vín með
angan af vanillu og ferskum
berjum, flauelsmjúkt og fágað
með áköfu eftirbragði. Við
tökum þetta vín sem dæmi
þar sem það hentar með
fjölbreyttum mat allt frá
lambi, kalkún, kjúklingi,
önd og svínakjöti. Prófið
endilega að opna flöskuna
meðan verið er að útbúa
sósuna og bragðbæta
hana með víni sem
verður boðið upp á með
jólamatnum
Las Moras Caber-
net Sauvignon
frá Argentínu er dæmi
um ódýrt en gott vín með
jólamatnum sem gott væri
að umhella. Fjólubláir tónar
í víninu eru tákn um ungan
aldur en samt er vínið með
mjúkt yfirbragð. Vínið er
þægilegt með dökkum
sætum berjum og milda
fyllingu. Við umhellinguna
verður vínið enn mýkra og
betra.
Poggio al Casone
Chianti Superiore
frá Ítalíu er dökkt og fallegt
með þroskuðum ávexti og
áberandi kirsuberjabragði.
Ending er mild með sætum
kirsuberjum. Þetta er
dæmi um gott vín sem
hentar með kalkún og önd.
Morandé Gran
Reserva
Chardonnay
frá Chile er sannkölluð
ávaxtasprengja en um leið
ótrúlega milt og þægilegt.
Vínið er fallega gullið á lit
og hefur langt eftirbragð.
Ilmurinn er frekar flókinn
með miklu af þroskuðum
eplum og suðrænum
ávöxtum. Í eftirbragði má
finna hnetur og vanillu.
Vínið hentar mjög vel með
humar og fiskréttum.
René Muré Riesling
Signature
frá Alcase í Frakklandi er mjög
klassíkt Riesling vín gulleitt með
sítrónum og kardemommum í
angan og bragði. Góður kostur
með lax, humar og kalkún.
Annar góður kostur með
laxinum er Morandé Pionero
Sauvignon Blanc frá Chile
sem er ferskt og gott vín
með áberandi ávaxtakeim
en verður síðan suðrænt og
seiðandi.
Spy Valley Merlot –
Malbec
frá Nýja Sjálandi er blóðrautt
með angan af sætum plómum,
ceddar osti og framandi
kryddum. Gott jafnvægi í
munni með sætum ávexti,
kryddi og fínlegu eftirbragði
sem gerir vínið fullkomið
með villibráðinni eða góðri
nautasteik.
18 jól Helgin 25.-27. nóvember 2011
L E P P A L Ú Ð I
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U F A T L A Ð R A B A R N A
O G U N G M E N N A
Leppalúði í túlkun
Ingibjargar Hönnu Bjarnadóttur
og Ingibjargar Haraldsdóttur
fæst hjá okkur
5. – 19. desember
Casa - Skeifunni og Kringlunni
Epal - Skeifunni, Leifsstöð og Hörpu
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Blóma - og gjafabúðin - Sauðárkróki
Norska húsið - Stykkishólmi
Póley - Vestmannaeyjum · Valrós - Akureyri
Blómaval - um allt land
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Hann Leppalúði þótti nokkuð baldinn.
Í bernsku var hann ódæll
og átti enga vini.
Af þessu varð hann vansæll
og vildi hefna sín.
Hann átti gamlan pabba
sem engu nennti lengur
og ævagamla mömmu
sem litlu skárri var.
Það var því vart að undra
þótt Leppalúði tæki
til sinna eigin ráða.
Einn daginn þegar fólkið
var komið út á tún
og sló og sló af kappi
varð einhverjum að orði:
Hvar er Leppalúði?
Allir fóru að leita
hrópa og kalla
en ekkert sást til Lúða.
Hann er horfinn,
sagði hreppstjórinn,
ekki skal ég syrgja hann.
Og göngu Ballt la d m nú til verka!
Nú leið og beið í sveitinni
en aldrei kom sá stutti.
Flestir voru fegnir, nema
foreldrarnir hans,
sem dóu fljótt úr hungri
Þumalputtareglur Jólavín og hátíðarmaturinn
Þrúgur jólanna
Hér á eftir verður tæpt á nokkrum atriðum sem vert er að hafa
í huga er varðar vín og hátíðarmat – þumalputtareglur.
Þumalputtareglan um
hátíðarmatinn:
Með hangikjötinu og ham-
borgarhryggnum er gott að
hafa berjarík og bragðmikil
vín. Þá henta vín úr Merlot
þrúgunni einstaklega vel en
einnig hvítvín svo sem vín
úr Gewurtstraminerþrúg-
unni. Gott er að það örli
fyrir eik í vínunum, þar sem
eikin brýtur saltið niður.
Fituríkur matur, feitar og
kremaðar sósur, kalla á
alkahólrík vín, til dæmis eru
Malbec vín frá Argentínu
vín sem smellpassa með
þannig mat.
Meðlætið með jólamatnum,
til dæmis sykurbrúnaðar
kartöflur og sultur, kalla á
vín sem eru með sætu ívafi
þar sem bragðið er langt
og gott. Dæmi um slíkt eru
vín úr Shiraz þrúgunni.
Sósan er oft fullkomnuð
á lokasprettinum og þá
getur verið gott að smakka
á víninu með sósunni.
Bragðlaukarnir geta kalla
eftir meiri sætu eða kryddi
þegar vínið er smakkað
með og þá er einfalt að
bregðast við því.
Þumalputtareglan um
röðun vína:
Í góðu lagi er að hafa
nokkrar tegundir vína með
sömu máltíðinni og smakka
hvað fer best með hverjum
rétti.
Notið fersk hvítvín (til
dæmis Sauvignon Blanc
og Pinot Grigio) á undan
þykkum og rjómakenndum
vínum (t.d. Chardonnay).
Notið vín úr Pinot Noir og
Merlot á undan rauðvínum
úr Cabernet Sauvignon og
Malbec þrúgum.
Röðin og hvað passar
með hverju kemur með
æfingunni og smekk hvers
og eins.
Munið að hver einstak-
lingur er sérfræðingur í
eigin bragðlaukum þannig
að forðist yfirlæti.
Þumalputtareglan um
geymslu vína:
Geymið vín á dimmum stað
við 10-14° hita.
Flest vín eru ekki endilega
ætluð til geymslu í mörg
ár, gott er að kanna upp-
lýsingar á flöskunni.
Aldrei að geyma vín í eld-
húsinu því þar eru of miklar
hitabreytingar sem geta
skemmt vínið.
Þumalputtareglan varð-
andi umhellingu vína:
Vín sem eru yngri en 3 ára
er gott að sprengja upp
með því að umhella þeim í
karöflu eða vatnskönnu.
Vínin verða mýkri við
umhellinguna því þá loftar
um þau og sýran fellur
niður.
Góð hátíðarvín