Heimilisritið - 01.06.1945, Blaðsíða 14
andlit er svo að segja sama
hvernig þú lætur liða og leggja
hár þitt. Einföld hárlagning fer
þér þó betur heldur en sú, sem
er mjög áberandi og flókin. —
Fallegast er að greiða upp frá
enninu, skipta í miðju og láta
það leggjast aftur fyrir eyrun
niður hnakkann, lítið eitt liðað.
Andlitsfegrunin er einnig
vandalítil. Það þarf aðeins að
hafa það hugfast að spilla ekki
lögun og línum andlitsins.
Ef þú hefur mjög breitt andlit
skaltu greiða hárið upp og aft-
ur frá þunnvöngunum, þétt að
höfðinu og láttu það lyftast og
liðast uppi á höfðinu, þannig, að
höfuðið virðist hækka og and-
litið lengjast. Greiddu það einn-
ig þétt niður með hliðunum og
láttu eyrun koma fram fyrir, ef
þau eru falleg.
Notaðu kinnalit aftast á kinn-
unum, en nokkru framar eftir
því sem neðar dregur. Þetta
mýkir línur neðri kjálkans. Auð-
vitað eiga kinnarnar að vera
rauðastar á móts við eyrun og
varast verður að litunin verði
áberandi. Hafið augnabrúnirnar
lítið eitt bogadregnar.
Stúlkur með kringluleitt and-
lit skulu haga hárgreiðslunni
þannig, að allt miðist við það að
lengja andlitið. Forðist að hafa
hárið flatt yfir enninu eða í
þykkni hjá eyrunum. Bezt fer á
því að láta það lyftast, liðast og
12
HEIMILISRITIÐ