Heimilisritið - 01.06.1945, Blaðsíða 52

Heimilisritið - 01.06.1945, Blaðsíða 52
fá sér. „Flýttu þér“, mælti hún. „Þér er óhætt að vera kyrr hjá mér. Maðurinn minn hefur aldrei séð þig, þekkir þig þess vegna ekki. Við segjum að þú sért Lane læknir og að ég hafi skyndilega orðið veik — lækn- irinn minn hafi ekki verið við, en náðzt hafi í þig. Manninn minn mun ekki gruna, að neitt óhreint sé við þetta. Ef þú elsk- ar mig, verður þú að leika hlut- verkið án þess þér fatist. Nú kemur hann. Vertu tilbúinn. Maurice kinnkaði kolli. Þar sem hún kaus að fá að komast hjá skilnaði, var hann nauð- beygður til þess að fara að vilja hennar. Hr. Wermington kom inn í svefnherbergið og horfði undr- andi á þau. Olive stundi sem veik væri. Hún mælti: „Elskan mín! ertu kominn? En hvað það gleður mig. Eg varð svo veik. Þessi maður er læknir og heitir Lane“. Wermington sneri sér að unga manninum og spurði með hluttekningu: „Hvað gengur að henni? Vonandi er það ekki al- varlegt“. Maurice svitnaði. En hvorugt þeirra tók eftir því. Hann sagði: „Nei, frúnni varð skyndilega illt. En hún er hressari núna. Hún verður að hafa næði“. Maurice þorði ekki að líta á 50 frúna. Wermington var ekki hræddur um konu sína, eða af- brýðisamur. Hann elskaði Olive. Kænskubragð hennar hafði heppnazt. Wermington og Maurice töl- uðu um heilbrigðismál litla stund. Þegar Maurice var að fara, spurði Wermington, hvort kona hans hefði fengið nokkurt meðal. Maurice leitaði 1 frakka- vasa sínum og tók upp glas með aspirintöflum. Hann fék oft höf- uðverk og bar því jafnan aspir- ín á sér. Hann rétti Wermington glasið og mælti: „Gefið frúnni tvær töflur og vatn á eftir. Ég lít hér inn á morgun“. Að svo mæltu kvaddi hann og hélt heimleiðis. „Bölvað klúð- ur“, sagði hann við sjálfan sig. „Þar skall hurð nærri hælum. En hyggin er Olive. Þetta tók á taugarnar“. Hann var hálftíma heim. Það var komið fram í október og far- ið að kólna í veðri. Klukkan var eitt er hann kom inn í íbúð sína. Það var ljós í skrifstofu hans. Frændi hans, Arnold Bloom- field, dvaldi hjá honum um tíma. Hann er prófessor í efna- fræði og var nýlega kominn úr ferð til Austurlanda. Hann var oft á fótum fram á nætur við lestur og tilraunir. Prófessorinn kom á móti Maur- ice fram í anddyrið, alláhyggju- HEIMILISRITIÐ /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.