Heimilisritið - 01.06.1945, Page 41

Heimilisritið - 01.06.1945, Page 41
Refsingar eru lagðar við því í Þýzkalandi að hlusta á erlend- ar útvarpsstöðvar. Nýlega fékk móðir eins þýzka flugmannsins itilkynningu um það frá flug- herstjórninni, að sonur hennar væri horfinn og talinn af. Brezka útvarpsstöðin í London útvarp- ar vikulega skrá yfir hertekna Þjóðverja, og fám dögum eftir þetta, var ungi maðurinn tal- inn meðal þeirra. Daginn eftir fékk móðirin átta bréf frá vinum og kunpingjum, þar sem henni var sagt, að sonur hennar væri heill á húfi og herfangi í Eng- landi. En niðurlag sögunnar er ljótt. Móðirin kærði alla þessa átta vini sína fyrir að þeir hlust- uðu á erlent útvarp, og þeir voru teknir höndum. Þegar ég reyndi að koma sögu þessari í fréttaútvarp mitt, strik- aði ritvörðurinn hana út, vegna þess, að hann taldi að amerískir hlustendur myndu ekki skilja hetjudóm þann, sem konan sýndi, með því að láta vini sína sæta refsingu. ' Þá er önnur sagan: Foreldrum kafbátsforingja eins var tilkynnt andlát sonar þeirra. Báturinn var á eftir áætlun, og flotastjórn in taldi hann af. Foreldramir bjuggust til að halda minning- arathöfn í kirkju sinni. — Að morgni hinn tiltekna dag hringdi slátrarinn, sem þau skiptu við, og bað þau að tala við sig í kyr- þey. Næst hringdi matvörusal- inn. Síðan vinir þeirra hver af öðrum. Þeir höfðu allir heyrt brezka útvarpið tilkynna, að sonur þeirra væri meðal fanga, sem bjargað var af kafbáti. En hvernig átti nú að aflýsa athöfn- inni, án þess að yfirvöldinfengju veður af því, að einhver trún- aðarmaður fjölskyldunnar hefði hlustað á erlent útvarp? — Ef .foreldrarnir vildu ekki ljósta því upp, myndu þau sjálf ef til vill verða handtekin. Skotið var á fjölskylduráðstefnu. Þar var á- kveðið að halda minningarat- höfnina, en að henni lokinni var gestunum boðið heim í erfða- drykkju. Þar var leyndarmál- inu hvíslað að þeim, sem ekki vissu það þegar, og drukkið síð- an óspart fagnaðaröl. Þá er hér að lokum þriðja sagan: Voldugt, þýzkt kvikmyndafé- lag lauk í sumar sem leið við kvikmynd, sem kostaði nokkrar milljónir marka, og er megin- efni hennar afrek þýzku Kond- ór-sveitarinnar á Spáni. Þetta er stór filma og sýnir, hvernig þýzku blóði var úthellt á Spáni í heilögu stríði gegn Bolsévíkun- um. Hitler, Göring, Göbbels og Himler sáu hana og hældu henni. Þá kom þýzk-rússneski sáttmálinn síðast í ágúst. Filman HEIMILISRITIÐ 39

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.