Heimilisritið - 01.06.1945, Page 62
Spurningar og svör {
......... ....................j
NÁM UNGRA STÚLKNA.
Sp.: 1. Viltu vera svo góð að gera
okkur þann greiða, að birta mynd
af enska leikaranum Riehard Greene
ásamt grein um hann í næsta „Heim-
ilisriti“?
2. Hvað átlítur þú um það, að
ungar stúlkur fari í Menntaskóla?
3. Okkur finnst við vera of feitar,
hvað eigum við að gera til að megra
okkur? .
4. Hvað eigum við að gera til að
losnia við flösu?
5. Hver er mestiíslenzkileikarinn?
Tvíburasystur.
Sv.: 1. Get því miður ekki orðið
við þessari ósk ykkar.
2. Það er langt frá því að mér
finnist nokkuð athugavert við það.
Mér finnst þvert á móti, að sem
flestir ættu að mennta sig, hel^t
sérmennta. Og ég er á móti því að
takmarka nemendatölu Menntaskól-
ans, því að í hann ættu allir að geta
komizt sem hafa hug á að sérmennta
sig, á meðan stúdentspróf er skil-
yrði fyrir háskólaprófi.
3. Svaraði svipaðti spumingu í
ágústheftinu síðasta.
4. Gaf ráð við því í júlí-ágúst-
heftinu 1943.
5. Treysti mér ekki til að skera úr
um það. Ef til vill vilja lesendurn-
ir hjálpa mér og segja mér álit sitt.
DÍSA SPYR
Sp. 1: Vona að þú getir sagt mér,
hvort hægt er að ná lýsisblettum úr
kjólum?
2. Getur þú veitt mér upplýsingar
um, hvort bókin „Þetta allt og heim-
urinn með“ kemur ekki bráðum út.
Hún er eftir skáldkomma Rachel
Field, höfund bókarinnar „Og dagar
koma“. Eg las í blöðunum fyrir jól,
að hún kæmi bráðum út, en síðan
hefur ekkert frézt af henni og ég er
svo spennt að lesa hana.
3. Hvernig líst þér á skriftina?
Disa.
Sv.: 1. Legðu efnið einfalt á
þerripappír og nuddaðu blettinn
með hreinum klút vættum í bensíni.
Ef hann hverfur ekki skaltu nota
terpentínu og svo aftur bensín helzt
blönduðu með eter að einum fjórða
hluta. Efnið er síðan strauað á röng-
unni. Til mun einnig vera hreins-
unarefni, sem á ensku heitir ,úull-
er’s earth“, en nefnt hefur verið þóf-
araleir á íslenzku. Ef það er fyrir
hendi er það borið á fitublettinn sem
þunnt deig og látið þoma vel. Dreg-
ur það þá í sig feitina og eyðir blett-
inum. Svo er það burstað úr með
bursta og er þá bletturinn horfinn.
2. Það er ekki að marka þótt hún
sé ekki komin út enn. Erfitt er að
fá prentaðar bækur vegna anna í
prentsmiðjunum, en væntanlega
kemur hún út fyrir jól.
3. Skriftin finnst mér prýðileg, og
ég hugsa að þú sért það líka — stað-
föst og reglusöm.
Ó, HANN CLARK!
Spuming: Kæra Eva Adams. Þið
vitið svo mikið um „stjömur", svo
að mér datt í hug að biðja þig um
að gefa mér upplýsingar um utaná-
skrift Clark Gable. Ef Heimilisritið
veit það ekki „þá hver?“ — Hvert
get ég annars snúið mér?
Veik stúlka.
Svar: Ég myndi skrifa: Mr. Clark
ðO
HEIMILISRITIÐ