Heimilisritið - 01.06.1945, Qupperneq 64
VEÐURVÉFRÉTT.
Það er enginn vandi að vera sinn
eigin veðurspámaður, ef svo ber
undir, þótt maður sé með öllu ófróð-
ur um skýjafar eða um fréttir veð-
urstofunnar og hafi engan loft-
þyngdarmælir. Maður hellir fullan
bolla af te og lætur sykurmola falla
ofan í hann (ef molasykur er til).
Ef loftbólurnar eru smáar og
streyma æðislega út að hliðum boll-
ans,' verður að líkindum heiðviðri.
Ef loftbólurnar eru stórar og lyftast
letilega upp á yfirborðið í miðjum
bollanum, má búast við rigningu.
Orsök þessa liggur í því, að loft-
þyngdin er venjulega meiri þegar
heiðviðri er í nánd, heldur en þeg-
ar von er á rigningu.
LÍKAMLEGT ATGERVI.
Samkvæmt áliti margra lækna
færðu nokkurn prófstein á líkamlegt
atgervi þitt með því að athuga hve
lengi þú getur (1) haldið niðri í þér
andanum, (2) haldið handleggjun-
um beint út til hliðar, og (3) staðið
á einum fæti með lokuð augu.
Reyndu þetta og taktu tímann. En
það er ekki vert að þú gerir allar
tilraunirnar í senn.
(1) 30 sekúndur er sæmilegt, 60
sekúndur er gott.
(2) 2 mínútur er sæmilegt, 3 mín-
útur er gott.
(3) 30 sekúndur er sæmilegt, 60
sekúndur er gott.
GÁTUR.
1. Hvað hataði Kain lengi bróð-
ur sinn?
3. Hver er munurinn á nýjum
einseyringi og gömlum tíeyr-
ingi?
3. Hver er fylltur .á hverjum
morgni en tæmdur á hverju
kvöldi?
4. Hvað skýrir þér frá því, hvern-
ig þú lítur út, án nokkurra
orða?
5. Hvað er fullt af götum, en held-
ur þó vatni?
SPURNIR.
1. Hvaða þjóð byrjaði að nota
skriðdreka í hernaði?
2. Hafa skordýr tungu?
3. Hver er stærsta reikistjarnan?
4. Hvað eiga Hollywoodbúar við,
þegar þeir tala um Oscar?
5. Hvaða stúlka varð fyrst til þess
að fljúga yfir Atlantshafið,
slysalaust og án viðkomu?
AUÐVELD GÁTA.
Leiddu samræðurnar að gátum og
segðu: „Hérna er ein, sem er auð-
veld: Með hverju greiðið þið hár
ykkar, þvoið andlit ykkar og burst-
ið föt ykkar?“
Svör á bls. 64.
62
HEIMILISRITIÐ