Heimilisritið - 01.04.1946, Blaðsíða 5

Heimilisritið - 01.04.1946, Blaðsíða 5
varpaði mæðulega: „Og hvílíkt veðurfar! Þetta er fyrsti góð- viðrisdagurinn, sem komið hef- ur lengi“. Himinninn var enn blár. Þeir gengu af stað hlið við hlið 1 þungum þönkum. „Manstu hvernig það var í gamla daga?“ sagði Morissot. „Við áttum góða daga í þann tíð!“ „Hvenær eigum við aftur að fara á veiðar saman?“ spurði Monsieur Sauvage. Þeir fóru inn í lítið kaffihús og drukku absint saman, og héldu síðan áfram göngunni. Skyndileganam Morissotstað- ar. „Hvað segirðu um að við fá- um okkur annan absint?“ „Alveg eins og þú vilt“, sagði Monsieur Sauvage. Og þeir fóru ixm í annað kaffihús. Þeir reikuðu dálítið í spori, þegar þeir komu út aftur, því iað þeir höfðu drukkið á fastandi maga. Það var stillt veður, og hægur andvarinn lék svalandi um kinnar þeirra. Það tók að renna af Monsieur Sauvage í kulinu. Hann nam allt í einu staðar og sagði: „En ef við færum nú þangað?“ „Færum hvert?“ „Á veiðar auðvitað“. „En hvert eigum við eiginlega að fara á veiðar“. „Til gömlu eyjunnar okkar, auðvitað. Frönsku útverðirnir HEIMILISRITIÐ eru í grennd við Colombes, Du- moulin ofursti er vinur minn, og það verða engin vandræði með að fá lykilorðið11. Morissot skalf af eftirvænt- ingu. „Rétt segir þú. Við skulum koma“. Þeir fóru hvor heim til sín eftir veiðarfærunum. Klukkustund síðar gengu þeir hlið við hlið eftir veginum. Brátt komu þeir að landsetrinu, þar sem ofurstinn hafði höfuðstöðv- ar sínar. Hann varð brosandi við ósk þeirra. Og er þeir höfðu fengið lykilorðið, héldu þeir á- fram för sinni. Eftir skamma stund voru þeir komnir fram hjá útvörðunum, fóru gegn um rústir Colombes og sneiddu fram hjá víngörðun- um, sem lágu niður að Signu. Það var um klukkan ellefu. Hinum megin lá Argenteuil- þorpið í eyði. Hæðirnar í Orge- mont og Sanois gáfu landslag- inu svip sinn. Hin mikla flatn- eskja breiddi úr auðn sinni alla leið til Nanterre. Það var auðn og tóm — grár, nakinn jarðveg- ur og vetrarleg cherry-tré. Monsieur Sauvage benti upp til hæðanna og hvíslaði: „Þama uppi eru Prússamir!" Vinirnir tveir urðu slegnir óhug, þegar þeir litu auðn sveitarinnar. Prússarnir! Þeir höfðu ekki séð þá enn, en þeir höfðu um 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.