Heimilisritið - 01.04.1946, Blaðsíða 56

Heimilisritið - 01.04.1946, Blaðsíða 56
/ SVAR TIL „UNGFRÚ KJÁNALEG". Þú spyrð m. a.: „Hvað hefðirðu gert í mínum sporum, finnst þér ég óttalega vit- Iaus?“ Eg svara: Það er ekkert vitiaust að hætta við mann, sem er tólf árum eldri en þú, emkum ef þér verður starsýnt á það, að hann er illa siðaður og í óhreinum og snjáðum fötum eins og „B“. Og ég held að þú liafir ekki orðið ástfangin ennþá af hvorugum þeirra, sem þú lýsir í þessu langa bréfi þínu, hvorki A né B, eins og þú nefnir þá. — C og jafnvel D, E og F eiga eftir að koma og hafa áhrif á líf þitt og skapa því nýtt gildi. Óðru vísi get ég ekki skilið framkomu þína gagnvart A, nema ef þú ert ekki eins og fólk er flest. „Á ÞÉR ÁSTARAUGU ... “ Sp.: 1. Geturðu gefið mér ráð til að ná af mér svörtum vörtukenndum bólum á andliti, og fæðingarblettum. 2. Kunningi minn bað mig um að spyrja, hvort hægt sé að sjá það í augunum á kvenfólki, hvort það sé ástfangið af karl- mönnum. 3. Hvað lestu úr skriftinni? Ilugsandi. Sv.: 1. Leitaðu til húðsérfræðings. Ég hef áður gefið ráð til að ná af sér vörtum, en fæðingarblettum er illmögulegt að ná af sér nema með sérstakri læknisaðgerð. 2. Það er oft lítill vandi að sjá hvort stúlka eða piltur „gefi hvoru öðru hýrt auga“, enda eru augun „spegill sálarinnar“. Og skáldið kvað: „Á þér ástaraugu, ungur réð ég festa ...“, en eftir því að dæma eru „ástaraugu" til. 3. Óllum slíkum spumingum visa ég heim til föðurhúsanna, ef ekki eru uppfyllt skil- yrði þau, sem tilgreind voru í janúarheft- inu og getið er um að nokkru hér fremst í dálkunum mínum. Það er margra tíma verk að lesa vel úr skrift. Ég vil að hægt ,sé að treysta niðurstöðum rithandarskoð- 54 unar; og ég veit líka, að það mega þeir gera, sem senda rithandarsérfræðingi mín- um sýnishorn. En auðvitað þarf hann að fá sanngjarna þóknun fyrir. Ef ég ætti að lýsa áliti mínu á rithönd allra sem spvrja mig, og birta það hér, tæki það margar blaðsíður í hverju hefti og þar að auki hefur aðeins einn lesandi — spyrjandinn — gaman af því Iestrarefni. TIL OF MIKILS MÆLST. Sp.: 1. Elsku Eva min. Viltu vera svo góð og segja mér hvaða kvikmyndaleikar- ar — karlmaður og kvenmaður — leika bezt, syngja bezt, eru bezt vaxin og lagleg- ust. Mig hefur lengi langað til að vita það, því mér þykir gaman að bíómyndum. 2. Ég vildi óska að Einar Pálsson kæmi oftar i útvarpið en hann gerir. Við skrifuð- um honum bréf og báðum hann að spila tvö lög, en höfum ekkert svar fengið. Það er undirskrifað „Þrjár ungar stúlkur, sem hlusta alltaf á íslenzka útvarpið á þriðju- dagskvöldum". — Geturðu birt mynd af honum, sem ég get stillt upp í herberginu minu? Ég vildi að ég gæti kysst hann með kossi, en verð að láta þessa vísu nægja: Einn koss ég einmana sendi um öldur loftsins hér, og vona að loks hann lendi á Ijúfum vörum þér. Stúlka í Stykkishólmi. Sv.: I. Það verður hver að gera upp við sjálfan sig, þvi að naumast gæti nokkur einn skorið úr um þetta, svo að allir yrðu sammála honuin. Þótt mér finnist það til of mikils mælst, að ég sé dómbær um allt þetta, þá þakka ég samt traustið, sem þú sýnir mér. 2. Vona að Einar lesi þetta, þótt hami sé nú sennilega kominn af landi burt. Beiðnin um mynd af honum er skráð á óskaseðilinn. Evcc Adams. HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.