Heimilisritið - 01.04.1946, Page 15

Heimilisritið - 01.04.1946, Page 15
unn og regnið buldi á gluggarúð- unum. Eða kanski var orsökin sú, að bezti vinur hennar, John Riehards, var nýkominn heim úr brúðkaupsferð með eina af þessum litlu, Ijóshærðu átján-ára-gömlu. Það hafði komið bréf frá hon- um með morgunpóstinum. Hann ætlaði að bjóða henni í afmælis- kokkteil ef hún myndi vilja hitta hann á Myfair- barnum klukkan fimm um daginn. Ekki mýkti þetta skap hennar. Hún gat ekki að því gert, hún hugsaði ekkert hlýlegá til þeirra pilta, sem segðu upp í eyru hennar, að þeir gætu ekki hugsað sér betri félaga en haua, en sem gerðu sér svo hægt um hönd einn góðan veðurdag og yrðu ástfagnir af einhverjum grautar- haus á gelgjuskeiði. Það bar engan árangur, þótt Hilary reyndi að veita sjálfri sér a’lvarlegar áminningar fyrir þessar hugsanir og segði: „Kjánaskapur, góða mín, þú kærir þig ekkert um að giftast þessum mönnunum, sem þú þekkir. Það eina, sem þú vilt, er að þeir biðji þín, til þess að þú getir haft þá ánægju að hrygg- brjóta þá“. Þetta var árangurs- laust. Ekki vantaði afmælisgjafirnar frá þeim öllum. Nigel sendi dem- antskreytta eyrnahringi, Hugh sendi henni sígarettukveikjara úr gulli — allir höfðu þeir munað eftir afmælisdeginum hennar. ... EN ÞÓTT henni tækist næstum að sannfæra sjálfa sig um, að hún ætti beztu vini sem nokkur stúlka gæti kosið sér og að hún hefði ekki yfir neinu að kvarta, að hún vœri ánægð — þegar hún gekk yfir gólfið. milli dansfólksins á Myfair, til þess að komast að barn- um, þá var beiskja hennar ekki langt undir yfirborðinu. John var kominn. Hún sá hann sitja á einum hinna háfættu stóla og rabba við herðabreiðan mann i ljósum oxfordbuxum og brún- köflóttum sumarjakka. Hún heilsaði John glaðlega og settist við hlið hans. Andartaki síð- ar stóð freyðandi glas með gin- og kampavínsblöndu fyrir framan hana. „Hilary, má ég kynna Donald Ingram fyrir þér. Donald — Hii- ary Dunstan. Donald sat hérna, þegar ég kom, og ég get ekki losn- að við hann“ Þau Hilary og Donald hlógu og heilsuðust skylduræknislega. IIil- ary hugsaði: Hann er myndarleg- ur, þessi Donald! Hefur brosandi og blá augu og íhugult, sólbrennt andlit. — Hún heyrði — eins og í fjarska — að Juhn talaði um ungu konuna sína dálitla stund, en svo, kynlega fljótt, renndi hann sér nið- ur úr stólnum og sagði: „Þið verðið að afsaka mig mina, en ég verð að fara“. Hann leit ibygginn á úrið sitt. „Eg má HEIMILISRITIÐ 13

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.