Heimilisritið - 01.04.1946, Blaðsíða 48
til Paramount-félagsins og lék
þar tvö aukahlutverk ágætlega.
'En nú í lengri tíma hefur hann
■ekki fengið neitt hlutverk.
Svo lék Joan 1 stórmyndinni
„Mildred Pierce“ og vann glæsi-
legan sigur.
Joan hafði ekki leikið neitt í
tvö ár. Hún hafði hafnað hverju
hlutverki eftir annað, vegna
þess að henni fannst þau ekki
nógu tilkomumikil. Hún vildi
sýna það, að hún hefði annað og
meira til að bera en fegurð og
persónuleika. Eftir fyrstu sýn-
íngu á „Pierce“ kepptust kvik-
myndatökufélögin um að ná
samningum við hana. Hún tók
ekki við neinu tilboði frá þeim,
vegna þess að hún vildi vera
viss um, að hún þyrfti ekki að
Jaka að sér önnur hlutverk en
þau, sem hún var viss um >að
væru við hennar hæfi.
Joan reyndi alltaf að láta
líta svo út, að Phil væri þýðing-
armeiri en hún. Það var hann,
sem var húsbóndinn og gaf fyr-
iskipanir, hvort sem það var í
íbúðinni hennar í New York eða
í húsinu hennar í Brentwood.
En það var einmitt þetta, sem
að var, — allt átti hún, íbúðina,
hiúsið, börnin, allt var þetta
hennar eign. Inn í þetta kom
svo Phil, prúður og geðugur, en
því miður árangurslaust, hversu
sem hann reyndi Það var hún,
en ekki hann, sem blaðamenn-
imir vildu tala við og ljósmynd-
ararnir kepptust um að taka
af myndir. Það er nú einu sinni
svo, að karlmenn eiga erfitt með
að sætta sig við að verða settir
til hliðar í einu og öllu.
Það var þegar þau komu úr
ferð frá New York, að ég sá að
ekki var allt með felldu þeirra
á milli. Út á við var ekki annað
að sjá en allt væri í lagi þeirra
á milli. En heima fyrir gátu þau
kanski setið tímunum saman án
þess að mæla orð frá vörum. Nú
var öll blíða og gleði þeirra á
milli horfin. Þau gátu ekki einu
sinni rifist.
Síðasta laugardaginn sem
Joan og Phil bjuggu saman,voru
þau boðin til miðdegisverðar til
Claudette Colbert. Claudette og
Jack Pressman, maður hennar,
eru mjöghamingjusöm.En ham-
ingja þeirra varð til þess að
opna augun á Joan og Phil fyr-
ir því, að þeirra eigið hjóna-
band var komið í hundana og að
það eina rétta væri að skilja.
ÞRIÐJUDAGINN eftir að
fréttin um skilnað þeirra barst
út, fór ég með Joan í blaða-
kvennaklúbbinn í Hollywood,
þar sem hún var kjörin sam-
vinnuþýðasta leikkona ársins
1945. Það voru dökkir baugar
undir grátbólgnum augum henn-
46
HEIMILISRITIÐ