Heimilisritið - 01.04.1946, Qupperneq 53

Heimilisritið - 01.04.1946, Qupperneq 53
séð liann koma nálægt píanói. Lik- lega er það kvalræði fyrir hann, eins og nú er komið. Þú skilur .... nazistarnir hlifðu ekki höndum hans, áður hann slapp frá þeim, og þar að auki var hann hálfgert barn, þegar þeir gerðu innrásina. Sextán eða seytján ára“. Eg horfði á hendur hans, þessar dásamlegu hendur píanósnillings- ins, þessa tálguðu, grönnu og beinaberu fingur, sem höfðu náð svo ótrúlegu valdi á tónum og nót- um áður fyrri. Nú voru þeir svo sorglega óliprir að sjá, en samt seigluðust þeir djarflega og slysa- laust yfir nótnaborðið og sköpuðu draumkenda tign og veldi í hljóm- um. Ég gekk til hans og staðnæmdist fyrir aftan hann, og hann varð strax var við nærveru mína og sneri sér að mér. „Fyrirgéfið“, sagði ég. „Þér megið ekki láta mig trufla yður“. Hann stóð upp. „Ég er hræddur um, að það hafi verið ég, sem olli trufluninni“. Hann brosti og horfði út í bláinn. „Þegar dyrnar eru jarðneskar“, hélt hann áfram, „er bezt að hafa þær lokaðar. Annars berst ryk og annarlegur eimur inn“. Mér fannst eins og ég hefði hegð- að mér dónalega og ruðst, án þess að hafa illt í huga, inn þangað, sem einhver helgiathöfn væri að fara fram og enginn utanaðkom- andi gæti tekið þátt í. En nú var um seinan að snúa við. Skemmd- arverkið var unnið. „Ég heyrði yður spila í Carnegie Hall“, sagði ég aumingjalega, til þess að rjúfa hina óhugnanlegu þögn. „Það var fyrir einum firnm árum. Þér spiluðu þá mörg lög, eftir Schumann“. „Já, alveg rétt“. Augu hans urðu bjartari og hlýrri, en aðeins andar- tak. Ég leit undan. Mig langaði ekki til þess að sjá rústir Póllands á ný í ellilegum æskusvip hans, í dauðamóðu snillingsaugna hans, „Schumann“, sagði hann. — „Beet- hoven, Brahms.... Það er langt síðan það var“. „Já, það er langt síðan“, endur- tók ég bjánalega. Mér fannst ég ekkert geta sagt annað. Tony kom með tvö glös. „Ég á ekki meira til af ís út í“, sagði hann. ,,Þið megið fá restina, del- arnir ykkar“. „Dzen kuje“. „Vér þökkum“. sagði ég og lyfti glasinu mínu. „Fyrir áframhald- andi sigri. Og fyrir Carnegie Hall“, ég gat ekki á mér setið að bæta því við, af því að drengjaaugun hans höfðu aftur orðið svo alltof fljótt gömul að sjá. „Fyrir næsta sigri yðar þar — Á betri tímum“. Hann hneigði sig hæversklega, næstum tignarlega. Við drukkum skál. Hann lagði glasið sitt varlega frá sér á borðið og hélt löngum, HEIMILISRITIÐ 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.