Heimilisritið - 01.07.1946, Síða 18

Heimilisritið - 01.07.1946, Síða 18
„Þú ert ennþá fríð og freistandi í útliti, en þú skalt taka eftir því, að þessi hversdagsleiki og heimilis- áhyggjur þínar munu á tveimur eða þremur árum fara að gera þig hrukkótta og gamla fyrir tím- ann ... Ætli þú nagir þig þá ekki í handarbökin yfir því, að hafa látið stjórnast af misskilinni tryggð og gleymt að njóta lífsins ...?“ Ndkkrum mínútum síðar var Júlía farin með vini sínum. Þegar Weimar kvaddi mig hélt hann dá- lítið lengur í hönd mér en hóflegt var. Ég held að ég hafi þá roðnað lítið eitt. Um kvöldið skýrði ég Eiríki frá þessari óvæntu heimsókn og hvaða orð Júlía hafði látið falla um mig. ,.Ég verð víst að fara að líta í kringum mig eftir einhverjum, sem ég get vingast við“, sagði ég og hló. „Skelfing er að vita, að all- ir sem við þekkjum skuli vera svo þrælgiftir, að ekki er til neins að hugsa um þá“. „Já, það er sárgrætilegt fyrir þig“, sagði Eiríkur og 'kyssti mig. „En við fáum nýjan fulltrúa um mánaðarmótin. Hver veit nema hann sé til í tuskið“. Við Eiríkur hentum gaman að þessu. Hvorugt okkar hafði hug- mynd um, hversu undarlegt líferni Júlíu og hennar nóta var. ÉG MAN ekki lengur, hvort ég hugsaði nokkuð um Weimar, eftir 16 að ég talaði um hann við Eirík, en þó er ég helzt á því. Hitt veit ég, að þegar hringt var til mín seint í nóvember og ég kannaðist við röddina, þá kom svo á mig, að ég hafði nærri misst símatólið úr greip mér. Ég þekkti óðara rödd Weimars í símanum, og þó hafði ég aðeins talað við hann í eitt skipti, og það varla í hálftíma. Hann sagðist vera staddur í bænum og spurði, hvort ég gæti borðað hádegisverð með sér dag- inn eftir. „Ef þér viljið getum við ákveð- ið einhvern annan dag“, sagði hann. „Ég verð nefnilega hérna í nokkrar vikur. En ég hef hugsað svo mikið um yður síðan við hitt- umst, að mér finnst ég mega til með að fá að sjá yður strax á morgun“. Ég veit ekki hvað hljóp í mig. „Það væri gaman“, svaraði ég. Mér fannst ég allt í einu vera kornung stúlka, eiris og þegar ég var í hússtjórnarskólanum. En þá hafði þó aldrei þýtt fyrir neinn nema Eirík, að bjóða mér út. Nei, ég skil alls ekki, hvaða illur andi hefur skyndilega hlaupið í mig á þessari stundu. Um kvöldið sagði ég manninum mínum, að Weimar hefði hringt. En ég sagði, að hann hefði bara verið að skila kveðju frá Júlíu. Ég minntist ekkert á, að hann hefði HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.