Heimilisritið - 01.07.1946, Qupperneq 24
„Eiríkur, ég hef brotið af mér.
Ég ætla að fara frá þér“, sagði
ég. ,,Ég hafði af ástæðulausu haldið
ljótt um þig og ég ..
„Veslings, litla ljúfan mín“. Ei-
ríkur var allt í einu kominn til mín.
Hann tók utan um mig, þrýsti mér
að sér, kyssti mig. Og tárin fóru
að renna niður vanga mér. „Ég
bið þig um að vera kyrr hjá mér“,
sagði han hlýlega.
„Æ, nei, Eiríkur, ég elska þig,
en ég get ekki verið, ég ...“
„Mamma, af hverju ertu að
gráta, mamma?“ var kallað inn-
an úr barnaherberginu. Ég hall-
aði höfðinu upp að barmi Eiríks og
grét lágt.
„Við biðjum þig öll um að vera
áfram hjá okkur“, sagði Eiríkur
og strauk hár mitt. „Þú átt held-
ur ekki alla sökina“.
Og ég varð áfram hjá þeim, þótt
ég viti, að ég átti alla sökina, eng-
inn annar en ég.
E If D I R
Ráð til að halda góðum vinum
Gera þeim greiða .... senda þeim bækur eða aðrar smá- gjafir, sem þú hefur ráð á.
Stytta þeim stundir . . . leika við þá gólf, tefla og spila.
Biðja þá um .... ráðleggingar, uppskriftir af vín- blöndum o. s. frv.
Hrósa þeim fyrir .... 'leikni þeirra og kunnáttu, bifreið- ina þeirra, börnin þeirra.
Segja öðrum frá þeim . . . . 'kostum þeirra, áhugaefnum þeirra.
Læra af þeim .... umburðarlyndi, góðmennsku, iðju- semi, festu.
Virða þá .... leyndarmál þeirra, áhyggjur þeirra, þögn þeirra.
Reyna þá .... í raunum, í sorg, í gleði.
Dœma þá ekki .... eftir stöðu þeirra, efnum, skemmt-
unum.
Aldrei að setja þá hjá J eða þú átt á hættu að missa þá.