Heimilisritið - 01.07.1946, Blaðsíða 26
brunnir í 20 stiga frosti eins og í 20
stiga hita.
Þeir geislar sólarinnar, sem
valda sólbruna, eru hinir svoköll-
uðu últra-fjólubiáu geislar. Þeir
geta til dæmis ekki komist í gegn-
um venjulegt rúðugler og þess
vegna er þýðingarlaust að sitja í
sólbaði fyrir innan gluggarúðu í
þeim tilgangi að sólbrenna.
En við höfum flest sorglega
reynslu af skaðbruna af völdum
sólbaða. Hinn gullni meðalvegur
er vandfarinn, og sólarljósið getur
haft skaðleg áhrif á fólk, ef ekki er
gætt hófs. Það ber að hafa í huga,
að hörundsroði sá, sem er fyrir-
boði „brunans“, kemur fyrst i ijós
eftir að sólin hefur fengið að skína
óhindrað á húðina i eina eða fleiri
klukkustundir, og að það er um
að gera að hætta sólbaðinu, áður
en þessi roði gerir vart við sig.
Einkenni skaðbruna af völdum
sólarljóss, eru roði, sviði og kláði
og í verstu tilfellum \ brunablöðr-
ur. Síðar fer svo yfirhúðin að
flagna af, eins og margir kannast
við.
Hvað skal gera, ef svo illa tekst,
að maður skaðbrennur eftir útivist
í sólskini?
Fyrst og fremst ber að forðast að
vera úti í sólskini á meðan húðin
er að komast í samt lag aftur.
Gott er að strá kartöflumjöli á
brunablettina og ekki sakar að
smyrja þá með koldkremi á und-
an. Ef um mikinn kláða er að
ræða getur verið ágætt að nota
mentolspíritus. Það er sjaldan á-
stæða til róttækari aðgerða, og yf-
irleitt er maður orðinn jafngóður
eftir fáeina daga.
Hafið nú hugfast, áður en þið
farið að „nota sjóinn og sólskinið“,
að víst eru sólböð til gangs og
gleði, en þó því aðeins að hófs sé
gætt, einkum fyrst í stað.
IKDIB
Sic. Transif gioria mundi
(Ómlituð absúrdía)
Fram úr auðn hins eih'fa lífs,
fram úr allsnaktri, bláhvítri þögn,
stig ég einn stormþungan dag,
stíg inn í streymandi rúmsins,
stíg fram á veginn og stari,
stari,
stari á þá veröld sem var
— ekki
til í gær.
Og ég stari við þinn veg
— ó, veröld! ----
Þú veröld, sem ert ekki í dag
— til
og hvorki varst né verður.
Það er aðeins ekkert sem verður,
sem er og var, —
því aðeins ekkert er allt. —
— Og
allt er ekkert.
I
Krútinn Ilreinn Stánnat.
24
HEIMILISRITH)