Heimilisritið - 01.07.1946, Side 32

Heimilisritið - 01.07.1946, Side 32
loks fundum við eitt, sem frænda mínum leizt mjög vel á, og fluttum inn í það sama kvöldið. Það var ellefu-herbergja-liús, þar var gas- ofn, vaskur með rennandi vatni og eitt herbergi með rúmi og legubekk. Hin herbergin voru öll tóm. Jorgi frændi minn kveikti ljós, tók fram zítarinn, settist á gólfið og fór að spila og syngja. Það var mjög fallegt. Stundum var það þunglyndislegt og stundum fjörugt, en það var alltaf injög fallegt. Ég veit ekki hve lengi hann spilaði og söng, áður en hon- um datt í hug að hann væri solt- inn, en allt í einu spratt hann upp af gólfinu og sagði: Aram, gefðu mér graut. Kvöld þetta eldaði ég hrís- grjónagraut, sem var bæði saltur og útþynntur, en Jorgi frændi minn sagði: Aram, hann er alveg afbragð. Fuglarnir vöktu okkur um sól- arupprás. Vinnan, sagði ég. Þú byrjar sem sé í dag. í dag, sagði Jorgi frændi minn. Hann skreiddist nöturlegur út úr tómu húsinu, og ég litaðist um eft- ir sófli. Ég fann engan sófl, svo ég gekk út og settist á tröppurnar við aðal-innganginn. Þetta virtist vera dýrlegur hluti af veröldinni við dagsljós. Það var ein gata með aðeins fjórum húsum. Það var kirkjuturn eilítið lengra burtu. Ég 30 sat á tröppunum um það bil eina. klukkustund. Jorgi frændi minn kom upp götuna á hjóli, hann ók í kröppum sveigum af einskærri gleði. Ekki i ár, guði sé lof, sagði hann. Hami datt af hjólinu niður í rósarunna. Ha? sagði ég. Það er enga vinnu að fá, sagði hann. Enga vinnu, guði sé lof. Hann þefaði af einni rósanna. Enga vinnu? sagði ég. Enga vinnu, guði almáttugum sé lof, sagði hann. Hann bfosti við rósinni. Hví ekki? sagði ég. Vatnsmelónurnar, sagði hann. Hvað um þær? spurði ég. Uppskerutíminn er búinn, sagði hann. Þú skrökvar því, sagði ég. Uppskerutíminn er á enda, sagði Jorgi frændi minn. Þú verður að trúa því sem ég segi, hann er á enda. Pabbi þinn malar á þér hausinn, sagði ég. Uppskerutíininn er á enda, sagði hann. Lofaður sé drottinn, melón- urnar eru allar komnar undir þak. Hver hefur sagt það? sagði ég. Óðalseigandinn. Óðalseigandinn hefur sagt það, sagði Jorgi frændi minn. Ég trúi því, að hann hafi sagt það, sagði ég. Hann hefur ekki viljað særa tilfinningar þínar. HEIMILISRITI3E>

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.