Heimilisritið - 01.07.1946, Side 39

Heimilisritið - 01.07.1946, Side 39
lesið bréfið sérðu, að það gerði eng- an mismun“. Chesham varð hugsað til þess, hversu ótal margt fólk hafði feng- ið aftur heilsu sína vegna uppgötv- ana þess manns, er skrifað hafði bréfið. Hann hætti að velta því fyrir sér, hvaða ástæðu þessi mikli vísindamaður hefði haft til að skrifa Daníel. Hann sá að Mildred var mikið niðri fyrir og las bréfið upphátt. „KÆRI Cheshann. Þér ályktuð- uð rétt, er þér gátuð yður þess til, í hvaða átt ég myndi nœst beina tilraunum mínum. Þá leið þurfti að fidlreyna. Ég var í þann veg- inn að hefja rannsóknir í þessum efnum og reiðubúinn til að helga þeim alla krafta mína, þegar ég fékk þessa óvcentu greinargerð yð- ar, sem sannaði algerlega, að ár- angurslaust var að reyna þá leið. Nú er það yðar öruggu, vísinda- legu niðurstöðu að þaklca, sem mér er svo ómetanlegt að hafa fengið frá yður, að ég get sparað mér margra ára sleitulausar rannsókn- n — . „Hann gerði hina miklu upp- götvun sína næsta ár á eftir“, greip Mildred fram í. „Hann hafði náð svo miklu lengra að öðru leyti í tilraunum sínum, að Daníel gat sér þess til. En þú skilur, að Daníel fann ekki til neinnar öfundar, því að —“ „Já“, sagði Chesham“, „ég skil“> Hann horfði voteygur í kring um sig í þessari þægilegu, gamaldags stofu og óskaði þess af heilum hug, að hann gæti lýst því með orðum, sem hann nú skildi. „— Því að“, hélt Mildred á- fram, „þótt sönnun Daníels hafi sýnt neikvæðan árangur, þá var hún samt þýðingarmikil“. ,.Já“, sagði Chesham, „ég skil“„ Hann einblíndi út í bláinn og hugsaði um hina skammlífu sigra sína og um hinn ómetanlega hagn- að, sem mannkynið hefði af fórn- arstarfi hins óþekkta bróður hans„ „Já“, endurtók hann hægt. „Ég skil“. Hann var enn að tala við Mildred, en hann vonaði að Daní- el gæti einnig heyrt til sín. E N D I R SKRÍTLUR Á 'ANDAFUNDI. Ekkja (á andafundi): „Ert það þú,. Helgi?“ Andinn: „Já“. „Líður þér vel?“ „Já, mjög vel“. „Betur en þegar þú varst hjá mér?“ „Já, miklu betur". „Það hlýtur að vera dásamlegur staður,- himnaríki, er það ekki, Helgi?“ „Ég er ekki í himnaríki". Á LEXVEIÐUM. Ferðamaður: „Þetta er góð laxaá". Laxveiðimaður: „Það hlýtur að vera. Ég get ekki fengið neinn upp úr henni". HEIMILISRITIÐ 37

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.