Heimilisritið - 01.07.1946, Síða 43
Gally varð enn móðari en
fyrr og hristi höfuðið.
Davies fletti blöðum sínum
og leit til Graham Blakies.
„Hvað um yður, læknir? Við
erum að tímasetja morðið“.
„Er það ekki fulllítið sagt“,
eagði Blakie og glotti biturt.
„Hafið yðar skoðanir á því“.
sagði yfirlögregluþjónninn.,,Ein-
hver hefur myrt hann og ó-
sennilegt er að það sé blá-
ókum/ugur maður“.
„Segið þér mér, Graham“,
sagði Rob og var mikið niðri
fyrir, „hafa þeir nokkum rétt
til að spyrja okkur svona? Ég
geri ráð fyrir að við höfum ein-
hvem rétt í þessu máli“.
Læknirinn leit á lögreglu-
manninn, sem mætti augnaráði
hans ósmeykur, ypti síðan öxl-
um og sagði: „Við gætum neitað
að svara, en ég vil ekki ráð-
leggja það. Það yrði bara til
frekari — erfiðleika. Morð er
morð. Viljið þér heyra mína
sögu Davies? Jæja, — ég sá
Ivan Godden í dag — ég fylgdi
honum frá sjúkrahúsinu — “
„Já, við vitum allt um það.
Hvar yoruð þér frá klukkan
hálfsjö til hálfátta?“
„Ég fór að heiman um klukk-
an hálfsjö. Fór í sjúkravitjun til
Evanston. Kom til Copleys
klukkan — ja, ég veit það ekki
nákvæmlega. Sagði Beatrice
Godden ekki, að ég hefði komið
rétt á eftir sér? Hvað um það,
klukkan hefur líklega verið
rúmlega hálfátta — og þá hefur
hún verið um þrjú kortér geng-
in í átta þegar Ancill kom. Við
Robert Copley sátum saman
yfir vínglasi inni í litlu setstof-
unni. Við fórum tafarlaust þeg-
ar Ancill kom og ég rannsakaði
líkið og —“.
„Þetta yitum við líka“.
Hann tók saman skjöl sín í
skyndi og fór þegjandi út úr
herberginu.
Verity sagði eitthvað við
Blakie og hann gekk til hennar.
Þau Rob og Marcia urðu þá út
af fyrir sig ofur litla stund, því
að Beatrice sneri sér einnig að
Verity. '
Marcia hallaði sér að Rob og
sagði ofurlágt:
„Rob, bréfið sem þú skrifaðir
mér! Það — það er í bókastof-
unni. Það var ófyrirgefanlegt
af mér að skilja það eftir þar.
Og lögreglan — “.
„Hvar er það?“
„Undir dúknum á litla borð-
inuhjágluggadyrunum. Vinstra
megin — það eystra — Ó —
R'ob — “.
„Ég ætla að reyna að ná því,
þó það þýði víst lítið“.
Hann gekk fram í anddyrið, án
þess að nokkur stöðvaði hann.
Skyldi lögreglan ekki þegar
HEIMILISRITIÐ
41