Heimilisritið - 01.03.1951, Blaðsíða 28
\
°g því verra því hærra sem þeir eru settir. Hjónabandið er í hættu,
og þú ert að því komin(n) að gera einhverja vitleysu. Vertu varkár
og gerðu ekkert óhugsað.
BIT. — Ef þig dreymir að þú hafir verið bitin(n) af einhverri skepnu, er
það fyrir slysi, eða þú mátt búast við vandræðum af völdum afbrýði-
semi.
BJALLA. — Að heyra borðbjöllu hringt í draumi, er viðvörunarmerki og
getur verið fyrir sundurlyndi. Hringja kirkjuklukkum eða heyra í
þeim, er oft fyrir stórtíðindum (Sjá Klnkknabringmg)
BJÓR að drekka í draumi boðar þér deilur og áreitni, stundum erfiði án
endurgjalds. (Sjá Drykkir, Ol)
BJUGA. — Ógiftum stúlkum er það slæmúr fyrirboði að dreyma hjúgu.
BJUGUR. — Ef þig dreymir að þú sért bjúgfætt(ur), muntu bera ellina
vel, einkum í útliti.
BJÖRGUN. — Ef þig dreymir að þú sjáir einhverjum bjargað úr hráðri
hættu, boðar það peninga.
BJÖRN. — Ef þig dreymir að bjöm ætli að ráðast á þig, en að hann hætti
við það eða þú fellir hann, merkir það að þú munir sigrast á óvinum
þínum. Að dreyma hvítabjörn á heimili sínu, er fyrir heimsókn
merkismanns. Yfirleitt ætti sá, sem dreymir björn, að vera varkár, því
að þá er oft hætta á ferðum. (Sjá Villidýr).
BLAÐ. — Ef þig dreymir að þú sért að lesa fréttablað, muntu brátt fá
fréttir, sem verða til þess að þú skiptir um atvinnu. Sennilega verður
þessi brcyting til þess, að þú eignast þitt eigið fyrirtæki. Kaupa blað
táknar, að þú færð ástæðu til að glcðjast yfir einhverju. — Ef þig
dreymir að þú rífir pappírsblað í sundur, munu áhyggjur þínar og
erfiðleikar brátt taka enda.
BLEK. — Að nota blek í draumi, er oft fyrir hagnaði eða upphefð. En að
hella niður bleki eða verða blekugur á höndunum, er óhcillaboði; getur
táknað tjón, aðskilnað við einhverja þér nákomna eða illvilja í þinn
garð, þaðan sem þú áttir sízt von.
BLETTUR. — Sjá Óhreinindi.
BLINDA. — Dreymi einhvern að hann sé blindur, getur það bæði verið
fyrir því, að cinhvern, sem dreymandinn treystir, sé varhugaverð
persóna, og einnig, að dreymandinn verði hjálparþurfi fljótlega. Sjá
blinda manneskju, boðar hinsvegar að einhver biðji dreymandann
um aðstoð. Ævinlega eru slíkir draumar fyrir einhverju meira eða
minna slæmu.
BLÓÐ. — Að sjá blóð í draumi, er fyrst og fremst ráðið sem fyrirboði
slæmra frétta eða veikinda dreymandans. Dreyma sér sjálfum blæða:
missætti eða tap og erfiðleikar. Sjá öðrum blæða: svik og tjón. Blóðga
annan: hamingjutákn. Vera blóðgaður af öðrum: óhejllaboði; varastu
að hefjast handa um nokkuð fyrst um sinn. (Frh. í nœsta hefti)
26
HEIMILISRITIÐ