Heimilisritið - 01.03.1951, Blaðsíða 47
notuð þá, svo það var erfitt að
sanna þétta.
„Aldeilis hlægilegt“, hrópaði
Cassie, , Allir vihir mínir, sem
hafa umgengizt mig svo trú-
lega, munu sjá, að þeir þurfa
ekki að verða fyrir vonbrigð-
um, þegar öryggishólfið mitt
með peningunum verður opn-
að“.
En þegar öryggishólfið var
opnað, hafði það aðeins að
geyma verðlausa pappírsmiða.
Starfsmaður í bankanum viður-
kenndi nauðugur, að þegar Chad-
wich hafði tekið öryggishólfið
á leigu, þá hefði hún veifað inn-
sigluðum pakka fyrir framan
hinn trúgjarna starfsmann og
sagt að hann hefði inni að halda
skjöl, sem voru trygging fyrir
5 miljónum dollara. Hann hafði
síðan gefið henni kvittun fyrir
peningunum, án þess að athuga
hvað pakkinn hefði að geyma.
Nú skall fárviðrið á fyrir al-
vöru. Auðmýktir og skelkaðir
bankastjórar játuðu það hver á
fætur öðrum, að þeir hefðu
einnig lánað Cassie peninga svo
skipti hundruðum þúsunda doll-
ara. Forseti eins bankans hafði
lánað henni fjórurn sinnum höf-
uðstólsupphæð banka síns, að
viðbættum hundrað þúsund
dollurum sem hann átti sjálf-
ur. Þrír bankar hættu starfsemi
sinni. Fjöldi fyrirtækja fór á
HEIMILISRITIÐ
hausinn. Eitt blað, sem fletti
ofan af hinum töfrandi svikara,
sagði: „Nokkrir menn hafa
framið sjálfsmorð og næstum
hundrað fjölskyldur eru orðn-
ar öreigar11.
Þegar þessi ótrúlega saga
breiddist út, kom það í ljós, að
hún hafði einnig notað enn ó-
heillavænlegri meðul. Maður
nokkur, sem hafði neitað að
lána henni peninga, þáði mið-
degisverðarboð í Chadwich
skrauthýsinu. Þegar hann kom
þangað, voru aðeins fyrir frú
Chadwich og ung stúlka, sem
hún kynnti sem dóttur læknis
nokkurs í New York. Maturinn
var góður, vínið ljúffengt, en
gesturinn vaknaði næsta morg-
un á dagstofugólfinu og mundi
ekkert af því, sem skeð hafði
um nóttina. Frú Chadwick kom
grátandi til hans og sagði, að
hegðun hans hefði verið hræði-
leg. Hún hefði verið nauðbeygð
til þess að fara með veslings
saklausu læknisdótturina á hót-
el um nóttina. Hvað myndi lög-
reglan hugsa, þegar stúlkan
bæri fram umkvörtun sína?
Maðurinn var mjög þakklátur,
þegar Cassie samþykkti nauðug
að taka við 10 þúsund dollara
ávísun til stúlkunnar, sem átti
að hjálpa henni til að gleyma
atburði næturinnar.
Við annað tækifæri var rík-
45