Heimilisritið - 01.03.1951, Page 38

Heimilisritið - 01.03.1951, Page 38
fáa vini, stjórnarmeðlimur í fjölda fyrirtækja og er meðlim- ur í hinum og þessum samtök- um, en eiginlega bara áhuga- samur um velferð' Góðgerðar- félagsins. Fer oft í útreiðartúra, les „Nei, heyrið þár nú!“ greip hann fram í fyrir henni. „Og svo hef ég ráfað um í þeirri trú, að einkalíf mitt væri séreign mín!“ „Það er algerlega ómögulegt í bæ eins og Claxton! Hér þekk- ir hver annan ...“ „Hvernig stendur þá á því, að ég hef ekki kynnzt yður fyrr?“ „Af því að ég er alveg ný- flutt til bæjarins. Ég er for- eldralaus, og þar sem viðskipta- lífið hefur alltaf haft mikið að- dráttarafl á mig, varð ég afar glöð, þegar frændi minn bauðst til að reyna mig sem umboðs- mann í vátryggingafirma sínu. En það er ekki um mig, sem við eigum að tala!“ „Hvenær eigum við að halda næstu viðskiptastefnu okkar? Þér verðið að muna, að það verður að halda viðskiptavinin- um við efnið! Þér neyðist til þess að hringja mig upp ... eins fljótt og mögulegt er! Þér haf- ið vonandi ekki alltof mikið á móti því?“ „Nei!“ svaraði Lettie seinlega og leit niður fyrir sig. „Ég hef ljómandi hugmynd!“ hrópaði hann og smellti fingur- gómunum. „Ef til vill borgar það sig að flytja þetta dynamit ... eða að byggja sérstakan skúr undir það? Gætuð þér ekki hugsað yður að heimsækja mig á sunnudaginn eftir hádegi? Þá gætuð þér hjálpað mér til að reikna hitt og þetta út.“ Hann leit brosandi á hana, og Lettie endurgalt áskorunina, sem lýsti úr augnatilliti hans. „Með ánægju!“ svaraði hún svo. NÆSTU þrjá daga hugsaði Lettie oftar um Hugh Barton heldur en hún eiginlega kærði sig um. Henni var fullkomlega ljóst, að það var vonlaust að reyna að fá hann til að kaupa tryggingu, og hún ákvað að heimsækja hann ekki á sunnu- daginn. En rétt eftir hádegið á sunnu- daginn, tók hún samt sem áður bílinn sinn litla út úr bílskúrn- um og lagði það snemma af stað, að hún gat vel verið kom- in þangað á tilsettum tíma. Ef til vill var það hið tæra og bjarta haustloft, ef til vill var það meðvitundin um að hafa vel unnið vikustarf að baki sér ... hún var að minnsta kosti í skínandi skapi, þegar hún ók eftir þjóðveginum. En þegar 36 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.