Heimilisritið - 01.03.1951, Síða 43

Heimilisritið - 01.03.1951, Síða 43
ljós skein á hana . .. og blindaði hana alveg í fáeinar sekúndur. ,,Nemið staðar!“ æpti hún. „Nemið staðar! eða ég skýt!“ „Hvert þó 1 logandi ...!“ þrumaði hás rödd. „í guðs bænum ...!“ sagði önnur ... sem leit út fyrir að vera rödd Hughs. Henni varð aldrei vel ljóst, hvort það var sú uppgötvun, sem sló hana alveg út af lag- inu, eða hvort hún af ásettu ráði hleypti af skammbyssunni ... það kvað við skot ... ljósið að utan blindaði hana ... allt hringsnerist fyrir augunum á henni, og svo hvarf allt! Hnén gáfu eftir undir henni ... og svo leið yfir Lettie 1 fyrsta skiptið á ævinni! „ÞETTA ... það var ekki al- gert yfirlið!” sagði hún síðar, þegar hún sat inni í dagstofunni hjá Hugh og vini hans, sýslu- manninum. „Nei ... bara tímabundið með- vitundarleysi!“ sagði hann bros- andi. „Ég hef ekki almennilega átt- að mig á því, hvað þér eigin- lega voruð að gera þarna inni í bílskúrnum?“ sagði sýslumað- urinn. „Ég ætlaði að eyðileggja dynamitið!" svaraði hún. ,,Dynamit?“ endurtók hann og leit á Hugh. „Hefur þú dyna- mit í kringum þig?“ „Nei ...!“ andmælti hann. „Þá hefur það bara verið ...!“ Lettie sat dálitla stund án þess að halda áfram máli sínu, en spurði síðan, „Hvers vegna tölduð þér mér trú um það?“ „Til þess að færa ástæður fyrir því, að ég tryggði ekki hjá yður!“ „Þér hefur þó tæplega dott- ið í hug að vátryggja fyrir hærri upphæðir heldur en þú þegar hefur gert?“ rumdi í gamla vini Hughs. „Hafið þér þegar vátryggt?“ spurði Lettie gjörsamlega him- infallin. „Já-en, hvers vegna sögðuð þér mér það ekki strax?“ „Þá hefðuð þér farið undir eins út aftur, og ég hefði ef til vill aldrei séð yður framar.“ „Já-en, hvers vegna sögðust þér ætla í ferðalag í kvöld?“ „Ég ætlaði að fara, en Cham- bers okkar áleit að það væri hyggilegra að halda kyrru fyrir og sjá hvað nóttin bæri í skauti sínu. Og því sé ég ekki eftir ... annars hefði ég "kannske ekki komizt að því, að þér mættuð hér vopnaðar skammbyssu, og það í þeim eina tilgangi að vernda mig ...“ „Það var heimskulegt upp.á- tæki!“ tautaði hún. „Fyrirtaks uppátæki ... og HEIMILISRITIÐ 41

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.