Heimilisritið - 01.03.1951, Page 48
mannlegum vagni ekið að
banka nokkrum. Með mikilli
virðingu gekk vel klædd kona
fyrir bankastjórann og bað
hann að lána sér háa peninga-
upphæð. Hinn kurteisi banka-
stjóri spurði þá, hvaða’öryggi
yrði sett fyrir greiðslu fjárins.
„Ég er frú Cassie L. Chadwick“,
sagði gesturinn. „Ég býst við
því, að þér kannist við frænda
minn herra Andrew Carnegie.“
Hún dró miða upp úr tösku
sinni: „Hér eru tvær kvittanir
undirritaðar af honum. Þér get-
ið séð, að þær hljóða upp á
750 þúsund dollara. Kannske
að þær séu nóg trygging“.
Bankastjórinn, sem vissi hvað
við átti, sagði að það væri að-
eins formsatriði, en hann lang-
aði til þess, að einhver ábyrg-
ur maður athugaði undirskrift
Carnegies. „Maðurinn, sem
færði mér þessar kvittanir í
morgun, er enn hér í borginni“,
sagði frú Chadwich. „Þar sem
hann er lögfræðingur Carnegies
í New York, býst ég við að
hann ætti að þekkja rithönd
frænda míns“. Lögfræðingurinn
staðfesti undirskriftina og full-
vissaði bankastjórann um það,
að hann hefði verið viðstaddur
undirskrift kvittananna. Cassie
fékk lánið.
Stundum ympraði Cassie
kænlega á því, að hún væri
laundóttír stálkóngsins. Vegna
þess hve hinar óskammfeilnu
kröfur hennar voru sterkar,
höfðu bankarnir í fórum sínum
kvittanir, sem voru meira en
milljón dolara virði, og allar
undirskrifaðar af Carnegie.
Eftir því sem sannanir juk-
ust gegn Cassie, undruðust vin-
ir þeirra hjóna, hve Chadwick
læknir hefði getað verið grand-
varalaus fyrir því, sem kona
hans gerði. Rannsókn leiddi í
ljós, að hann vissi lítið um
einkalíf konu sinnar og ekkert
um svik hennar. Hann vissi
þó, að hún lifði ekki á tekjum
hans, en Cassie hafði einnig
slegið ryki í augu hans með
hinni gömlu sögu, að hún væri
erfingi 5 miljóna dollara.
Við réttarhöld frú Chadwick,
sem byrjuðu í marz 1905, fletti
saksóknarinn miskunnarlaust
ofan af leyndardómnum um
fortíð hennar. Hann skýrði rétt-
inum frá, að hún væri fædd
Elizabeth Brigley í Eastwood
Ontario. Faðir hennar var fá-
tækur bóndi, og fátækt hans
var Elizabeth mikill þyrnir í
augum. Hún las 1 bókum um
hefðarfrúr, og það varð æðsta
markmið hennar í lífinu að
komast í tölu þeirra.
Þegar hún var tvítug, fékk
hún kaupmann til að skipta
fölsuðum ávísunum, aðeins með
46
HEIMILISRITIÐ