Heimilisritið - 01.03.1951, Blaðsíða 60

Heimilisritið - 01.03.1951, Blaðsíða 60
Loks komust þær í annað rjóður, Joan hélt það að minnsta kosti. En í raun og vcru höfðu þær farið í hring, eins og allir, scm villast í frumskógum, og nú voru þær aftur á sama staðnum, sem þær höfðu þurrkað föt sín. Yfirkomin af þreytu kastaði Joan sér niður undir tré. „Eg get ekki meira“, sagði hún upp- gefin. ,,Ég get alveg eins legið hér og dáið eins og annarsstaðar. ,,Eg fara að finna vatn“, sagði Rena, sem einnig var uppgefin, og jafnhrædd og áður. „Þú vera“. Joan var alltof máttfarinn til þess svo mikið sem að vara Renu við að villast. Hún sneri sér á grúfu og gróf andlitið í handarkrika sínum. Hún hafði beðið um að fá að deyja, en samt sem áður fann hún nú, er hún hafði bjargazt frá drukknun í annað sinn, til ákafrar lífslöngunar og jafnframt löngunar til að gera uppreisn gegn þeim örlögum, sem virtust hafa dæmt hana til að far- ast í frumskóginum. Hún hafði óskað sér dauða, og hún var dauðanum nær en hana grunaði. Skerandi öskur kváðu skyndilega við rétt hjá henni, en áður en hún fengi komizt á fætur, streymdi hópur hálf- nakinna svertingja að henni úr öllum áttum með ópum og óhljóðum, sem kom blóðinu næstum til að storkna í æðum hennar. Joan var of óttaslegin til að geta hljóðað, og hún of máttfar- in af angist til að gera nokkra tilraun til mótspyrnu, þegar tveir eða þrír þeirra gripu hana meðan hinir dönsuðu gól- andi kringum hana og sveifluðu spjót- um og öðrum vopnum. Henni fannst það líkast hræðilegri martröð, er henm var draslað gegnum frumskóginn. Svo hvarf allt, og hún skildi eftir á, að hún myndi hafa fall- ið í ómegin, því að hún mundi ekkert framar, fyrr en hún varð þess vör, að hún lá bundin á höndum og fótum í litlu hreysi með leirveggjum og strá- þaki. Með erfiðismunum tókst henni að setjast upp, og þegar hún fór að átta sig, veitti hún athygli hóp af innfædd- um mörinum, scm góndu á hana með glotti og grettum í gegnum dyrnar, en tveir risavaxnir hermenn, vopnaðir spjóti og skildi, gættu hennar. Hún hafði verk í höfðinu, hana verkj- aði í alla limi og vöðva, og hún var yfirkomin af þorsta. Þótt merkilegt megi virðast hafði hræðslan horfið, ef til vill af því hún var of ringluð til að gera sér Ijóst, hvað hafði skeð og hvað kornið gæti fyrir. „Vatn!“ stundi hún. „Gefið mér vatn“. Annar varðmaðurinn sneri sér við os virtist spyrja hana einhvers, en Joan skildi náttúrlega ekki hvað hann sagði. Hún reyndi samt að gera honum skilj- anlegt hvað hún meinti, með því að opna munninn og reka út úr sér tung- una. Villimaðurinn sagði eitthvað glott- andi við eina konuna, sem stóð í hópn- um utan við dyrnar. Litlu síðar færði kerling Joan grasker fullt af vatni og hélt því að vörum hennar. Drykkurinn endurnærði Joan, svo að hún gat farið að hugsa. Hún skildi nú, að hún hafði verið tekin til fanga af éinhverjum ættflokki frumskógarins, og að líf hennar var að öllum líkindum í hættu. Hún mundi að Hilary hafði sagt henni, að íbúarnir inni í frumskóg- 58 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.