Heimilisritið - 01.06.1951, Side 31

Heimilisritið - 01.06.1951, Side 31
HÚN VILL VERA HÆRRI Sp: Kæra Eva mín. Mér liggur það ákaflega þungt á hjarta, hvað ég er lítil. Stundum er ég að því komin að ör- vænta, því ég er löngu orðin fullvaxin. Eru nokkur lifandi ráð til þess að ég geti stækkað eða reynt citthvað í þá átt? — Lilla Sv.: Því miður kann ég engin ráð til að hækka þig, til þess þyrftu beinin að Iengjast. En það er langt frá því að þú þurfir að vera örvæntingarfull þess vegna. Nú á tímum eru það lágvaxnar stúlkur, sem eru í tízku — í Ameríku að minnsta kosti. Það merkir, að þær séu eftirsóknarverðari fyrir karlmenn en þær hávöxnu. En þú getur gert svo margt til þess að sýnast hærri en þú ert. Til dæmis geturðu haft hárgreiðsluna þannig, að hárið hækki þig. Forðastu að sverta augabrúnimar eða roða var- irnar mikið, því að allar þverlínur draga úr hæðarlínunni. Berðu höfuðið hátt, án þess að teygja fram hökuna, og hafðu hrygginn beinan. Gættu þess vandlega að verða ekki mjaðmastór. Notaðu ekki lága hæla; þú gætir líka haft aukahæl innan í skónum. Notaðu yfirhafnir, sem eru hnepptar beint að framan. Mjög háir hattar eru óheppilegir, því þeir skapa ósamræmi og virka broslega á fólk. Kragar eiga að vera litlir og lágir, og hálsmálið á helst að vera V-myndað að framan. Ermar skulu vera þröngar og ná svolítið fram á höndina. Axla- vídd er ekki ráðleg fyrir þig. Síðir kjól- ar eða mjög stuttir eru naumast heldur við þitt hæfi. Yfirleitt skaltu velja þér látlaus snið á föt þín, hafa pilsin slétt og flíkurnar í heild ekki of víðar, heldur vel sniðnar og smekklegar. LÍTIL OG SLÖPP BHJÓST Sp.: Mig langar til að biðja þig um að gefa mér góð ráð við litlum og slöppum brjóstum. Ég er rúmlega tví- tug. — MóSir. Sv.: Getur ekki verið að brjóstin hafi slappast af því að þú hefur megrast mikið og fljótt? Þá lagast þau aftur, ef þú fitnar. Þetta getur líka stafað af því, að þú ert ekki nógu beinvaxin. Réttu úr hryggnum og lyftu brjóstinu, þannig að stóru vöðvarnir, sem liggja frá öxlunum niður að brjóstunum, strengist og styrkist. Þér eru eftirfar- andi líkamsæfingar hollar á hverjum degi, eins og öllum, sem ganga hoknir og hafa innfallinn brjóstkassa: Krepptu hnefann og sveiflaðu honum með bein- um handlegg 20 sinnum í hring, fyrst öðrum og svo hinum. Hringurinn, sem hnefanum er sveiflað, á að vera eins stór og unnt er, og svo langt aftur sem þú getur. Andaðu að því loknu mjög djúpt að þér og frá, 40—50 sinnum, við opinn glugga. Svo skaltu taka 40 brjóst- sundstök út í loftið, alveg eins og þú reynir af öllum kröftum að synda út um gluggann. Hvíldu þig síðan litla stund, en að því loknu spennirðu greip- ar á bakinu, þannig að lófamir vísi nið- ur, og teygir handleggina aftur, svo að þú finnir vel, að brjóstið þenst öflug- HEIMILISRITIf) 29

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.