Heimilisritið - 01.06.1951, Side 32
lega út og herðablöðin koma næstum
saman. Þetta skaltu æfa í nokkrar mín-
útur ef þú getur. Við allar þessar æf-
ingar ber að gæta varúðar í fyrstu,
en þótt vöðvamir verði svolítið aumir,
má ekki gcfast upp, því það er um að
gera að sigrast á eymslunum. Sund-
æfingar em einnig mjög ákjósanlegar.
HANN VILL MEGRA SIG.
Sp.: Hvað á ég að gera til þess að
megra mig? — Þ. Ó.
Sv.: Borðaðu fáar máltíðir á dag og
aldrei þess á milli. Neyttu ekki áfengra
drykkja og sem minnst af feitu kjöti
eða sósum, mjólkurmat, sætum kökum
eða slíku. Æskilegt er að nærast sem
mest á grænmeti og ávöxtum. Gakktu
úti í eina klukkustund daglega.
RAUTT NEF OG BOGIÐ BAK
Sp.: i. Vinsamlegast óskast ráð við
rauðu nefi.
2. Ég hef útstandandi herðablöð. Áttu
nokkur einföld ráð til að bæta úr því?
S. Á.
Sv.: i. Ég bef oft gefið ráð við slíku,
en bér eru fáein í viðbót: Hafðu munn-
inn alltaf hreinan og í góðu ásigkomu-
lagi. Blóðrásin þarf að vera í fullkomnu
lagi. Það væri hollt fyrir þig að sippa
í io—-15 mínútur á hverjum degi. Berðu
krem eða púður á nefið, ef þú ferð út
í kulda eða rok. Sé roðinn þrálátiir,
þrátt fyrir allt, skaltu leita læknis.
2. Rétm úr bakinu, dragðu herðablöðin
niður á við og rétni úr hálsjnum, þann-
ig að þú berir höfuðið hátt. Þá færast
herðablöðin í rétt lag, fyrr en þig varir.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „Kolbrúnar": — Algengast er að
brjósúð sé 86 sm, mittið 62 sm, mjaðm-
irnar 92 sm, læri 48 sm, leggur 31 sm
og ökli 19.5 sm.
Til „H. ]." — Ef þú hefur dökka
bauga undir augunum, skaltu ckki sofa
minna en 8—10 klukkustundir á sólar-
hring, hafa meltinguna í lagi og vera
á hreyfingu undir beni lofti minnst
eina klukkustund daglega. Ef þetta ber
ckki árangur, skaltu leita læknis.
Til ,,Snjáku— Þú átt hiklaust að
giftast þessum manni. Hann er trygg-
lyndur og áreiðanlegur, eftir öllu að
dæma. Þetta svar verður að nægja þér.
Ég óska ykkur til hamingju með brúð-
kaupið.
Til „Dóru": — Hver veit nema pilt-
urinn þinn sé hrifinn af þér, þrátt fyrir
allt. Það er ekki víst að hann hafi
árætt að viðurkenna það. Þú ert ekki
ein um það að hafa tárast, þegar svo
cr ástatt sem þú talar um. Bíddu og
sjáðu hvað setur.
Til „A. B": — Ég samhryggist þér
innilega með barnið. Hinsvegar gleður
það mig, að svarbréf mitt skuli hafa
getað orðið þér til upplyftingar. Ég
skil bara ekki, hvers vegna þig langar
til að eignast vin, sem getur sagt þér
„hlífðarlaust til syndanna." Ætli þú
fengir ekki fljótlega nóg af slíku. Vissu-
lega væri líka varasamt fyrir þig að
hafa bréfaviðskipti um þín hjartans mál.
Hver veit nema viss maður kæmist í
bréfin! Auk þess er hætt við, að svo
opinská sálarkrufning, sem þú virðist
ætlast til, myndi ekki blessast.
Til „Einnar óhamingjnsamrar": ■—
Þú hefur ekki ennþá fundið þann rétta.
Hvað sem öllu líður, þá skaltu ekki
láta „ótta“ við neinn eða neina verða
ril þess, að þú eyðileggir líf þitt. Þú
ert sjálfri þér næst, og þótt þú að sjálf-
sögðu þurfir að taka tillit til annarra,
þá eru þó takmörk fyrir því, eins og
öðru.
Eva Adams
30
HEIMILISRITIÐ