Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 2
RÁÐ VIÐ EINMANALEIKA
Svar til „Ónefnds": — Þú ert ekki
einn um það að vera einmana. Einmana-
leiki er einhver versta pynding fyrir
mannssálina, sem til er. Og þetta er
einmitt vandamál, sem ég fæ oft til
úrlausnar.
Allir vilja vera einir á stundum, og
það, að vera einn, er allt annað en vera
einmana. Einmanaleikinn er kveljandi
og getur engu síður gripið mann í stór-
borg meðal miljóna manna en uppi á
auðnum.
Það er ekkert óeðlilegt við að finna
til einmanakenndar. Efún skapast oft-
ast af þörf á að blanda geði við aðra,
einkum af öndverðu kyni. En samt er
engjnn fæddur misskilinn, bágstaddur
og einmana. Það eru kringumstæðurnar
sem eru orsökin. En það eru líka kring-
umstæðurnar, sem hver og einn getur
breytt svo, að einmanaleikinn verði hon-
um ekki bölvaldur.
Sumir læknast af einmanakenndinni,
þegar þeir giftast, aðrir þegar þeir eign-
ast barn. Elundur eða fugl í búri er öðr-
um til góðs. Sumir hafa farið í dans-
skóla, íþróttafélag eða bridgeklúbb.
Athugaðu það, að það eru margir
fleiri en þú, sem eru einmana. Ávarp-
aðu fólk, og þú verður undrandi yfir
því, hvað það snýst vinsamlega við þér.
Skrifaðu upp ástæðumar, sem þú tel-
ur vera fyrir einmanaleik þínum, og
reyndu að sigrast á þeim. Þú getur það
og þú verður að gera það! Þú gemr
breytt aðstæðunum í þína þágu með dá-
litlu átaki. Ef þú byrjar á þvf, skaltu
sanna til, að hvað leiðir af öðm og
hjálpast að við að lækna lífsleiða þinn.
Eva Adams.
ÞEIM ER STRITT
Sp.: Ég er sextán ára og umgengst
rnikið strák á svipuðum aldri og ég.
Við eigum marga sameiginlega kunn-.
ingja og þeir stríða okkur; eru alltaf að
kalla okkur „kærustupar" o. s. frv. Það
hefur samt aldrei verið annað og meira
á milli okkar en kunningsskapur. For-
eldrar okkar segja, að við eigum að láta
eins og ekkert sé, en það er alls ekki
auðvelt. Hvað finnst þér? —- S.A.
Sv.: Bezta ráðið er að taka þátt í
spauginu, þegar kunningjarnir fara að
stríða ykkur. Þá hætta þeir fljótlega
öllum glettingum, því það er ekkert
gaman að stríða þeim, sem taka stríðn-
ina ekki alvarlega.
Eva Adams.
OF FEIT
Svar til „J. Þ.": — Mundu það, að
smjör, rjómi og sykur eru fitandi. Not-
aðu sakkarín í stað sykurs. Kartöflur,
feitt kjöt og fituríkar sósur em einnig
fitandi, að ég tali ekki um áfenga
drykki. Yfirleitt skaltu ekki neyta mik-
ils vökva, jafnvel ekki vatns. Átta glös
af vökva, þ. e. vatn, te, kaffi, mjólk,
súpa eða aðrir óáfengir drykkir, er talið
að sé nóg handa manni á dag. Drekktu
ekkert klukkustund fyrir og eftir mál-
ríð. Þú skalt ekki heldur drekka með
mat og ekki að næmrlagi eða áður en
(Framh. á 3. kápustðu).