Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 18
aði bílinn.
„Úr því yður finnst það, ætla
ég að gera játningu,“ sagði hann
ánægjulega. „Ég hefði getað ek-
ið yður heim á fimm mínútum.
Ég hefði ekki þurft að fara all-
an þennan krók. Og þér skuluð
ekki segja, að þér séuð hissa og
skiljið ekki, hvers vegna ég hafi
gert það, þér vitið það vel. Ég
vil tala við yður, og ég átti ekki
kost á því með öðru móti.“
„Um hvað viljið þér tala við
mig?“ spurði Lintí kuldalega.
„Þér hafið ef til vill heyrt, að
ég hafi orð á mér fyrir að vera
kvennabósi?“ spurði hann ró-
lega.
„Það hefur mér líka virzt,“
svaraði Lintí.
„Þá það,“ sagði hann hæglát-
lega og fékk sér sígarettu á
þennan kæruleysiglega hátt,
sem espaði hana meira en allt
annað. „Afsakið — ég gleymdi
að bjóða yður. Ekki? Jæja, það
myndi heldur ekki fara yður vel
með þennan móðgaða svip. Vit-
ið þér, hver er öruggasta og
fljótlegasta leiðin til að vekja
athygli svona kvennabósa á sér.
Það er með því að vera afund-
in við hann.“
Lintí rétti úr sér og hvessti
á hann augun.
„Þér ímyndið yður þó víst
ekki ...,“ byrjaði hún.
JEREMY yppti öxlum. „Al-
mennt er álitið, að þér haldið
óvenju sniðuglega á spilunum
gagnvart mér,“ sagði hann.
„Hvað aðrir halda, skiptir
ekki máli,“ sagði Lintí æst. En
þér getið að minnsta kosti ekki
misskilið mig. Ég held ég hafi
látið yður finna eins vel og hægt
er, að ég get ekki þolað yður.“
„Já, reyndar. Einmitt þess
vegna er leikurinn svo spenn-
andi,“ sagði hann. „Ég get ekki
að því 'gert, að mér myndi þykja
gaman að fá tækifæri til að tala
dálítið við yður, svo ég gæti gert
mitt bezta til að breyta áliti yð-
ar á mér.“
Lintí datt allt í einu nokkuð
í hug. „Ég gæti hugsað mér —
sagði hún á báðum áttum.
„Já — hvað?“ spurði hann á-
kafur.
„Mér datt í hug, að ég gæti
kálað tveim flugum í einu höggi.
Ef ég væri vingjarnlegri við yð-
ur, myndi fólk ekki ætla mér
jafn lítilmótlegt athæfi,- Það
myndi halda, að mér stæði svo
hjartanlega á sama um yður,
að ég vildi ekkert tij. vinna að
halda áhuga yðar vakandi. Og
þér ...“
„Já, og hvað um mig?“ spurði
hann og brosti — full borgin-
mannlega.
„Þér,“ sagði hún hægt, „mynd-
16
HEIMILISRITIÐ